Jóladagatal og meira

Á batman er linkur á jóladagatal körfuboltadeildar ÍR, þar má meðal annars finna þessa mynd. Lesið textann á henni.

Annar snilldar linkur á batman er um svartan ameríkana sem fer til japans til að vera enskukennari. Svo skrifar hann einskonar blogg á netið. Þar segir hann m.a. frá því þegar japanskir krakkar (frá 12-15ára) reyna að klípa í typpið á honum þar sem þau eru eitthvað obsessed yfir þeirri hugmynd að svartir gaurar séu með heljar reður. Frekar neyðarlegt eitthvað þegar þetta eru nemendurnir sem hann er að kenna :)
Allavega er síðan hér

Hvað eru svo femmur að pæla með þessu “ekki óska Unni Birnu til hamingju með sigurinn” nöldri sínu við Dóra forsætisráðherra. Þetta kallast að skjóta sig all verulega í fótinn og gera sjálfa sig að því sem þær þykjast vera að berjast gegn, þ.e. staðalímyndir. Minns allavega skilur ekki.

Farinn að horfa á x-files eða spila starcraft (nostalgia)

Comments (1)

Leave a comment

Your comment