Stephen, ritgerðir og matargerð
Posted on 06.29.07 by steini @ 20:29

Þá er loksins búinn erfiðasti og leiðinlegasti kúrs sem ég hef verið í á háskólastigi. Leiðinlegur er reyndar kanski ekki rétta orðið þar sem kennarinn var algjör snillingur og alltaf til í eitthvað skemmtilegt og svo jafnvel að aðstoða nemendur með verkefni fram eftir miðnætti ef fólk var í miklu rugli (sem var venjulegast). Þessi snillingur ber nafnið Stephen Neale og einhvern vegin hefur hann, maður sem make-ar að djamma til 5 um nóttina en mæta svo hressari en allir aðrir til samans í fyrirlestur daginn eftir, ákveðið að helga líf sitt einhverju súrasta námsefni sem völ er á; heimspeki tungumálsins.
Þetta er nefnilega alveg merkilegt fag. Maður er í nokkra sólarhringa að reyna að lesa nokkrar greinar, sem eru á næstum óskiljanlegu fræðimáli. Síðan er maður heillengi að koma nokkrum setningum niður á blað og gera litla ritgerð um þetta - einmitt vegna “óskiljanlega fræðimálið” vandamálsins. En þegar maður er búinn að því og fattar hvað þetta gengur útá og hvernig það fúnkerar, þá fattar maður ekki afhverju þetta var svona erfitt.
Seinna verkefnið var t.d. hópaverkefni og ég átti að sjá um einn hlut af því. Þegar ég var búinn að lesa það sem var ráðlagt að lesa var ég með endalausar hugmyndir um efnið. Fór þá og talaði við Stephen og spurði hann aðeins útí þetta. Á sirca 2mín útskýrir hann fyrir mér að helmingurinn af því sem ég var að pæla í væri óþarfi fyrir verkefnið. Auðvitað varð ég hellað sáttur með það og ákvað að fara að hugsa meira um það sem þá skipti máli. Fann svo nokkra punkta í viðbót og taldi mig vera með pottþétt case. Fór samt og talaði aftur aðeins við Stephen og þá kom það á daginn að ég gæti eiginlega sleppt meirihlutanum af þessum helming sem var eftir. Ég kom þessum fáu hugsunum mjög skilmerkilega frá mér og whooollla…. 51 orð !!!! Lengdi það reyndar í sirca 200 orð, en eftir 2-3 daga lestur og pælingar var útkoman 200 orð! Skilningurinn bakvið þetta er reyndar stjarnfræðilega miklu meiri en þessi 200 orð gefa til kynna, en engu að síður, þetta er rugl.
En já hann er fínasti kall. Að verða 50 ára og fílar að hanga með nemendunum með sinn 10 ára gamla skoska einmöltung, talandi um allt frá Björk og KK til heimspeki og forseta USA. Helsta kvörtun hans varðandi Bifröst var einmitt hversu lítið líf var á kaffihúsinu, enda er skólinn eitthvað að kúka á sig með það og svo eru orðnir svo fáir eftir svona seint á sumarönninni (hann var eiginlega í byrjun vors síðast).

Merkilegt með kröfur kennara í ritgerðum. Núna það sem af er þessu skólaári hefur maður fengið nokkrar mismunandi dæmi. Sumir kennarar vilja t.d. ekki að maður komi með nein dæmi máli sínu til stuðnings: “ef þú getur ekki sagt þetta í orðum án dæma, þá ertu ekki að koma þessu nógu skilmerkilega frá þér”. Svo kemur næsti kennari í næsta kúrs og vill hafa nóg af dæmum, því þau sýni skilning á viðfangsefni. Þarnæsti kennari kvartar svo alltaf yfir því að dæmin séu ekki nógu skýr og það eigi eiginlega bara að umorða dæmin sem eru notuð í lesnum textum (sem mér finnst fáránlegt, þar sem endurorðun á textum sýnir ekki skilning að mínu mati). Þetta getur verið alveg endalaust böggandi, sérstaklega þegar maður er í tveggja vikna áföngum og það eru kanski bara 2x 50% ritgerðir. Þá gerir maður kanski fyrri ritgerðina ekki alveg í takt við það sem kennarinn vill og þá er lokaeinkuninn eiginlega bara komin í rugl.

