Að fara
Loksins búinn að gera allt klárt, koma draslinu fyrir í bakpokanum og redda öllu (allavega sem ég veit um). Á reyndar eftir að gera góða playlista á ipodinn, en er að vinna í því ![]()
Varð smá seinkunn vegna tónleikanna hjá Roger Waters áðan.
Erum svo bara aðfara að leggja í hann, en vélin fer eftir 3 klst.
Tónleikarnir voru svo vægast sagt frábærir. Ekki bara að tónlistin væri í hæðsta gæðaflokki, heldur var ljósashow og myndashow með því besta sem gerist. Greinilegt að Waters kallinn er ekkert að klikka á hlutunum.
Eina lagið sem ég var ekki alveg sáttur með var einmitt mitt uppáhald með Pink Floyd, en það er lagið Great gig in the sky. Mér fannst söngkonan sem söng lagið ekki ná að skila því nógu vel frá sér, en þetta var eina lagið á tónleikunum sem mér fannst vera verra live en á stúdíó upptökum. Fékk bara gæsahúð á að heyra lög eins og Comfortably numb, wish you were here og us and them.
Waters fær fullt hús stiga og jafnvel gott betur en það.
Í tímaleysi mínu í dag náði ég ekki nærri því að kveðja alla, en geri það bara hér með, bleh!.
Ég verð væntanlega í email sambandi ef það er eitthvað sniðugt og svo vonandi að blogga eitthvað.
later…

Hæhæ!
Ég ætlaði nú bara að óska þér góðrar ferðar!
Have fun!
Kv. Ási
Steini minn góða ferð ég hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim:) skemmtu þér alveg frábærlega:D