|
Posted on 05.31.07 by steini @ 14:33
Stundum þegar ég les blog á netinu langar mig óstjórnlega mikið til að missa mig í rökræðum um það málefni sem er verið að tala um. Þetta á sérstaklega við eftir að hafa verið í heimspekikúrsum og lært um siðfræði og allt það og sjá svo fólk nota orð eins og frelsi, réttlæti og sanngirni á mjög frjálslegan hátt. Ekki að ég geti fullkomlega útskýrt eða komið með rök fyrir þessu, en þá er þetta stundum svo gjörsamlega tekið úr samhengi að maður fær svona blöndu af aulahroll og djúpu andvarpi. Í mörgum tilfellum hætti ég því við að svara og fer bara að lesa annað á netinu, en stundum leyfi ég mér að missa mig svolítið, sem hefur reyndar ekki gerst lengi. Held að venjulegar samræður hérna uppfrá nægi oft á tíðum til að svala þörf minni til að rífast Aftur á móti er maður orðinn miklu meira svag fyrir svona hálf-trollum sem eru með skemmtilega kaldhæðni, skemma samt ekki umræður en eru svo í leiðinni nett sama hvað aðrir segja. Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.28.07 by steini @ 17:04
Það er orðið töluvert langt síðan maður var spenntur yfir einhverju í tengslum við tölvur, tækni eða tölvuleiki. Í fyrradag varð smá breyting á því. Þá sá ég demo af Starcraft 2 og ég er ekki frá því að hárin hafi aðeins risið af nostalgíu. Ég segi það og skrifa að þetta er leikur sem mun fá mig til að byrja að spila tölvuleiki aftur í einhvern tíma. — Hægri menn í Venezúela voru ekki bestu gaurar í sögu stjórnunar í S-Ameríku, svo mikið er víst. En þetta move Hugo Chaves er alveg fáránlegt og mun örugglega verða til þess að auka á ólguna í landinu. — Og afþví að ég hef svo gaman af trúarlegum háðsdeilum er hérna ein skemmtileg myndasaga Skráð sem: Dagleg skrif Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 05.27.07 by steini @ 16:09
Sigurlið HHS! Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.26.07 by steini @ 18:14
Þetta er án efa eitthvað girnilegasta bacon sem ég hef séð ever. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.25.07 by steini @ 17:24
og það var sigur og það var drykkja og það voru almenn drykkjulæti fram eftir nóttu. Á reyndar eftir að sjá dómblöðin til að sjá hversu stór sigur, en örugglega frekar jöfn keppni. Andstæðingarnir fengu t.d. ræðumann kvöldsins. Engu að síður mjög skemmtileg og góð keppni. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 05.24.07 by steini @ 12:09
Jæja “it’s all happening”! Ræðukeppnin í kvöld. Liðið er búið að æfa ágætlega mikið og það er kanski ástæða þess að ég hef lítið blogga í vikunni. Umræðuefnið er “þarf reykjavík á ofurmenni að halda” og við erum með. — Er byrjaður í áfanga sem heitir Kenningar í Hagfræði. Eins skemmtilegur og þessi áfangi gæti nú verið er hann ekki alveg að heilla mig nógu mikið. Finnst að kennarinn gæti sett þetta skemmtilegar fram. En það er ekki á allt kosið. — Stjórnarsáttmálinn og ný ríkisstjórn svo komin í gagnið. Hef ekki náð að kynna mér þetta nægilega vel, en mun væntnalega gera það um helgina og röfla aðeins um þetta þá. — Hérna eru svo nokkrir linkar með áhugaverðu efni sem hefur skemmt mér síðustu daga: Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.21.07 by steini @ 19:02
það snjóaði í morgun. ég hata snjó. ég vil sumar og sól. Skráð sem: Nöldur Svör: It´s all happening! - (6) |
|
Posted on 05.17.07 by steini @ 20:03
spurning afhverju það er haft sér iðnaðarráðuneytis- og viðskiptaráðuneytis linkar á heimasíðu stjórnarráðsins. Síðast þegar ég vissi (og sést með því að sannreyna linkinn) var þetta sama klabbið. — umræðuefnið fyrir ræðukeppnina var ákveðið í dag. Það verður “Þarf Reykjavík á ofurmenni að halda” og erum við með því Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.16.07 by steini @ 20:01
Er Björn með þessari yfirlýsingu sinni sem sagt að segja að kjósendur Sjálfstæðisflokksins RVK-Suður séu hálfvitar sem geti ekki sjálfir tekið upplýsta ákvörðun, heldur sjái eina auglýsingu frá Jóhannesi í Bónus og ákveði að strika Björn út vegna þess. Þetta er bara hræsni og Björn er að drulla yfir eigin kjósendur. — Ég held áfram í mínu skemmtilega hreyfingarátaki. Er núna búinn, á tæplega 3 vikum, að fara uppá Baulu (næstum), 2klst göngu kringum Bifrastar svæðið, göngu meðfram hreðavatni og í Jafnaskarðsskóg (í blíðskaparveðri í dag), labb uppá fell hérna fyrir ofan hreðarvatn og svo skokk uppá Grábrók. Kíkti einnig í spinning í gær (var alveg búinn að gleyma hvað þetta helvíti er mannskemmandi fyrir venjulega einstaklinga) og er að bíða eftir að þetta útinámskeið byrji. Einnig hefur potturinn verið stundaður grimmt — CBS sjónvarpsstöðin er hætt við að framleiða Jericho þættina, en þetta voru einmitt orðnir eitt af uppáhaldsþáttunum mínum. Ástæðan er hrun í áhorfi á þættina. Það sem sjónvarpsstöðin virðist hins vegar ekki fatta (og reyndar margar fleiri stöðvar) að þessi hlé sem eru gerð á sýningum þáttanna eru aldrei til þess fallin að auka áhorfið. Fólk verður bara pirrað yfir 3-4 mánaða hléi og hættir að nenna að horfa á þá. Auk þess var það fáránleg ákvörðun hjá stjórendum CBS að láta Jericho á móti American Idol! Hvaða fávita skapur er það? Þess fyrir utan er það mjög ömurlegt að enda seríuna eins og Jericho endaði, allt í háaloft og margt sem getur gerst. Já ég held að CBS geti engum kennt um nema lélegum stjórnendaháttum hjá yfirmönnum stöðvarinnar. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.15.07 by steini @ 15:42
Obama að tala um trúmál. — Djöfull er pirrandi að koma heim kl 2 eftir að hafa verið að vinna verkefni, drullu þreyttur og fatta að maður á eftir að láta lak á rúmið og sængur og koddaver utan um sæng og kodda…. og í þokkabót ekki getað sofnað fyrr en kl 4 !!! Alveg jafn pirrandi að vakna í gær með þvílíkan hálsríg afþví að maður svaf eitthvað vitlaust :S Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur Svör: 1 svar komið |
| previous posts » |