Það sem af er vori og sumri hef ég verið óvenju duglegur að elda og grilla. Byrjuðum að grilla uppfrá í lok mars eða byrjun apríl ef ég man rétt. Síðan þá hefur ófá steikin fengið að fara á grillið. Auk þess hefur maður töfrað fram margskonar rétti. T.d. kjúkling í eggjanúðlum, kjúkling með rjómalagaðri mango chutney sósu, enchilada o.fl. Síðan loksins þegar maður kemur heim í frábæra eldunaraðstöðu nennti maður ekki að gera neitt og ég endaði á að fá mér bara samloku í kvöldmat.
Gat reyndar ekki stillt mig og gerði samlokuna pönnusteikta, hafði ekki með og pönnusteikti sveppi, lauk, skinku og ost með 

Stundum er gaman að skoða aðeins út fyrir kassann sem maður lifir í. Þessi síða er gott dæmi um það. Hér er skrifað um Alexander Shulgin og hans verk og skoðanir kringum ofskynjunarlyf. Miðað við það sem hann hefur gert er eiginlega merkilegt að hann sé standandi í lappirnar og ekki slefandi grænmeti…. Nema auðvitað að áróður gegn ofskynjunarlyfjum sé eitt alsherjar yfirvarp yfir eitthvað annað stærra og meira (ekki trúlegt).

Búinn að fá vilyrði frá pabba um að fá cruiserinn lánaðann í veiðiferðina, þannig að það þarf bara einn annan bíl í ferðina þar næstu helgi. Verður Robbi á bíl, eða er einhver annar game? Þurfum svo aðeins að plana hvenær við getum farið af stað og svona, á fimmtudaginn eða föstudaginn.
Ætla svo að fara í Ellingsen á morgun og versla eins og eitt net. Þá vantar bara að koma kútternum á flot og redda töppunum í hann. Á einhver svona aukatappa?


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (4)

róleg helgi
Posted on 06.25.07 by steini @ 12:44

Helgin var frekar róleg í þetta skiptið. Var reyndar alveg fram til 3 á laugardaginn að skrifa ritgerð í heimspeki tungumálsins. Held ég hafi sjaldan skrifað ritgerð um eitthvað sem er manni jafn flókið þegar maður hugsar um það, en frekar einfalt svona fljótt á litið. Hef ekkert stórar væntingar fyrir einkunn úr þessu, en maður vonar það besta.
Seinni partinn á laugardeginum var svo skellt sér í veiði í Hreðavatn með þeim Palla Dj, Palla Kvaran og Sibbu. Til að gera langa sögu stutta þá veiddum við ekkert og urðum ekki einu sinni vör. Sama sagan var eiginlega uppá teningnum þegar ég Palli Kvaran og Sibba gerðum aðra tilraun við veiðimennskuna. Urðum reyndar 2x vör þá, en engin veiði. Veðrið þessa tvo daga var aftur á móti frábært og þægilegt að liggja bara og chilla inná milli þess sem maður pældi í veiðiskapnum. Helvítis flugurnar trufluðu þá kyrrð og ró reyndar smá.
Smá spil og partý svo á laugardagskvöldið, en það var bara rólegt

Skrítið með þetta vatn. Kemur bara og fer. Var ekki til fyrir 30 árum, varð svo til og er aftur horfið.

Langar svo að biðja Óla, ef hann les þetta blog, að koma því enn betur á framfæri við yfirmenn tölvudeildar mbl að þetta autoplay á video-um er algjör óþarfi. Hafa það bara valfrjálst þegar maður skoðar fréttina hvort maður vilji skoða myndskeiðið.

Smá húmor svo í lokin:
Einhver strákur að gera góða hluti sem Bush eftirherma[video]
WHAT??? [mynd]
Frábær vandamáladálkur í blaði [mynd]
Að fólk nenni svona… [texti]


