(ó)hæfi einstaklinga

Ég var nú búinn að viðra þessa skoðun mína áður fyrr (og þá örugglega á öðrum vettvangi), en rosalega finnst mér orðið leiðinlegt að lesa greinar eða blogg þar sem fólk getur commentað við þessa dagana. Ef einhver hefur sterka rökstudda skoðun, þá eru strax einhverjir sem hlaupa til handa og fóta og úthrópa viðkomandi sem óhæfan að tala um ákveðin mál, bara afþví að hann hafði sterkar skoðanir um það. Svona svipað og að ég væri óhæfur að taka þátt í umræðum um aðskilnað ríkis og kirkju afþví að ég hef talað með aðskilnaði áður fyrr. Það er eins og menn megi ekki hafa gert upp hug sinn áður, allt þarf að vera pure og hugurinn tandurhreinn og skoðanalaus, jafnvel þótt skoðun hafi áður verið mynduð að vel yfirförnu máli.
Annað hvort hættum við þessum sandkassaslag eða við gerum okkur grein fyrir því að enginn er hæfur út frá þessum skilgreiningum.

beggja vegna borðsins

Töluvert hefur verið rætt um lífeyrissjóð Kópavogs og hvernig Gunnar Birgisson og co fóru á svig við reglur kringum og eftir hrunið til að gæta þess að sjóðurinn tapaði sem minnstu (eða græddi sem mest). Mest er fólk að velta því fyrir sér hvort það hafi verið rétt og/eða löglegt hjá Gunnari og félögum að fara yfir 10% múrinn af heildarútlánum til eins aðila (Kópavogsbæjar í þessu tilfelli), en sjóðurinn lánaði á tímabili hátt í 20% af heildareignum sjóðsins til bæjarins.
Mér finnst aftur á móti annað atriði ekki minna athugavert og furðulegt að slíkt viðgangist enn:

“„Þegar bankakerfi landsins hrundi þá leituðum við allra leiða til þess að verja sjóðinn, og við gerðum okkur grein fyrir að þetta kynni að fara á svig við lög og létum FME vita af því. Við vorum í algjörri nauðvörn með sjóðinn, eins og allir aðrir. Við náðum upphæð út úr bönkunum fyrir hrun og það var erfitt að setja peningana í öruggt skjól. Það voru að líkindum tugir milljarða undir koddunum hjá fólki á þessum tíma. Við þorðum ekki að fjárfesta í hlutabréfum og gátum ekki fjárfest í ríkisskuldabréfum, svo dæmi séu tekin. Við ákváðum því að lána Kópavogsbæ á hæstu vöxtum, einmitt til að verja sjóðinn og gæta hagmuna sjóðsfélaga. Þetta skilaði sér í því að við vorum með næstbestu ávöxtun allra lífeyrissjóða í landinu. Menn verða svo að hafa í huga að Kópavogsbær er ábyrgðaraðili sjóðsins,“ segir Gunnar.” - via

Sem sagt, Gunnar er bæjarstjóri Kópavogs og stjórnarformaður lífeyrissjóðs starfsmanna bæjarins (hæst ráðandi á báðum stöðum) og hann segir í viðtölum til að bjarga sér frá PR klúðri að hann hafi passað uppá hagsmuni sjóðsfélaga með að láta bæinn borga hæstu mögulegu vexti sem hafi skilað sér í næst hæstu ávöxtun allra lífeyrissjóða landsins á þessu tímabili (sem sagt, Kópavogur borgaði hærri vexti en flestir aðrir aðilar á markaðinum á þeim tíma). Hvað segja Kópavogsbúar sem ekki eru í lífeyrissjóði starfsmanna bæjarins um þetta? Að bærinn sé að fá lánaða peninga á hæstu vöxtum til að hjálpa lífeyrissjóði þar sem bæjarstjórinn (og reyndar aðrir menn í bæjarstjórn) eru við völdin.
Skil hreinlega ekki hvernig þessir menn eigi að geta gætt hagsmuna beggja aðila (sjóðsfélaga og annara íbúa bæjarins) í þessari stöðu. Gamaldags hugsunarháttur það.

