Heim

Þá er maður kominn heim eftir gott interrail um evrópu. Er ekki frá því að maður sé bara smá ánægður með að vera kominn heim, enda er alltaf gott að vera á Íslandi :)

Ég ákvað samt að búa til smá map sem sýnir hvaða leið við fórum á þessu ferðalagi okkar.
Athuga ber samt að lestirnar fara auðvitað ekki alveg beina leið eins og ég teikna á kortið og svo að þessir litlu útúrdúrar í Tékkalandi og Þýskalandi (sem fer reyndar yfir í Austurríki) eru ferðir sem við fórum fram og til baka.
Ferðalagið

Lét svo þessa síðu sýna til hvaða landa ég hef komið, bæði fyrir og eftir þessa ferð.
Fyrir ferðina (10 lönd og 4% af löndum heims)
Eftir ferðina (23 lönd og 10% af löndum heims)

Ég hendi svo inn betri ferðasögu við tækifæri, hún verður með meiri detailum á t.d. bjórum sem smakkaðir voru, mat sem var borðaður, stöðum sem maður skoðaði og hostel gagnrýni.

Núna um miðjan ágúst á ég svo von á að fá eitthvað franskt par í heimsókn í 2 daga. Þetta er fólk sem bað um að fá gistingu í gegnum svona ferðalanga heimasíðu sem ég er skráður á og ég ákvað bara að vera höfðinglegur og segja já við það :)

Diskur dagsins er Death before disco með stuðsveitinni Jeff Who?. Spilaði hann 2-3 í bílnum í dag og ég er ekki frá því að hann hafi passað mjög vel við stemmarann og veðrið í bænum.

Leave a comment

Your comment