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Nöldur
Svör: Ekkert ennþá

Air tónleikar og grillmyndir
Posted on 06.21.07 by steini @ 0:12

Fór á Air tónleikana í gær, þvílík upplifun. Fyrst spilaði ung norsk stelpa, Kate Havnevik ásamt hljómsveit og skapaði mjög fína stemmningu. Mér reyndar líkaði það vel við tónlistina hennar að ég skellti mér niður í anddyri í hléinu og keypti diskinn hennar. Diskurinn er mjög góður, en live performance hjá henni var snilld. Hendi kanski lagi með henni inn við tækifæri.
En að Air. Þeir auðvitað áttu kvöldið. Komu með hvert gulllagið á fætur öðru og manni leið frábærlega. Bestu lögin hjá þeim voru að mínu mati Kelly watch the stars, remember og don’t be light, auk endalagsins (eftir 2 uppklöpp) sem var La Femme D’argent, fyrsta lagið á Moon Safari. Þessi lög voru tekin í aðeins öðruvísi búning en er á disknum, heldur kraftmeiri og það kom frábærlega út.
Eina sem ég get sett út á tónleikana sem slíka var að hljóðkerfið var eitthvað í rugli til að byrja með og svo í einu lagi um miðbikið, þegar það fór aðeins að sarga í þeim. Einnig hefðu Air mátt taka annað hvort Playground Love eða Highschool lover af Virgin suicides disknum og svo Radio #1 af 10.000 hz legend, en það er víst ekki á allt kosið.
Tónleikarnir því í heild frábærir þótt að hljóðkerfið hafi verið aðeins að böggast í byrjun.

Komnar svo nokkrar myndir frá grillinu 12. júní hér á Bifröst.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (2)

Myndir og fleira
Posted on 06.19.07 by steini @ 16:06

Var að henda inn myndum frá Skaftafells útilegunni síðustu helgi. Fljótlega koma svo inn myndir frá grillinu sem var í síðustu viku.
Er að prufa nýtt myndakerfi (coppermine) og bíst við að láta myndir inn þangað í framtíðinni. Slóðin á myndirnar er því hér í frá www.hugarfro.com/coppermine
Langar sérstaklega að benda fólki á þessa skemmtilegu englabossamynd
Fólk getur svo skráð sig inn og commentað á myndir o.s.frv. Þið hljótið að fatta þetta.

Það er alveg merkilegt með hvernig sumir hlutir gerast bara. Er búinn að vera síðustu 1 og hálfu viku að reyna að senda mail til Kóreu með ýmsum gögnum sem vantaði fyrir staðfestinguna. Alltaf fékk ég til baka að emailið kæmist ekki til skila frá servernum úti. Reyndi svo að hringja en enginn svaraði. Svo í dag þegar ég var alveg að gefast upp á þessu fæ ég email frá skrifstofunni um að það bíði mín staðfesting frá skólanum úti. Meðfylgjandi voru svo þau bréf sem við sendum út!!!
Já ég skil ekki svona hluti, en sem betur fer er þetta nú komið í gegn og næsta verk er að fá Visa frá sendiráði Kóreu í Osló.

Air tónleikar í kvöld í Laugardalshöll. Bíst ekki við verri stemmningu en á landsleiknum á 17. júní. Þetta verður all svakalegt. Nú er bara að vona að maður fái að sjá einhverntíman Groove Armada í góðum fíling. Þá væri ég sáttur.

Byrjaði í útinámskeiði hér á Bifröst í gær. Skokkuðum hérna um næsta nágrenni, tókum slatta af æfingum og fórum svo í pottinn. Djöfull er maður nú í lélegu formi :( Það breytist samt örugglega fljótlega. Það var svo smalað saman í Brennibolta, skotbolta, kýló og stórfiskaleik í gærkvöld kringum 10 leitið og búin til mjög góð stemmning í góða veðrinu í gær. Eftir þetta er maður svo með pínu harðsperrur, en annars að mestu heill.

Horfði á myndina Serenity um daginn. Rosalega góð mynd í flesta staði. Sérstaklega hvað varðar stílinn og bara fyrir að vera töff.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (2)

feminismi
Posted on 06.14.07 by steini @ 8:50

Án þess að ætla að fara að verja gjörðir þeirrar konu sem gagnrýndi Smáralindarbæklinginn hér fyrr um árið, þá verð ég að segja að ég tel mig skilja ástæðu þess að hún lét þessi orð falla. Eftir að hafa verið núna í 1-2 daga að hugsa um allskonar afleiðingar kláms, klámvæðingar, kynferðilegs ofbeldis o.s.frv. verður maður alveg hálf geðveikur og raunveruleikafirrtur.
Feministakúrsinn er aftur á móti mjög góður og maður fær alveg nýja sýn á þetta tal um feminisma. Sum rökin er maður alveg búinn að taka í sátt meðan önnur færast enn lengra frá manni og maður sér að eru alveg úr kú miðað við fyrri áætlanir um feminisma.

