|
Posted on 04.27.07 by steini @ 20:23
Ath. þeir sem ætluðu með í veiðiferðina, endilega látið mig vita með að svara (sjá info neðar) — Var að skoða Google earth áðan og ákvað að henda inn myndum sem sýna hvar maður verður staddur í Kóreu frá sept fram í des.
— Fyrir veiðigarpana. Veriðiferðin í Kollubúð er 12-15 júlí. Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea Svör: It´s all happening! - (8) |
|
Posted on 04.27.07 by steini @ 16:50
stundum getur kaldhæðnin hitt algjörlega í mark. Þetta er gott dæmi um það. — Í gær spiluðu Daníel Ágúst og Krummi uppí Hredda undir nafninu Esja. Fínasta tónlist og eiginlega bara möst að kaupa diskinn. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.24.07 by steini @ 18:53
ég lýsi hér með eftir Þorsteini þegar hann var 13 ára og gat hlaupið upp og niður fjallið í Sæmundarhlíðinni með afa og Steinari þegar maður var í girðingavinnu. ekki er verra að hann gæti auk þess haldið á nokkrum staurum eða gaddavírsrúllu meðan á hlaupinu/skokkinu stendur, svipað og hann gat gert á þessum tíma.
Já ég hreykti mér sko á hæsta steininum og er bara stoltur af því — Áðan kíkti ég á tónleika sem tónlistarskóli Borgarnes hélt hér á Bifröst. Þetta var örugglega yngsta deildin af stengjasveitinni, en mjög flott hjá þeim engu að síður. Tóku nokkur lög saman og svo var einspil inná milli. Nokkrir krakkanna voru frekar feimin við einspilið, en létu þó ekki bugast og kláruðu öll með glæsibrag. Hef á tilfinningunni að þetta muni hjálpa krökkunum töluvert í framtíðinni, þ.e. að þurfa að face-a það að standa fyrir framan aðra þegar þú ert að klúðra hlutunum en geta samt tekið þig saman í andlitinu og klárað verkefnið. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 04.23.07 by steini @ 13:50
Þetta video sýnir svo ekki verður um villst að sumir hafa nægan tíma til að gera allan fjandann. Samt helvíti töff Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.18.07 by steini @ 14:32
þá er fyrsta árið búið. Bæði málsvörn og yfirseta búnar. Í málsvörninni fraus ég alveg og varð algjörlega ekki sá Þorsteinn sem er vanur að missa sig í röfli og rökræðum við svona tækifæri. Þegar fyrsta spurningin kom á mig stóð ég upp alveg fullur sjálfstrausts, en datt alveg út. Hausinn orðinn alveg tómur og þetta endaði með að ég þurfti að vísa spurningunni á næsta einstakling og settist niður. Svo þegar maður var aftur kominn í gírinn svaraði ég næstu spurningu sem kom til mín og bara með flott svar. Nema hvað að einn kennarinn stóð upp og sagði nú að skýrslan sem ég væri að vitna í væri eftir fyrrum kennara hans og hann hefði sjálfur ritstýrt skýrslunni. Og það sem þessi fyrrum kennari væri nú í raun að meina væri…. blablabla. Algjörlega kaffærður aftur :S Á morgun er svo opinn dagur og ég verð í kynningarhlutverki og leiði fólk um staðinn, svona rétt áður en maður missir sig í grilli og fylleríi um kvöldið Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 04.16.07 by steini @ 9:06
Þá er missótörnin að klárast. Í gær skiluðum við loksins af okkur skýrslunni og stefnan var auðvitað sett beint á pottinn með eins og einn bjór Þannig að eftir 3 daga verður maður búinn með 1/3 að BA gráðu…. Klárlega tilefni til þess að skála og fagna. Svo á fimmtudaginn verður opinn dagur hér á svæðinu og er ég búinn að bjóða mig fram í að vera og leiða nýtt fólk um staðinn. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.15.07 by steini @ 0:45
Á mbl má sjá frétt frá landsfund sjalla. Er ekki enn búinn að gera upp hug minn varðandi heimakennsluna sem þeir tala um. Vissulega má benda á að þetta auki frelsi foreldra, hvort þau vilji vera heima með börnin sín, eða setja þau í venjulega skóla. Aftur á móti þyrfti að hafa töluvert eftirlit með þessu. Passa að foreldrarnir tækju ekki bara peninginn sem fylgdi með krökkunum og eyddu því í sjálfa sig. Þetta eftirlit gæti bæði verið mjög erfitt í framkvæmd og svo einnig mjög dýrt. Það er því spurning hverju við erum að fórna þarna og hvað við erum að græða. Sá að einhver benti einnig á að krakkarnir þyrftu auðvitað einnig að taka próf og þá væri hægt að sjá hvort foreldrarnir væru að standa sig. Ef þeir væru ekki að gera það yrðu þau kærð til barnaverndar (eða einhverrar svipaðrar stofnunnar). En hvað er það sem ræður því hvort foreldrarnir verði kærðir og barnið skikkað til að fara í skóla? Er það eitt fall, tvö föll eða þarf barnið að vera að sluksa algjörlega? Hvað á svo að gera við kennara þar sem fall nemenda er óvenjuhátt? Á líka að kæra þá? Það sem setti svo algjörlega punktinn yfir I-ið í þessari frétt var þessi klausa:
Helvítis afturhaldssinnar og íhaldsgimpi. Það vantar almennilegan hægri liberal flokk á Ísland. Svona bananaháttur gengur bara alls ekki. Maður fær næstum löngun til að skila auðu þegar maður sér svona fréttir. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.13.07 by steini @ 23:57
Flott leið til að taka próf og face-a kennarana dálítið í leiðinni Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.09.07 by steini @ 16:24
Maður getur varla skoðað moggabloggin í dag án þess að verða var við þvílíka vitfyrringu og móðursýkisköst notenda vegna lítillar fréttar sem birtist í skólablaði Princeton skóla og Mbl ákvað að slá upp sem frétt. — Jesus loves you, and shares your hatred of homosexuals and Hillary Clinton. Government should relax regulation of Big Business and Big Money but crack down on individuals who use marijuana to relieve the pain of illness. Group sex and drug use are degenerate sins unless you someday run for governor of California as a Republican. Global warming and tobacco’s link to cancer are junk science, but creationism should be taught in schools. What Bill Clinton did in the 1960s is of vital national interest, but what Bush did in the ’80s is irrelevant. Trade with Cuba is wrong because the country is communist, but trade with China and Vietnam is vital to a spirit of international harmony. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.08.07 by steini @ 14:55
Kíkti með Magga í gær á myndina Sunshine. Svona til að byrja með mæli ég ekki með þessari mynd fyrir neinn. Hræðilega asnaleg og leiðinleg mynd. Fyrir þá sem vilja vita meira, þá á þetta að vera spennutryllir. Hópur vísindamanna er á leiðinni til sólarinnar með einhverskonar sprengju og markmiðið er að sprengja hana á sólinni til að koma sólinni af stað aftur, þar sem hún er að kólna niður - sem þýðir dauði fyrir jörðina. — Síðasta þriðjudag kíkti ég aftur uppá Bifröst og reyndi að lesa og læra smá. Það gekk svo sem ágætlega, en á miðvikudaginn var hreint út sagt frábært veður. Komst í þvílíkt sumarskap og ákvað að bjóða 5 öðrum einstaklingum í grill um kvöldið. Flestir komu með smá meðlæti með sér og úr varð fínasta grillveisla sem endaði svo í chilli í pottinum, svona eins og lög gera ráð fyrir. — Ísland heldur áfram að vera til smá vonbrigða í handboltanum. Töpuðum 2 leikjum og gerðum eitt jafntefli á æfingarmótinu. Ljósu punktarnir voru þó frábær markvarðsla hjá Hreiðari og svo að leyfa ungu strákunum að spreyta sig. Ég skil þetta með Ragnar Óskarsson samt ekki. Hann virðist alltaf enda í óöryggi og einhverju klúðri. Ætli þetta sé bara svona í landsleikjum, eða spilar hann líka svona fyrir félagsliðið sitt? Róbert Gunnarsson átti svo góðan leik í dag með einhver 9-10 mörk eftir að hafa verið með töluvert af klúðursskotum í fyrri leikjum. Það er greinilega margt sem þarf að bæta, en vonandi að þetta hafi verið góð æfing fyrir strákana. — Merkilegt hvað öll plön sem maður gerir fara í ruglið. Ætlaði að nota helgina í að kíkja á Esjuna. Í gær var svo skuggalega leiðinlegt veður og ég ákvað að nota daginn í að fara í sorpu og kaupa mér ný gleraugu og svona. Svo í morgun þegar ég vakanaði var ég alveg út úr heiminum út af veikindum. Gat varla komið upp orði fyrir hádegi og var hálf rúmfastur þangað til handboltinn byrjaði, þá staulaðist ég fram úr. Ætli maður kenni ekki köldu veðri og klæðnaði sem var ekki í samræmi við veðurfarið um þessi veikindi. Gaman gaman — Í gær eignaðist ég mikinn bandamann. Það er hún Hafrún góða. Við komumst að því að okkur er báðum alveg meinilla við helvítis rottuhundapakkið sem kallast chiwawa. Reyndar er okkur ekkert bara meinilla við þessi kvikindi, heldur ætti helst að skjóta þetta á færi og brenna hræin. En jæja, svona vinátta getur verið skammvinn og Hafrún ákvað að kóróna þessa líka góðu samleið sem við höfðum með því að reyna að pranga uppá mig einhverri kenningu um “the secret” (law of attraction). Er aðeins búinn að kynna mér þetta og eins og þetta kemur fyrir mínar sjónir er þetta bara common sence sem einhver ákveður að láta í form kenningar til að græða peninga og fá athygli. Ég ætla því að kíkja á myndina í kvöld og gefa Hafrúnu “slap in the face” um ágæti þessara kenningar á morgun - eða þegar mér finnst tími til kominn til að slá hana aðeins utanundir Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra Svör: It´s all happening! - (3) |
| previous posts » |






