chaos theory
Um daginn horfði ég á myndina Butterfly Effect með Ashton Kutcher og Amy Smart. Þetta er ein af þeim myndum sem ég varð hooked á strax, umfjöllunarefnið hreif mig gjörsamlega.
Myndin tekur nefnilega á skemmtilegu eðlis- og stærðfræðilegu efni og svo öðru félagsmálalegu taboo-i sem er kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Það sem gerir þessa mynd frábrugna öðrum dramamyndum um erfiðar heimilisaðstæðum er að þessi mynd er stútfull af senum sem að maður hefur ekki séð áður þegar maður horfir á mynd. Myndin tekur alltaf krappar beygjur og fer í allt aðra átt en maður upphaflega bjóst við. Inní þetta drama flækist svo chaos theory sem gengur út á að ef þú gerir eitthvað núna, hversu smátt sem það er, þá hefur það gríðarleg áhrif til lengri tíma. Þetta er oft sýnt myndrænt með því að segja að ef fiðrildi blaki vængjunum í amazon geti það haft þær afleiðingar að fellibylur myndist á Indlandi seinna meir.
Það eru einmitt þessar pælingar um chaos theory sem mér fannst hvað skemmtilegastar við myndina. Leikstjórnarnir náðu líka að koma þessu vel frá sér og myndin byggir helst á mjög góðu handriti sem hefur verið hugsað fram og til baka í alla detail-a. Leikurinn er líka góður og Ashton Kutcher sýnir hliðar sem maður bjóst ekki við.
Þrátt fyrir gott handrit er það líka það eina sem maður getur sett út á myndina þannig séð, en leikstjórarnir hefðu getað látið mun meiri breytingar verða af litlum atriðum sem sögupersónurnar gerðu, en aftur á móti hefði það næstum verið ómögulegt að kvikmynda.
Þegar ég var búinn að horfa á myndina horfði ég á allt aukaefnið en langaði samt a vita meira um þessa kenningu (enda mjög áhugaverð pæling).
Þetta var allavega mynd sem fékk mig til að hugsa meira en Die hard þegar Bruce willis segir Yippie kayej motherfucker og hún þorir líka að taka á málefnum sem eru algjört taboo fyrir mörgum án þess þó að það sé einhverntíman asnalegt.
Mæli vel með þessari
4/5*

Þetta er vanmetin mynd en Aston Kutcher kann ekki að leika, það er á hreinu.
Ps. Óþarfa diss á Die Hard
Ósammála, Aston var bara góður í þessari mynd, þótt ég hati hann venjulega.
Varðandi Die Hard átti þetta ekki að vera diss. Hún er einmitt frábær í því að vera Töff oneliner-a hasarmynd
samt otharfa diss a Yippie kayej motherfucker … >P