Þegar maður les svona færslur fær maður dálítinn kjánahroll. Eigum við ekki bara næst að koma aftur á vistarbandi?

Kíkti á Ocean’s thirteen og Hot fuzz nýlega. Báðar snilldarmyndir. Seinni hlutinn í hot fuzz auðvitað með þeim betri í nokkur ár og ocean’s stóð alveg undir væntingum.

Getur annars einhver sagt mér hvað verið er að gera við smáralindina. Er verið að fara að byggja við hana, eða á að byggja nýja byggingu? Stór grunnur í smíði þar.

Merkilegt með þetta að kaupa sér flugfar. Er núna að reyna að finna hentugt far til Kóreu í haust. Icelandair bauð einhvern 150.000kr, exit enn hærra, með því að millilenda sjálfur á nokkrum stöðum (köpen, istanbul) var hægt að fá verðið í svona 75.000kr, en með því að kaupa round trip frá hamburg er hægt að fá ferðina á sirca 65.000kr. Já, þetta er algjör frumskógur og ég er alveg búinn að komast að því að leitarvélarnar á netinu sem eiga að gera þetta allt fyrir mann fá alltaf töluvert dýrari niðurstöður en ef maður tékkar sjálfur á kostnaðinum alla leiðina (hver leið fyrir sig).


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (5)

Yfirráð karlkynsins - Strákarnir taka yfir Bifröst!
Posted on 06.10.07 by steini @ 13:11

Tekið af bifrastarsíðunni:

“..félagsvísindadeild hlutu verðlaunin þeir Guðmundur Ágúst Sæmundsson sem fær skólagjöldin felld niður að fullu og Pálmar Þorsteinsson og Þór Gíslason sem fá 75% afslátt af skólagjöldum. Í viðskiptadeild fær Benedikt Helgason skólagjöld felld að fullu niður, Haukur Skúlason fær 75% afslátt og þau Brynjar Þór Þorsteinsson og Hafdís Anna Bragadóttir fá 50% afslátt af skólagjöldum en þau deildu með sér þriðja sæti. Í lagadeild fær Vilmar Freyr Sævarsson skólagjöldin felld niður, Börkur Ingi Jónsson fær 75% afslátt og þeir Magnús R. Kristjánsson og Indriði Kristjánsson fá 50% afslátt af skólagjöldum en þeir voru jafnir í þriðja sæti.”

Þarna eru sem sagt 10 af 11 efstu á HHS, lögfræði og viðskiptafræði strákar. Hvað kemur til? Í flestum fréttum sem maður heyrir af þessa dagana er duxinn stelpa og þau sem fá verðlaun fyrir framúrskarandi árangur eru það einnig. Það væri gaman að vita ástæðuna á bakvið þessari skiptingu á Bifröst miðað við aðra skóla.

djammið í gær var eiginlega bara svakalegt. Svona smá af öllu.
Grill hjá Sóleyju.
Partý hjá Lilju
Mjög góður drykkjuleikur með fullt af sögum og rugli
Bitch! Læri!
CELEBS :)
leigubíll niðrí bæ þar sem ég hösslaði systur Möggu gegnum síma.
Haldið á Celtic og djammað þar lengi
Daníel og Elli - vinir Valgerðar ;)
Missionin hennar Örnu, sagan um Steinunni og leiðinlegt skófar sem var stórt issue allt kvöldið
ph-gildi líkamsvessa
þegar ég fékk koss og “fór svo hjá mér” að ég hrundi af stólnum og í gólfið
Allir verðandi eiginmennirnir hennar Lilju
mjög svo erótískur dans við Evu (þér fannst þetta alveg fyndið…)
Mjög ölvaður gaur sem kom í hornið á Celtic (rétt við hurðina), henti glasi í gólfið og öskraði HELVÍTIS, svona rétt áður en verðirnir drógu hann út
Skemmtileg hópleigubílaferð heim, þar sem maður fékk t.d. að vita allt um stóru leyndarmálin hjá A-landsliði kvenna í handbolta (og reyndar um hina innri konu sem Árný hefur að geyma - kemur landskliðinu ekkert við)

Þetta er svo mikill aulahúmor að það er æðislegt


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

Myndir frá hátíðarkvöldverðinum
Posted on 06.07.07 by steini @ 20:26

Jæja, hérna eru myndirnar frá hátíðarkvöldverðinum. Vona að allir hafi skemmt sér vel, það var allavega tilfellið hjá mér og þakka ég nefndinni fyrir flotta veislu.

Helvítis feminista ritgerðir alltaf hreint. Skilaði einni í gær alveg á síðustu mínútunni og önnur þarf að vera kominn inn næsta kvöld og svo ein þarnæsta föstudag :(
Ritgerðin sem var skilað í gær gæti annaðhvort fengið alveg bara fína einkunn eða algjört fall hjá henni Ástu. Hún er eitthvað rosalega að stressa sig á uppbyggingu og framsetningu ritgerðanna og aldrei að vita nema maður falli ekki í kramið hjá henni og hún gefi manni einhverja skítaeinkunn.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

Sumarlög
Posted on 06.05.07 by steini @ 15:16

Langt síðan maður hefur hent inn einhverri tónlist. Hérna eru tvö ágætis sumarlög:
Don Ray - Standing in the rain (tekið af Another late night disknum sem Groove armada valdi á)
Kraak & Smaak - One of These Days

Hátíðarkvöldverður HHS í kvöld uppá Hraunsnefi - mexico þema og stefnan tekin á hæfilegt rugl :D


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (2)

Fleipur
Posted on 06.04.07 by steini @ 12:26

Rakst á frábæra síðu á netinu í gær. Fleipur á moggablogginu eru svona aðeins ósúrari útgáfa af Baggalút, en engu að síður snilld.
Góð headlines af síðunni eru t.d.:
Fjársöfnun til handa Bjarna Ármannssyni og fjölskyldu
Sjálfstæðiskonur fá styrk til kynskiptiaðgerðar
Impregilo styrkir Hött á Egilsstöðum með aftökum
Sonarsonur Mussolini til Íslands í boði Ríkislögreglustjóra
Þjóðkirkjan afturkallar leyfi til hjónavígslu rauðhærðra
Kristján Þór Júlíusson og Ágúst Ólafur Ágústsson nýir húsverðir Alþingishússins

Horfði á myndina Syriana í gær. Gæðamynd þar á ferð sem lýsir ástandinu í kringum olíumarkaðinn ágætlega. Enginn hefur fullkomna hugmynd um hvað er að gerast, menn eru vinnandi sitt í hverju horninu og algjört siðleysi ríkir. Já og bandaríkjamenn stjórna svo mest öllu þrátt fyrir allt.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (2)

Veronika ákveður að deyja
Posted on 06.03.07 by steini @ 14:10

Las bókina Veronika ákveður að deyja eftir Paulo Coelho (gaurinn sem gerði Alkemistann) í gær. Kom mér skemmtilega á óvart og var mun betri en Alkemistinn, sem mér reyndar fannst frekar léleg. Var reyndar búinn að ímynda mér endann aðeins áður en bókin kláraðist, en sagan fékk mann engu að síður til að hugsa mikið og var góð sem slík.
Fannst eitt quote úr bókinn vera mjög gott og læt það fylgja:

(verið að tala um Adam, Evu og aldingarðinn)

Ef Mari hefði verið kölluð til að verja hjónin hefði hún eflaust ákært Guð fyrir “brot á stjórnarháttum “ vegna þess að auk þess að hafa látið tréð vaxa á röngum stað lét hann engar viðvaranir vera né heldur lét hann gerði vaxa í kring og láðist að fylgja lágmarkskröfum um öryggi og stofnaði þannig í hættu þeim sem fóru fram hjá trénu.

Annars var maður bara duglegur um helgina. Hélt grill á föstudaginn, tók svo til í sameigninni og herberginu á laugardaginn, þvoði allan þvott, tók á móti pabba í smá kaffi, las fyrrnenfda bók og kíkti í göngutúr. Auk þess náði maður að sofa vel út og það var nauðsynlegt fyrir komandi vikur í feminismanum :D

Er svo kominn með miða á Air tónleikana 19. júní í laugardalshöll. Það verður mögnuð upplifun.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (2)

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér