will the last person to leave Britain please turn out the lights
Posted on 09.30.07 by steini @ 16:57

Eins mikið og ég er nú á móti því að fjölmiðlar sem titli sig sem fréttamiðla reki áróðursstarfsemi eigendanna, þá verður það bara ekki tekið af The Sun að þeir eiga örugglega eina bestu forsíðufyrirsögnina.
Á kosningadag 1992 í Bretlandi var þetta fyrirsögnin: “If Kinnock wins today will the last person to leave Britain please turn out the lights.” (en Kinnock þessi var formaður verkamannflokksins sem tapaði)
will the last person to leave Britain please turn out the lights


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (2)

hvað er heim?
Posted on 09.30.07 by steini @ 11:58

Þá er ég kominn “heim”. Þetta heim hugtak er reyndar orðið frekar flókið þessa dagana. Meina hvað er heim? Ég átti heima í Garðabænum frá því að ég var 12 ára og þangað til ég var 20 ára. Síðan flutti maður uppá Bifröst (reyndar fyrst í sumarbústað rétt hjá) og það varð hálfgert heimili manns, en samt fór maður oftast í bæinn um helgina “heim til sín”. Reyndar bjó ég aldrei lengur en 6 mánuði á sama staðnum uppí Norðurárdal, þannig að spurning hvort það sé eitthvað heimili frekar en t.d. Kórea núna. Núna er staðan þannig að ég á eftir svona 3 mánuði hérna í þessari íbúð sem skólinn er að skaffa okkur Palla. Getur það flokkast sem heimili? Meina, 1 mánuður búinn og 3 mánuðir eftir í umhverfi sem er svo framandi að meira að segja að panta McDonalds getur orðið erfitt. Og hvert er stefnan sett svo? Jú vonandi í eitthvað herbergi á Bifröst, en það er alveg undir Öldu (sú sem sér um húsnæðismálin uppfrá) hvað ég fæ úthlutað. Get því ekki sagt að ég hugsi til Bifrastar sem heimilis, nema þá í mjög breiðum skilningi, þ.e. með að segja að skólaumhverfið allt þarna uppfrá sé heimilið mitt. En ég get ekki einu sinni hugsað um mitt eigið litla private herbergi þarna uppfrá þar sem ég á ekkert þannig og fæ örugglega ekkert að vita hvaða íbúð ég fær úthlutað fyrr en einhverntíman í des. Það er því spurning hvort ég sé heimilislaus maður, sem er samt með þak yfir höfuðið…

Ferðalagið frá Singapore heppnaðist mjög vel að mestu leiti. Sváfum báðir bara meiri hlutann af leiðinni og svo las ég einstaklega fræðandi bók um japanskt samfélag sem heitir “Tabloid Tokyo 2: 101 tales of sex, crime, and the bizarre from Japan’s wild weeklies”. Þetta er sem sagt bók sem tekur furðulegar fréttir úr Japönskum slúðurtímaritum og bætir við smá commentum frá þeim sem setja bókina saman (þeir eru frá US, Canada, Ástralíu og fleiri stöðum). Bókin er mjög misgóð, sumar af þessum fréttum eru algjör snilld og setja punktinn yfir i-ið varðandi þær hugmyndir sem maður hefur um Japan, meðan aðrar fréttir eru frekar flatar. Allavega var þetta fín bók til að lesa í fluginu.
Þegar við komum svo til Kóreu og allt búið að ganga mjög smooth fyrir sig, þá enduðum við með að taka ranga rútu heim (enda gaurinn sem var að selja miðana í rúturnar ekkert of góður í ensku - surprise surprise…). Það endaði svo með því að rútubílstjórinn skipaði okkur að fara út á endastöðinni, sem var einhverstaðar sem var allavega ekki þar sem við búum. Með okkar gífurlega skilning á almenningssamgöngum Seoul og ofurlöngun í að vera aðeins ævintýragjarnir klukkan hálf 12 á laugardagskvöldi, þá ákváðum við bara að pikka næsta taxa og láta hann skutla okkur heim. Og þó hann hafi keyrt okkur í svona 15 min, þá verður ekki hægt að segja annað en að við höfum verið frekar nálægt íbúðinni okkar - hefðum getað verið óheppnir og verið svona 1,5 klst í burtu.

Það eru svo komnar nokkrar nýjar myndir frá Singapore inn. Þar gefur að líta t.d. ferðina í dýragarðinn, sightseeing um borgina, smá djamm og svona. Einnig eru nokkrar myndir sem ég fékk frá Sibbu (vegna batterísleysis) þar sem meðal annars má sjá skot frá Long Bar á Raffles Hotel (án efa einu af flottari hótelum í Singapore) þar sem við fengum okkur Singapore Sling koktailinn, en hann var einmitt fundinn upp þar :)
Ég veit, algjör plebbaskapur, en samt ótrúlega góður drykkur og fáránlega flott design á barnum, þér líður eins og þú sért á officera klúbb á einhverri af nýlendum breta (sem þetta hótel átti örugglega að vera fyrst).

Svona til útskýringar fyrir fólk þá er þessi mynd tekin af einhverju lengsta Info borði sem ég hef séð ever. En svo var bara in kona sem sat við einn endann á borðinu og þetta risapláss var allt algjörlega ónotað :)
Þessi mynd er svo af stelpu í fáránlega stuttu minipilsi. Jújú, maður sá mikið af stuttum pilsum í Singapore, en þetta toppaði allt. Svo var hún líka að missa sig í dansinum á gólfinu.
Þessi mynd er af India hverfinu, en þar eru frekar lág, en litrík hús.
Þetta er svo hæstirétturinn í Singapore. Gamla húsið (sem er í forgrunni) var orðið aðeins of lítið þannig að þeir ákváðu að reisa nýtt og frekar space-að hæstaréttarhús, en það sést einmitt hægra megin á myndinni og lítur út fyrir að vera fljúgandi furðuhlutur.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kórea og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (3)

Nano
Posted on 09.28.07 by steini @ 12:23

Búinn að festa kaup á nýja ipod nano spilaranum, þriðju kynslóðinni. 4 gb útgáfan kostaði mig 8400 hérna í singapore í stað 28.000 heima. Finnst þetta sýna dálítið vel hversu rándýrt þetta er heima. Palli keypti sér svo ipod video 80gb á einhvern 12.000 í stað 56.000 heima!
ipod nano

Á morgun förum við Palli svo heim til Kóreu og aftur í námið og crazynessið þar. Vonandi verða moskítóflugurnar farnar og orðið aðeins kaldara :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (2)

singapore
Posted on 09.26.07 by steini @ 13:24

Þá eru 6 dagar búnir í Singapore. Lífið hér er allt öðruvísi en í Seoul, allt miklu rólegra, þægilegra, vestrænna og MIKLU hreinna (enda sérðu ekki rusl á götunum hér). Við komum eftir 10 tíma ferðalag á föstudagseftirmiðdag hingað og fórum beint á djammið með stelpunum og bresku strákunum sem búa með þeim. Enduðum inná Ministry of Sound og ég get ekki sagt að ég hafi verið ósáttur - þvílíkur staður. Var lengst af á disco gólfinu enda var það klárlega svalasti staður hússins. Kvöldið var mjög skemmtilegt og hápunktarnir örugglega þegar ég og Hildur fuckuðum all svakalega í einum innfæddum (gaur sem sagði um eina huggulega stelpu sem við héldum að hann væri að hössla “nei ég er ekki að hössla þessa stelpu, ég er með standard”, meðan stelpan var hliðin á honum - ég og hildur misstum andlitið), að sjá hóp af ladyboys í landi þar sem samkynhneigð er bönnuð og að þurfa að kvitta undir eitthvað skjal frá öryggisvörðum til að fá myndavélina mína aftur (var skilin eftir á borði í 2 min).
Næstu daga fórum við svo í dýragarðinn og eyddum heilum degi á eyjunni Santosa (sem er svona resort island rétt fyrir utan singapore) þar sem við skoðuðum fiðrildasafn, sjávardýrasafn, fórum í luge (dót sem þú rennir þér á niður brekku), fórum í 4d bíó og enduðum svo í 150m háum útsýnisturni. Ég og Palli kíktum svo í eitt mall (það er meira af verslunarmiðstöðvum hérna heldur en hótelum) og fórum svo í sight seeing tour um miðbæinn. Í dag fórum við svo í klifurhús í einhverjum klikkuðum útivistar/íþróttaklúbbi hérna og palli sagði að þetta væri lang stærsta aðstaðan sem hann hefði séð.
Af þessum 5-6 dögum hef ég svo afrekað að vera veikur í 3 og núna loksins er þessi hálsbólga að fara, enda ekki seinna vænna, djammkvöld í kvöld :D
Henti svo inn nokkrum myndum, en þær líða fyrir það hve óduglegur ég er að taka myndavélina með mér þegar við förum eitthvað, gleymi henni venjulega :S
Á reyndar enn nokkrar myndir úr sight seeinginu, en það kemur seinna.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (2)

Animals
Posted on 09.20.07 by steini @ 15:48

What is your favorite animal? I like penguins.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

singapore baby
Posted on 09.19.07 by steini @ 7:17

Rigning í Kóreu í dag og reyndar smávegis líka síðustu daga. Merkilegt að áhald sem maður hefur eiginlega aldrei notað á ævinni sé orðinn að hversdagslegum hlut hérna hinu megin á hnettinum. Það er auðvitað regnhlíf sem er orðin svona stór þáttur af lífi mínu. Kemur með manni næstum hvert sem maður fer og skýlir manni fyrir dropunum. Reyndar var svo rosaleg rigning í dag á leiðinni úr skólanum að maður varð blautur í tærnar bara af því að labba í vatnsflaumnum.

Eftir 2 daga fer ég víst til Singapore. Það er komið að thanksgiving hátíð Kóreubúa og hún er á mán,þrið og mið. Svo á föstudaginn er afmæli konfúsíusar og þessvegna er nemendum líka gefið frí á fimmt svo það geti gert eitthvað í fríinu. Við Palli ætlum að heilsa uppá þær stöllur Hildi og Sibbu, en þær hafa lofað okkur að sýna okkur allt sem vert er að sjá í landinu og þar í kring. 11-13 tíma ferðalag er reyndar ekki efst á óskalistanum þegar kemur að föstudegi, en það verður bara að hafa það. Komum svo til baka á þar næsta laugardegi (8 daga ferð).

Í nótt fékk ég hálfgerða uppljómun. Hún var í formi námsefnis sem heitir Theories of national security. Þar las ég grein eftir bandarískan höfund þar sem hann tekur fyrir A-Asíu og þær ráðstafanir sem US þarf að gera til að halda völdum þar, eða ef þeir ættu að draga sig í hlé. Merkilegast við þetta er að þótt maður pæli oft á tíðum í utanríkisstefnum annara landa og afhverju US er að hegða sér svona og svona, þá fékk ég alveg töluvert nýja sýn á þetta mál allt (og á sama tíma missti ég mig í hugsunum um hversu mikið alþjóðastjórnmál líkjast flóknu, stóru og hættulegu Risk spili) og fannst þetta mun meira áhugavert en áður (sem var þó ekki lítið). EN já, með þessari grein fattaði maður dálítið hvernig viss siðblinda kemur fyrir í bandarískri utanríkispólitík og í leiðinni verður maður smá smeykur um að þeir gæti alveg eins hagað sér eins og allir sem maður kallar hryðjuverkamenn - þeir hugsa jú næstum bara um eigin rass.
En það var samt gaman af þessu og ég vann einhverja 5 bls ritgerð úr þessu sem ég flutti í tímanum í dag, held bara að það hafi gengið ágætlega.

Það er örugglega erfitt að vera Palli. Að gleyma öllu sem sagt er við mann og að gleyma því að gera ýmsa hluti sem ætti að vera löngu búið að gera - þar fyrir utan, hver fer með eitt kort til útlanda (sem hann heldur að sé debitkort) og fattar úti að það þarf pin númer til að nota hraðbanka….


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (3)

Tapad fundid
Posted on 09.17.07 by steini @ 3:15

Um helgina vard eg teirrar gaefu adnjotandi ad na ad tyna toskunni minni, sem medal annars hafdi ad geyma vegabrefid mitt, ipodinn og slatta af pappirum tengdum skolanum. I dag fann eg svo toskuna og eg er ekki fra tvi ad madur hafi brosad sma og tad hafi lett yfir manni. Tetta var serstaklega anaegjulegt i ljosi tess ad vid erum ad paela ad nyta naestu viku i sma ferdalag, tar sem tad er thanksgiving vika her i koreu og fri i skolanum… ta er einmitt ekki slaemt ad hafa vegabrefid nalaegt ser :)

Er ennta ad paela sma i tessari matargerd fyrir skolahatidina. Er ad paela i ad gera lummur eda ponnukokur og svo graflax med graflax sosu. Vaeri lika gaman ad geta gert sma brunadar kartoflur, en eg veit ekkert med hverju eg aetti ad hafa tad.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (6)

Hjálp með íslenskar uppskriftir
Posted on 09.15.07 by steini @ 5:24

Nú vantar mig smá aðstoð frá ykkur sem lesið þetta. Ég og palli vorum beðnir um að vera með einhvern íslenskan mat á boðstólunum á afmæli skólans einhverntíman í okt. Þar sem hráefni til íslenskrar matvælaframleiðslu eru mjög takmörkuð hér, þá hefur mér ekki dottið neitt sniðugt í hug yfir það sem ég gæti hugsanlega keypt hér og gert eitthvað sniðugt. Einhverjar hugmyndir fyrir þjóðlega rétti þar sem notast er við hráefni sem gæti fengist í kóreu?

Í gær kíktum við aðeins á lífið. Til að byrja með ætluðu skiptinemarnir að hittast á einhverjum frekar litlum klúbb í miðbænum. Í hellirigningu, þar sem ég er ekki frá því að ég hafi séð einhverja fiska synda á götunum, tók það mig og þá sem voru með mér í leigubíl (leigubílstjórinn vissi ekki almennilega hvar þetta var svo hann droppaði okkur út á næstu subway station) u.þ.b. 45min að finna helvítis staðinn. Allir sem við töluðum við og bentu okkur á staðinn gáfu mismunandi upplýsingar og við enduðum á að labba 2 hringi um hverfið áður en ein stelpa næstum því leiddi okkur að staðnum. Á þeim tíma var ég orðinn svo blautur að ég hefði unnið hvaða blautbola (skyrtu) keppni sem er. Samt sem áður reyndi ég að skýla mér með aumri regnhlíf. Svo loks þegar ég komst inn á þennan stað vildi allt fólkið fara á annan stað sem væri þarna rétt hjá. Því var aftur haldið út í rigninguna, en í þetta skipti í stutta stund, þar sem við fundum hinn staðinn mjög fljótlega.
Sá staður var heljarinnar klúbbur og samkvæmt Palla var þetta hans fyrsta skipti á svona stað. Það var líka ástæða þess að hann var eitthvað mjög efins með að byrja að dansa í upphafi. En fljótlega var allur hópurinn kominn á mitt dansgólfið og að missa sig. Það var einmitt þá sem einhver breti eða bandaríkjamaður kom upp að mér og kallaði á mig David! Svo var hann eitthvað að reyna að faðma mig og fór að segja mér að ég væri David Hawkey eða David Haskey eða eitthvað álíka og að ég væri einhver besti mótorhjólagaur sem hann hefði séð. Þrátt fyrir mikla trú á sjálfum mér, þá var ég samt ekki alveg að kaupa þetta, þar sem ég hef jú aldrei keyrt mótorhjól sjálfur og satt best að segja hef ég mjög lítinn áhuga á þannig gripum. Þannig að þegar hann var alveg að fara að missa sig af spenningi reyndi ég að troða því að að ég væri ekkert þessi David, ég væri bara Steini frá Íslandi. Flestir hefðu væntanlega bara viðurkennt mistök sín við svona tækifæri og hætt að bögga mann, en nei, ekki þessi dúddi. Hann hélt bara áfram allt kvöldið að koma reglulega til okkar og var alltaf að tala um þennan David og að reyna að tala við mig um mótorhjól. Alveg orðið pínu pirrandi svona til lengdar.
Einn í hópnum varð svo fyrir þvílíkri viðreynslu á dansgólfinu. Hef ég ekki séð viðlíka dýnamíska hegðun kvennþjóðarinnar í strákamálum síðan Dóra ruddist inná Hlölla greyið og jós úr skálum reiði sinnar um að hann væri eitthvað að stela frá sér karlefni, þangað til hún fattaði að hún var í röngu herbergi..

Um daginn varð ég fyrir sérstakri lífsreynslu. Einhver fullur Kóreubúi (í jakkafötum og flotteríheit) var með félaga sínum fyrir utan blokkina okkar. Einhverra hluta vegna var hann syngjandi fullum hálsi eitthvða kóreskt lag sem minnti mig skuggalega mikið á lagið Undir bláhimni, blandað við klisjukennda ástarvellu. Svona fyrir utan hvað þetta var fáránlega fyndið, þá fór ég að hugsa um það hvort Undir bláhimni væri nokkuð stolið… :S

Á föstudaginn fórum við Palli loks í fyrsta tímann í Reading in Confucism. Lesefnið er mjög áhugavert og er bók sem fjallar um helstu rökræður heimspekinga í austur asíu um konfúsisma á 16. öld (minnir að það hafi verið 16. öld) og hvernig þessar rökræður leiddu til þróunar í neo-confucism o.s.frv. Kennslu fyrirkomulagið er aftur á móti eitthvða furðulegt og greinilegt að við gleymdum að lesa smáa letrið um kúrsinn, því þetta er einhver samblanda af heimspeki og ensku kúrs fyrir kóreubúa. Þannig að kennarinn útskýir öll orð sem gætu hugsanlega verið erfið fyrir kóreubúa (það eru mörg orð) í þaula á töflunni. Þetta verður til þess að heimspeki umræða verður af skornum skammti. Við Palli töluðum aftur á móti við hann eftir tímann og hann var alveg til í að hafa þetta aðeins sveigjanlegra fyrir okkur og kanski frekar að láta okkur bara lesa eitthvað aukaefni og jafnvel gera ritgerðir eða álíka.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (7)

Allt á fullu í austrinu, 9 klst á undan öðrum
Posted on 09.10.07 by steini @ 13:22

Þá er fyrsta alvöru vikan í skólanum að hefjast. Í dag var tími í Theories of national security hjá kennara sem er alls ekkert svo slæmur í ensku, en nær einhvernveginn að gera námsefnið (allavega hingað til) ekki alveg nógu áhugavert. T.d. talaði hann allan tímann í dag bara um eitthvað common sense sem hann hefði getað komið út úr sér skiljanlega á 5 min max. Við Palli náðum auðvitað að rugla saman tímum núna fyrsta daginn og vorum alveg búnir að troða því í hausinn á okkur að tíminn í dag væri kl 9:15 en ekki 9:00. Þegar við mættum “tímanlega” í stofuna kl 9:10 komumst við að því að það er tíminn á morgun (Understanding Korean society) sem er kl 9:15. Vegna þessarar seintkomu náði kennarinn auðvitað að troða smá skömmum og ávítum á okkur í gegnum fyrirlesturinn þegar hann var að tala um gildi og traust í félagslegum kenningum og tók sem dæmi nemendur sem kæmu seint í tíma…. Þeir væru auðvitað ekki nógu traustir.
Kennararnir fúnkera annars flestir sem ágætis náungar með slatta reynslu. Sá sem kennir okkur Economic development in Korea and democracy virkar reyndar sem sá öflugasti, en hann er með doctorsgráðu í hagfræði frá háskóla í Bandaríkjunum, búinn að vinna í think tank um efnahagsstefnu fyrir fjármálaráðuneytið í 5 ár, búinn að vera aðstoðarmaður fjármálaráðherra og ég veit ekki hvað og hvað.