Ekki ósvipað þeim hugsunarhætti að hátt settir aðilar í lífeyrissjóðum og bönkum hafi átt að vera stjórnum hvors annars og koma að samskiptum bankana og lífeyrissjóða beggja vegna borðsins. Sjáum alveg hvert slíkt leiðir okkur

Útskriftarræðan 06.06.09

Á útskriftinni minni frá Bifröst hélt ég ræðuna fyrir HHS deildina. Hana má sjá hér að neðan og í word skjalinu:
Útskrift 2009

Útskrift 06.06.09

Rektor, deildarforsetar, útskriftarnemendur, góðir gestir.

GUÐ ER DAUÐUR…. sagði Nietzsche einu sinni. Það kemur reyndar ræðu þessari lítið við, en mér fannst við hæfi að byrja þetta digurbarkalega og að ná athygli fólks.

Ég vil byrja á að óska öllum þeim nemendum sem nú eru að útskrifast innilega til hamingju með þennan áfanga.

Þetta er áfangi sem þið skuluð fagna vel, því þetta er áfangi sem þið hafið unnið hörðum höndum að. Þetta er öðruvísi en afmælisdagar, sem koma hvort sem maður hefur verið duglegur eða ekki. Öðruvísi en fermingar, þar sem maður fær gjafir og hrós þótt maður geri lítið annað en að mæta í um 10 messur og segja svo einu sinni Já!

Á bakvið eina svona prófgráða liggja nefnilega tugir prófa, tugir ef ekki hundruðir verkefna, hundruðir kennslustunda og hundruðir ef ekki þúsundir klukkustunda við lestur.

Til að ná góðum árangri er tvennt mjög mikilvægt. Dugnaður og gott umhverfi. Dugnaðurinn útskýrir sig að mestu leiti sjálfur, en mig langar aðeins að koma inná það af hverju ég tel Bifröst hafa boðið uppá einstaklega gott umhverfi til lífs og náms hér síðustu árin.

Tíminn hérna á Bifröst hefur verið frábær í mínum huga. Hér fléttast nefnilega saman leikur og störf. Að fara í matarboð til vina er ekki bara matarboð, það er framhald af námstengdum umræðum. Að bjóða Jóni Ragnari eða Tryggva í mat var ávísun á heimspekilegar samræður, meðan einn bjór með Palla Kvaran eða Söndru var kvöldstund dæmd til að enda í rifrildi um stór alþjóðafyrirtæki, alþjóðastofnanir og jafnvel kapítalíska fjármálakerfið í heild sinni.

Og það er einmitt þetta umhverfi sem ég tel að geri Bifröst að svona góðum stað. Rólegt umhverfi með stjörnubjart vetrarkvöld þar sem mismunandi fólk með mismunandi skoðanir, en svipuð áhugasvið, fær tækifæri til að læra og búa saman þannig að úr verður einstaklega dýnamískt samfélag
Með svona lifandi og áhugasamt fólk í kringum sig var ekki annað hægt en að lifa og hrærast í takt við sjálft námsefnið og því má segja að skólinn klárist aldrei almennilega. Það voru bara annaðhvort venjulegir tímar, lestrastundir eða umræður með vinum.

En námslífið var ekki það eina sem var gott. Til að halda svona samfélagi gangandi þarf einnig að vera til staðar félagslíf sem ekki er beintengt náminu sjálfu. Það var alltaf hægt að treysta á að Skólafélagið eða aðrir hópar myndi bjóða uppá þessa skemmtun þar sem hægt væri að tæma aðeins hugann og restarta sér áður en haldið yrði í næstu lærdómstörn.

Hvort sem það voru pub quiz kvöld, sápubolti, gönguferðir, ræðukeppnir, handbolti, hoppa í fossinn við Hreðavatn, grill, lautarferðir í Paradís, böll í Hreðavatnsskála, spilakvöld, útinámskeið, yoga o.s.frv. , þá var alltaf hægt að finna eitthvað við hæfi og færi ég skipuleggjendum þessara viðburða kærar þakkir fyrir alla fyrirhöfnina og ósérhlífnina. Bifröst væri einungis góður staður, en ekki frábær án þess.

Til að viðhalda akademísku vinnubrögðunum er kannski við hæfi að nefna nokkra ókosti líka, gleyma sér ekki bara í góðu nostalgíunni. Fyrst ber auðvitað að nefna leiguverðið sem ég tel vera skyldu skólans að reyna að lækka, bæði til að laða að fleiri nemendur og til að viðhalda þeim sem nú þegar eru við nám.

Mér fannst ég einnig hafa verið rosalega svikinn þegar mér var hennt í sumarbústað á fyrstu önninni einhverja 10 km í burtu frá svæðinu. Eftir á að hyggja voru það reyndar bestu mánuðirnir sem ég upplifði hér og sá tími þar sem nokkur af bestu vinasamböndunum stofnuðust.

Góðu minningarnar verða þó alltaf þeim slæmu ofar og af þeim er nóg héðan af Bifröst.

Hvort sem það er þátttaka í Hroka og sápuboltamótinu, að læra að gefast aldrei upp eftir að hafa náð að komast á topp Baulu í þriðju tilraun, að vera sakaður um blómaþjófnað þegar maður var einungis að reyna að bjarga blómum frá ofþornun eða þegar maður sá þrjá karlmenn, sem dags daglega vilja flokka sig sem hreystimenni, grenja eins og smábörn þegar þeir gengu um svæðið klukkan 4 um nótt eftir að Liverpool vann einhverja dollu í fótbolta.

Tímarnir hjá Birgi Hermanns eru líka eftirminnilegir. Íslandsmet í minimalískum glærum með svo hnitmiðuðum og stuttum texta að það kom Birgi sjálfum stundum í koll. Góðir fyrirlestrar bættu það reyndar að öllu leiti upp og gott betur en það.

Með svörum sem voru aldrei almennileg svör, heldur frekar spurningar, held ég að Jóni Ólafs hafi einnig tekist betur en hann nokkurn tíman ætlaði sér að byggja upp efnivið í góða stjórnmálamenn sem gætu svarað öllu með engu, en samt svo miklu. Tilraunirnar til að troða réttlæti og dyggðum inní huga okkar gæti því hafa misfarist fyrir hæfileika í að nýta sér útúrsnúninga til að efla sérhagsmuni.

Góðir gestir. Það er oft venja að svona ræðuhaldarar á svona tímamótum komi með heilræði handa fólki um hvernig það eigi að haga framtíð sinni og lifa góðu lífi. Ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja í því samhengi, enda öflug framtíðarsýn aldrei nauðsynlegri á Íslandi en akkúrat núna. Núna þegar ráðamenn sitja og pískrast um hversu mikið við og börn okkar munum þurfa að taka á okkur vegna skemmtilegrar ævintýramennsku síðustu ára. Ég tek það þó fram að leiðin að þessari björtu framtíð er æði þröng og erfið yfirferðar. Hindranirnar eru margar og heilræðin mjög vítt skilgreind og ég tel það fara hverjum og einum best að túlka þau á sinn hátt.

Allavega, ferðist sem mest, upplifið, lærið, virðið annað fólk sem jafningja og verið réttlát. Munið svo að kapp er best með forsjá þó gaman sé að leika sér án þess að hafa báðar hendur bundnar.

Kennarar og aðrir starfsmenn skólans, ég þakka ykkur fyrir góðar stundir hér á Bifröst.

Útskriftarnemendur, ykkur óska ég enn og aftur til hamingju með árangurinn. Eigið öll frábæran dag og gæfuríka framtíð.
Takk fyrir

Þorsteinn Ásgrímsson

Libanon - Jordan - Syria

Hafrun vildi eitthvad sma update svo here it goes (annars er eg buinn ad vera nokk duglegur ad henda inn stuttum frettaskotum a facebook, enda tott facebook se bannad i landinu sem eg er i nuna)

Allavega, Eins og fyrri faerslur gafu i skyn var eg kominn til Beirut og allt i godu. Aetladi svo ad eyda 4-5 dogum her um bil i Libanon adur en eg faeri yfir til Nordur hluta Syrlands og svo ferdast tadan um Syrland i nokkra daga. Planid breyttist vaegast sagt toluvert og Libanon dvolin vard lengri en eg bjost vid a kostnad veru her i Syrlandi.
Eftir tessa einu nott hja gaurnum sem sotti mig a flugvollinn fekk eg inn hja tremur skiptinemum, einn fra US/Thyskalandi, annar fra Pakistan og tridji fra Lithaen. Snilldar lid sem tok mer og odrum couchsurferum opnum ormum, en medan eg var hja teim gistu 3 adrir ferdalangar i ibudinni og svona 5 adrir skipitnemar sem krossudu tar eftir god fylleri. Allavega, ibudin teirra var eins og felagsmidstod fyrir skiptinema og folk fra Libanon sem teir tekktu ur skolanum (AUB) og naestum a hverju kvoldi var eitthvad ad gera. Hvort sem tad var hid romada naeturlif Beirutar, hverfispubbinn, strondin, tonleikar (Reaggae, Led zeppelin tribute, blue grass, arabisk tonlist, hip hop… name it).
A daginn for eg svo i nokkrar skodunarferdir um borgina og i 3 daga akvad eg ad leigja bil tarna (ekki snidugt ef madur er ekki gedveikur i hausnum og tilbuinn ad taka tatt i teirri russnesku rullettu sem umferdin i Libanon er). Fyrsta daginn for eg og spaensk stelpa sem heitir Lurdes til Baalbak i austur hluta Libanon tar sem eru rosalega flottar runir af romverskum hofum og eru taer taldar einar af teim best vardveittu i mid austurlondunum. Tess ma geta ad Baalbek er ein af adalbaekistodvum Hezbollah samtakanna og allstadar var reynt ad selja manni vorur teim tengdum.
Vid eyddum nottinni i Baalbek, hittum nokkra innfaedda og djommudum med teim og tyskum hjonum. Tar sem tetta er algjorlega muslimskur baer tyddi tad ekkert afengi. Eftir gott spjall, vatnspipureykingar og myndatokur forum vid Lourdes i bilinn og aetludum ad keyra inni midbaeinn aftur en nadum einhvernveginn ad tynast ut fyrir baeinn og tar sem tad var algjorlega kolnidadimmt, ta keyrdum vid um i um 40 min adur en vid stoppudum einhverstadar in the middle of nowhere og svafum bara i bilnum.
Daginn eftir forum vid til baka til Beirut, en eg helt svo afram og skodadi Byblos (borgin sem stafrofid er kennt vid) og hinn otrulega flott Quadisha valley. Eyddi nottinni tar og for i gonguferdir um morguninn og adeins kvoldid adur.
Skildadi svo bilnum og krassadi aftur hja strakunum. Tegar eg kom til baka var reyndar komid par fra USA/Canada sem var mjog nice. Vid kiktum t.d. saman i Jeita hellana rett hja Beirut. Vegna tess hvad allt folkid sem madur hitti var skemmtilegt, gott djamm, vinarlegur local og yfirhofud frabaer borg, ta endadi eg med ad eyda 11 nottum i Libanon i stad 4-5. Sidasta manudag tok eg tvi service taxi beint til Jordaniu i gegnum Syrland (eina vesenid med ad fa visa inn i Syrland - sem oft er vist mjog erfitt - var ad landamaeraverdirnir turftu ad draga fram heimskort til ad stadfesta ad Island vaeri i alvoru land :) ). Stoppadi i Amman eina nott adur en eg leigdi mer aftur bil og hof keyrsluna um Jordaniu. Sem betur fer er umferdin i Jordaniu toluvert betri en i Libanon og rautt ljos tydir rautt ljos, en ekki bara skilti med enga merkingu (allavega svona oftast).
Fyrsta daginn a bilnum for eg til Jerash i nordur hluta Jordaniu sem er annar mjog vel vardveittur stadur med romverskum runum og hofum og leikhusum. Tar sem allt er frekar illa merkt her i tessum londum lagdi eg bilnum bara a einhverju staedi rett hja storum inngangi sem eg sa tegar eg var ad keyra ad stadnum. Labbadi tar inn og rolti i svona 15 min adur en eg rakst a einhvern annan. Mjog gaman ad geta bara verid svona einn a svona mikilfenglegum stad. Alls engin Athena eda Rom. Fann svo loksins adra turista, en teir voru nokkurnveginn i hinum endanum a svaedinu (tar sem leikhusid og staerstu hofin voru). Komst ta ad tvi ad eg hafdi ekkert labbad inn rettan inngang, heldur einhvern starfsmannainngang. Tetta sparadi mer allavega einhvern 2000ISK :)
Keyrdi svo sem leid la til Daudahafsins og svamladi adeins tar og let bandariskan truboda taka myndirnar af mer fljotandi tarna. Eins og trubodum er venja voru gaedin to ekkert til ad hropa hurra yfir, en tad verdur ad duga. For fra Daudahafinu (sem btw er laegsti stadur a jordinni, um 400m undir sjavarmali) og upp tvilikar brekkur og haekkadi mig upp um u.t.b. 600m a nokkrum min. Svaf i baenum Magdaba sem er litill og notalegur baer, en fuck erfitt ad rata i honum og tegar eg reyndi ad finna rettu leidina ut ur baenum daginn eftir tok tad mig um 30 min (to adallega vegna vegnavinnu). Keyrdi hinn fafarna Kings Highway sudur Jordaniu, en utsynid er magnad tar. Madur keyrir upp og nidur hlidar a storum gljufrum og tad vaeri kanski rettast ad lysa tessu sem extreme hvalfjardarleid sem haekkar og laekkar um svona 4-500m. Kom einnig vid i baenum Karak og kastalanum tar, sem reyndar voru vonbrigdi og helt aleidis til Petra (tekkid a google ef tid vitid ekki hvad tad er). Eyddi 2,5 dogum tar og gekk i rumlega 15 tima allt i allt i brennandi hita upp og nidur litla fjallasloda eda i eydimerkursandi. Klarlega einn af flottustu stodum sem eg hef komid a, allt svo yfirtyrmandi stort og natturan hefur svo sannarlega hjalpad til vid ad gera stadinn naesta fullkominn. Enda eru mjog miklar likur vist a ad Petra verdi valin sem ein af nyju 7 undrum veraldar.
Eftir Petra for eg til Wadi Rum i sudrinu, en tad er eydimork + klettar og myndin Lawrence of Arabia var t.d. tekin ad miklu leiti tar upp. Tok 2 tima kamelferd ad budunum og tad er eitthvad sem eg maeli svo sannarlega ekki med. Var ad drepast og eftir 2 tima var eg adeins halfnadur med ferina ad budunum og solsetur alveg ad koma (sem er eitt af highlightum stadarins). Var tvi i midri eydimork a kameldyri sem var ad drepa mig og einhver 8 ara strakgutti sem kunni enga ensku var med i for… Sem betur fer kom eigandi budanna og pikkadi mig upp a Toyota pickupnum sinum og eg fekk ad sja solsetrid adur en vid bordudum godan mat. I budunum voru 8 adrir einstaklingar, tar a medal breskur professor sem eg taladi rosalega mikid vid og vid akvadum svo i stad tess ad sofa inni tjoldunum ad sofa bara i eydimorkinni sjalfri. Tad var tvi Steini, svefnpokinn, teppi og milljonir stjarna a kolsvortum himni tessa nott. Held eg geti sagt ad tetta hafi verid highlight ferdarinnar.
Keyrdi svo daginn eftir sem leid la til Amman, en a leidinni veifadi einn hermadur i vegarkantinum a mig (en hermenn og logreglumenn eru med reglulegu millibili med vardstodvar og stoppa okumenn og gera sma tekk. Eg stoppadi tvi, en ta vippadi hann ser bara inni bilinn og sagdi “go to amman”. Vissi ekkert hvad eg atti ad segja vid tennan uppaklaedda og vopnada gaur svo eg keyrdi bara af stad og sagdi heldur ekki neitt tegar hann skipti um utvarpsstod og for ad blasta arabiskri tonlist. Klarlega nidurlaeging ferdarinnar. Droppadi honum svo af i Amman og tok sjalfur service taxi til Damascus. Tegar eg var ad semja i leigubilstjorann um verd og svona, ta brast annar bilstjori reidur vid (hef ekki hugmynd afhverju) og teir foru ad slast tarna a gotunni. Ferdin fra Amman var tvi heldur spennutrunginn en gauarnir sem voru med mer i bilnum sogdu mer ad segja sem minnst vid bilstjorann… vaeri ekki hans dagur.
Og nu er eg i Damascus. Buinn ad skoda gamla baeinn og svona, en fekk lauslega i magann og tok tvi gaerdegionum rolega. A hostelinu eru tvaer hollenskar stelpur sem eg er buinn ad hanga sma med og planid er ad kikja i bio i kvold med teim. Ef maginn verdur ordinn fullfaer a morgun langar mig ad kikja til Palmyra adur en eg kem svo heim 3 jun.

Jess jess, mun skrifa adeins nanari lysingu a upplifuninni og menningunni og tesshattar tegar eg kem heim.

Lebanon - Beirut

Ta er madur kominn til Beirut i Lebanon. Ferdin gekk eiginlega of smurt fyrir sig, passport control i Lebanon var meira ad segja mjog chillad og ekkert mal ad fa visad. Gaurinn sem aetladi ad hysa mig var lika kominn a flugvollinn og madur fann hann strax. Hann er ekki heldur buinn ad raena ad drepa mig sem margir hofdu ahyggjur af :) Hann byr einmitt i gomlu husi sem a ad fara ad rifa nidur i lok arsins, en tad eru bara 3 sem bua i tessu 10 haeda og 50 ibuda husi. Greinileg merki um ad einhver stridsatok hafi farid fram tar.
Eg gisti tar hugsanlega eina nott i vidbot, fer eftir tvi hvort foreldar hans komi i heimsokn yfir helgina eda ekki. Annars er eg buinn ad fa vilyrdi fyrir gistingu annarstadar i Beirut naestu 2-3 naeturnar.

Skrifa eitthvad meira og skemmtilegra naest. Aetla ad hunskast i sma skodunarferd um borgin adur en madur kikir a hid thekkta naeturlif Beirut i kvold.

Við upphaf ferðar

Þá fer að styttast í mið-austurlandaferðina mína. Flugtak eftir 6 klst og merkilegt nokk er allt komið í tösku og ready (að undanskildum ipodinum mínum sem ég er að hlaða inná). Skal alveg viðurkenna að spennan er orðið nokkur enda verður gaman að sjá hvernig þetta reddast allt saman. Er kominn með gistingu fyrstu 3 næturnar eða svo í heimahúsum og eftir það verð ég bara að sjá hvert vindurinn ber mig. Planið er að byrja í Beirut í Líbanon og taka svo smá tíma í Líbanon fyrir utan Beirut. Þaðan verður svo farið um norður landamærin til Sýrlands þar sem krossfarakastalinn Krak des Chevaliers er rétt hjá. Ætla svo að kíkja til Latika borgarinnar við Miðjarðahafsströndina áður en ég held til Aleppo (næst stærstu borgar Sýrlands). Sú borg á að vera gömul í háttum og bjóða uppá eldgamla markaði og slíkt.
Eftir Aleppo verður haldið hægt niður til Damascus, þar sem ég er ekki alveg viss hvað ég mun gera. Hvort ég stoppi þar, eða fari beint til Jordan þar sem ég ætla að taka bílaleigubíl í eina viku. Stefni í Jórdaníu á að skoða Petra, Dauðahafið, Wadi Rum og Kings Highway, áður en égskila bílnum og fer aftur til Damascus þar sem ég verð í fjóra daga u.þ.b. Þaðan er dagsferð til Palmyra líkleg. Held svo heim 3. júní.
Þetta gæti svo allt eins breyst án fyrirvara og eitthvað dottið út og/eða annað bæst inn.

Gróflega áætlað ferðaplan

Hef brennt mig áður á að vera með of mikið, þannig að ég reyndi að passa að halda þyngdinni á farangrinum í skefjum. Endaði engu að síður í 9kg aðalbakpoak og tæplega 4 kg litlum bakpoka. Það er aðeins of mikið finnst mér og hefði verið sáttur með að ná þessu aðeins lægra. Býst þó við að losna mjög fljótlega við 1,5-2 kg vegna gjafa og ísl nammi.

Aðalbakpokinn:
Gönguskór
Svefnpoki
Bolir 5x
Langermabolur 1x
Stuttbuxur
Sundbuxur
Sokkar 7x (tók 2x pör þykkari sokka ef það verður kalt í eyðimörkinni)
Nærbuxur 5x
Þunnur jakki
Buxur
Snyrtivörur
Lyf og plástra
Sólarvörn
Poncho
Vasaljós
Uppblásinn kodda
Zip poka
Blautþurrkur (með sótthreinsandi)
Frisbí
Gjafir handa gestgjöfum
Íslenskt nammi ef einhver gestgjafanna vill smakka :)

Litli bakpokinn:
Myndavél Canon 300d
Myndavél Ixus 500
Hleðslutæki 2x
Minniskort, auka rafhlöður, snúrur
Ipod + hleðslutæki
Símahleðslutæki
Ferðamiða
Allskonar skjöl (tryggingaskjöl, alþjóðl. ökuskýrteini, bólusetningarkort, auka passamyndir o.s.frv.)
Ferðahandbækur 2x
Aðrar bækur til að lesa 2x
Spil

Annað:
Peningamagabelti með peningum, vegabréfi og kreditkorti
Buff
Föt sem ég verð í á leiðinni.

Mun reyna að henda inn einhverjum orðum og jafnvel myndum eftir því sem ferðinni líður. Það verður samt bara að ráðast af netkosti og eljusemi í mér við bloggskriftir.
Svo kemur maður næstum beint heim í útskrift (þ.e. ef maður nær þessari ritgerð :)) sem á að vera 6. júní.

að pakka rétt

What to pack?

“Decide on the minimum of luggage you want to bring on your travels, and the amount of money you think you’ll need. Now, when you’ve got everything together, pack only half of your stuff, and double your money!”

Þetta verður gaman eins og venjulega :)

Obama á flickr

Andrés benti á nýja flickr síðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Margar frábærar myndir þarna og ef Obama og crewið hans eru ekki með PR mönnum sem um getur, þá veit ég ekki hvað. Mjög flott að presentera kallinn svona.

Hér er svo ein af mörgum myndum sem mér fannst mjög góð. Gott look á forsetafrúnni :D
obama
via

brostnar forsendur

Er að lesa mjög skemmtilega bók um framtíð utanríkisstefnu bandaríkjanna frá árinu 2006. Þar kemur meðal annars eftirfarandi fram (í lauslegri þýðingu):
“Ef miklar breytingar eiga að eiga sér stað í utanríkisstefnunni, þá þarf að koma til mikilla efnahagslegra eða pólitískra breytinga, helst beggja”
Svo er byrjað að tala um að það gerirst líklega ekki og nokkrar smávægilegar breytingar taldar upp sem líklegar séu að gerist.

Gallinn er að árið 2006 var ekki búið að kjósa Obama og það var ekki komin heimskreppa.

samskipti við ferðaskrifstofu

Apr 5, 2009 kl 21:09: Bóka flug hjá Air Baltic gegnum ferðaskrifstofuna Just the flight. Flugið er frá Tel aviv 3. júní til Riga og þaðan til London.

Apr 6, 2009 kl 02:45: Bókunin staðfest og ég er búinn að borga.

Apr 17, 2009 kl 02:37: Just the flight sendir mér email og segir mér að Air Baltic hafi breytt (reschedule) fluginu mínu. Senda nýjan miða með þar sem bæði fyrri flugin (Tel-Riga-Lon) eru inni og svo eitt auka flug frá Tel-Riga daginn eftir. Svo stóð einnig á honum Time Change, svo mér fannst líklegt að það væri verið að reyna að færa flugið um dag. Mjög furðuleg framsetning samt á breytingu.

Apr 17, 2009 kl 05:27: Ég sendi spurningu á Just the flight til að fullvissa mig um að flugið hafi verið fært.

Apr 18, 2009 kl 08:30: Fæ fyrsta svarið, já, flugfélagið lagði flugið niður. Ég get samt fengið flug 2. eða 4. júní.

Apr 18, 2009 kl 10:18: Bið um að fá frekar fulla endurgreiðslu, enda um samningsrof af hálfu flugfélagsins að ræða.

Apr 18, 2009 kl 11:07: Starfsmaður Just the flight misskilur beiðnina um endurgreiðslu og heldur greinilega að ég sé að spurja hvort það sé hægt að fá endurgreiðslu. Hann allavega segir að það sé hægt.

Apr 18, 2009 kl 11:11: Staðfesti aftur að ég vilji endurgreiðslu.

Apr 18, 2009 kl 15:25: Panta nýjan miða og breyti ferðinni. Ætla ekki lengur til Ísrael, heldur fljúga aftur frá Damascus í Sýrlandi. Ferðatíminn og ferðahögun breytist óvenjulítið við þetta.

Apr 20, 2009 kl 07:58: Fékk þetta frábæra svar frá Just the flight: “Your booking has now been cancelled and we will refund the card as soon as we have the refund from the airline, this can take upto 10 weeks.”
10 vikur !!! Vá, þvílík þjónusta

Apr 20, 2009 kl 09:54: Svara þeim að þetta sé algjörlega óásættanlegt og krefst þess að fá greiðsluna endurgreidda ekki seinna en í þessari viku.

Apr 20, 2009 kl 11:28: Svar um að þetta muni væntanlega taka styttri tíma. Starfsmaðurinn ætlar að tala við innheimtudeildina.

Apr 20, 2009 kl 12:30: Staðfesting um endurgreiðslu.

Mun svo sjá á visa yfirlitinu á morgun eða miðvikudaginn hvort þetta sé komið inn.
Þrátt fyrir að maður hafi verið frekar pirraður yfir svona bréfi og að flugið hafi allt í einu verið lagt niður og svo svari um hugsanlegar 10 vikur í endurgreiðslu, þá má Just the flight eiga það að einstaklingurinn sem svaraði mér gerði það hratt og örugglega.

Lýðræðishreyfingin

Gaman að sjá hvað Ástþór hefur verið duglegur að fá myndarfólk á listana hjá sér. Sá sem er t.d. þriðji í suð-vestur (fyrsti maður er reyndar bara tilgreindur, eftir það er stafrófsröð) er einstaklega hæfileikaríkur og góður maður. Hver vill ekki hafa valkost um að geta sett hann á þing?

Hér er svo annar sem virðist vera góður kandídat á hið háa Alþingi

Maggi benti mér líka réttilega á þá skemmtilegu staðreynda ða þegar komið er út fyrir Reykjavík og Suð-vestur kjördæmin, þá sé áhugavert hvað fáir búi innan þess kjördæmis sem þeir bjóða sig fram í. T.d. í N-V kjördæmi, þar eru 2 með lögheimili innan kjördæmisins.

Kaupandi að exista bréfum!

Fékk bréf í dag þar sem mér var tilkynnt á fallegum pappír frá Logos lögfræðisstofu að nýtt félag í eigu Lýðs og Ágústs bakkabræðra væri tilbúið að taka yfir Exista bréfin mín á genginu 0,02 (fór það ekki hæðst í eitthvað 35-40?). Eftir að hafa staulast í gegnum bréfið og lagalegar ástæður þessa yfirtökutilboðs var svo loks komið að uppgjörinu. Þeir voru sem sagt til í að kaupa hlutina mína 160 á genginu 0,02 og = 3 ISK. Og til að gera tilboð í þessar 3 krónur, þá er öllu hennt á fallegan pappír, sent heim til mín í stóru umslagi og svo svarumslag og ég veit ekki hvað og hvað. Ég á bara að kvitta á þetta, láta votta undirritunina og labba út á næsta pósthús og senda svarið. Svar uppá 3 krónur um hvort ég vilji láta taka yfir bréfin mín eða ekki. Ég held í alvöru að fáir muni nenna að elta þetta tilboð þeirra, enda ekki einusinni 3 krónu virði að labba út á pósthús.

←Older