Á föstudaginn var ákveðið að hafa bara rólegt pubbakvöld og fara á local pubbinn, drekka nokkra bjóra og fara í pool. Það endaði svo reyndar með því að öllum fannst mega sniðugt að kíkja á kareoki, en þar fékk ég að njóta mín í botn innan um aðra rammfalska einstaklinga.
Á laugardaginn ætluðum við Palli að fara aftur á got skrall, en einhvernveginn klikkaði allt saman og ekki varð úr neinu, nema þá hvað ég rústaði Palla í bæði borðtennis og pool svo illilega að hann var í frekar Pallalegu fíluskapi það sem eftir var af deginum. Á sunnudaginn forum við aftur á móti að horfa á hm í fótbolta u17 ára. Ein austurrísk stelpa í skiptináminu hafði setið hliðiná einhverjum fifa dude í flugvélinni hingað og hann sagði henna bara að hafa samband við sig ef henna vantaði miða. Það endaði með að við fengum 36 miða í vip sætin á vellinum. Þar byrjuðum við að horfa á leikinn um þriðja sætið þar sem Þjóðverjar unnu Ghana frekar óverðskuldað að mínu mati. Ghanamenn mun öflugari mest allan leikinn og börðust svo eins og ljón í seinni hálfleik. Þjóðverjar áttu aftur á móti mjög flott mark á lokamínútunum og það verður ekkert tekið af þeim. Ég náði svo góðri mynd af sjálfum Franz Beckenbauer og einum af skiptinemunum (man aldrei hvað hann heitir) sem sagði að Beckenbauer væri hans helsta átrúnaðargoð. Úrslitaleikurinn átti svo að byrja klukkan 19:00, en ég Palli og nokkrir aðrir einstaklingar nenntum ekki að bíða lengur svo við hoppuðum bara heim og slepptum því að sjá markalausan leik milli Nígeríu og Spánar (Nígería vann svo í vító). Í staðinn fórum við á Kóreskan veitingarstað og borðuðum svona hefðbundinn kóreskan mat, sem er btw mjög góður þótt ég sé ekki alveg ennþá búinn að sætta mig við að grunnundirstaðan í matnum sé bara hrísgrjón, en ekki einhverskonar brauð/kornmeti eins og maður venst heima og í Evrópu. Það sem mér finnst samt hvað sérstakast við þennan leik var hve öflug gæslan var. Það voru örugglega háttí 30 sérsveitarútur fyrir utan leikvanginn og starfsmenn allsstaðar (á þessari mynd sést bara í svona 3 rútur, en þær voru allan hringinn kringum völlinn). Ætli starfsmenn og lögregla hafi ekki náð uppí næstum 1/3 af fólksfjöldanum sem var þarna (völlurinn var ekki fullur)
Seinna um kvöldið kíktum við svo í afmælispartý hjá 3x kóreubúum úr skólanum sem var á bar hérna rétt hjá. Þar fengum við Palli nokkra til að fara í spurningaleikinn (Hildur og Sibba skilja þetta allavega) við góðar undirtektir. Horfðum svo uppá einhverja afmælishefð sem gengur út á að slatta af fáránlegu sulli er hellt í bjór viðkomandi afmælisbarns og hann svo látinn drekka það (já ógeðsdrykkur).
Þar sem Kóreubúar eru frekar íhaldssamir á fjölskyldugildin fannst honum Mathieu svo mjög sniðugt að tala um samkynhneigð við þá kóreubúa sem voru næst okkur. Fór að spurja hvort allar stelpur sem haldist í hendur séu lesbíur (þær gera mjög mikið af því hér, eitthvað svona bestu vinkonur haldast í hendur og þar sem mjög lítið er talað um samkynhneigð hér, þá er enginn að halda því fram að það sé eitthvað meira en bara vinátta þarna á bakvið). Þegar Tech (einn af buddy-unum úr skólanum hér) sagði að svo væri ekki fór Mathieu að segja að hann skildi það ósköp vel. Í Frakklandi, þar sem hann ætti heima, væri það nefnilega venja að strákar sem væru bestu vinir færu í sleik – bara svona uppá vinskapinn. Það fannst Tech og kóresku félögum hans reyndar full langt gengið og spurðu margsinnis hvort þetta væri ekki bara djók. Ég sagði að þetta væri bara djók, en Mathieu var fljótur að „leiðrétta“ mig og segja að þetta væri ekkert djók, franskir karlkyns vinir væru mikið í því að slumma hvorn annan. Þetta var svo aldrei leiðrétt neitt meira. Við vorum svo komnir heim kringum miðnætti, enda skólinn að byrja daginn eftir.

Við komumst svo að því um daginn þegar við horfðum á æfingu hjá skólaliðinu í amerískum fótbolta að það væri alls ekki sport fyrir okkur. Sjaldan hef ég séð jafn mikla pussuíþrótt og þetta. Eina sem þeir gerðu var að öskra á hvorn annan og svo var ekki neitt action! Klárlega vonbrigði. Í staðinn er ég búinn að senda mail á handboltasambandið hér úti og spurja um lið sem hægt væri að æfa með. Er enn að bíða eftir svari.

Í dag á labbi heim á leið frá skólanum rak Palli svo augun í skilti um trommunám. Núna er hann sem sagt kominn í nám hjá Kóreskum gaur sem skilur ekki eitt orð í ensku, en dýrkar Bon Jovi og Metallica. Þá þarf ég að byrja að finna mér skemmtilegt hobbý á mánudögum og miðvikudögum. Spurning jafnvel að nota þann tíma í að æfa sig betur í klifrinu, en Palli dró mig í einn tíma um daginn og það var bara helvíti gaman, reyndi vel á hendurnar og maður var stirður daginn eftir, en ég held að allt í allt hafi ég bara verið ágætis byrjandi.

Ég þarf svo að reyna að fá kjark í það að fara í klippingu hér (kominn með smá lubba), er ekki alveg búinn að sannfæra mig um að það sé góð hugmynd að fara á einhverja stofu og vona að sá sem klippi mig sé að skilja mig 100%, en snoði mig ekki eða eitthvað.

Kóresk skilti geta verið mjög fyndin. Þetta er t.d. eitt af þeim “Hello, We are slow..” Hvað var markaðsfræðingurinn þeirra að pæla? Svona án djóks, þetta hljómar eins og að fólkið sem vinni þarna sé þroskaheft!

Að lokum vill ég svo lýsa yfir frati á moskítóflugur. Þetta eru viðbjóðslegar pöddur sem ráðast á mann þegar maður á síst von á því! Þegar það er myrkur og maður er sofandi! Og hvernig lýtur maður svo út eftir þetta? Jú ég er eins og sprautufíkill á höndinni og palli t.d. búinn að fá bit á augnlokið. Er þessum flugum ekkert heilagt? Ekkert siðferði í gangi eða hvað?

Myndir sem ekki er linkað á í færslunni má svo sjá í myndaalbúminu.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (5)

meira af dubai
Posted on 09.07.07 by steini @ 11:37

Þessi mynd sýnir nokkuð greinilega hvað er að gerast í dubai í dag og síðustu árin. Allt hreinlega á uppleið í bókstaflegri merkingu.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: Ekkert ennþá

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér