ruslaslagur
Posted on 10.22.07 by steini @ 5:39

Helgin búin og komið að prófaviku. Fórum í eitt próf í dag sem er væntanlega það þyngsta, svo kemur annað sem er væntanlega smá erfitt á morgun og vonandi létt próf á föstudaginn. Prófið í dag gekk bara ágætlega. 6 spurningar um national security og 75 min til að svara. Var með 4 af þessum spurningum nokkuð góðar, 1 ágæta og 1 frekar slappa. Vona samt að ég fái einhver stig fyrir hana (mismunandi vægi fyrir hverja spurningu og þessar 2 sem gengu ekkert svo vel voru lágt eða miðlungs rate-aðar)
Það eru svo komnar inn myndir frá föstudagskvöldinu, en þá héldum við Palli partý í íbúðinni og kíktum svo smá út eftir það með fólkinu. Laugardagurinn var svo bara tekinn rólega, tekið til eftir partýið og aðeins kíkt á lærdóm. Einnig lentum við í ruslaslag við húsvörinn en hann öskraði eitthvað á okkur þegar við vorum á leið út með ruslið. Loksins kom annar Kóreubúi okkur til aðstoðar og útskýrði fyrir okkur að ruslið þyrfti að vera í ákveðnum pokum (þannig skildum við hann allavega). Því fórum við út í búð og keyptum þannig poka og allt gekk upp þann daginn. Engu að síður líður manni núna eins og glæpamanni þegar maður fer út með ruslið, veit ekkert hvort maður er að gera það rétt eða ekki…

Undanfarna daga er ég búinn að vera aðeins að kanna nýja tónlist. Fyrst af öllu er það nýi Radiohead diskurinn. Hef hingað til ekki verið neinn stór aðdáendi, þótt mér finnist þetta góð hljómsveit. Nú er ég búinn að hlusta á In Rainbows 3-4x og þótt þetta sé góður diskur, þá finnst mér hann ekki eins frábærlega góður og margir eru að tala um. Diskurinn rennur rosalega vel í gegn, en það vantar eitthvað meira finnst mér. Einhverja góða hápunkta. Reyndar eru lögin Weird Fishes/Arpeggi og 15 Step að mínu mati þau bestu, en það vantar eitthvað meira. Þetta er alls ekki það besta sem radiohead hafa gert.
Næst er það nýi diskurinn hjá Kent, Tillbaka till samtiden. Það sama á við um Kent og Radiohead, ég bjóst við mun meira af þeim, þótt þetta sé ágætis diskur. Diskurinn er aðeins lágstemmdari en fyrri verk þeirra Kent manna sem ég hef hlustað á, en hefur að geyma töluvert meiri elektróník, sem ég myndi helst vilja í burtu frá þeirra verkum - en það er ég. Er ekki enn komin með nein uppáhaldslög, en þrátt fyrir það held ég að diskurinn muni vinna á með meiri hlustun, jafnvel betur en Radiohead diskurinn.
Fann svo á tölvunni diskinn Has Been með William Shattner, en þeim manni kynntist ég þegar Sibba leyfði mér að hlusta á Common People (pulp lag) í hans útsetningu á síðasta ári. Gleymdi svo alltaf að hlusta almennilega á diskinn, en hann er að koma mér skemmtilega á óvart. Meðan sumt á disknum er næstum algjört rugl og rusl, þá er annað algjör snilld. Common people stendur klárlega uppúr, en þar á eftir eru t.d. It Hasn’t Happened Yet, Has Been og Real.
Það þarf svo varla að taka það fram að soundtrackið úr Death proof er að standa undir væntingum. Quentin klikkar ekki frekar en fyrri daginn og maður kemst aftur í svipaðan fíling og þegar maður horfði á myndina við að hlusta á soundtrackið.

He wears a red bandana, plays a blues pianna, In a honky-tonk, down in Mexico

Síðasti diskurinn er jafnframt sá sem ég hef fílað hvað mest, eiginlega bara langt síðan ég hef orðið svona hrifinn af tónlist við fyrstu hlustun, er diskurinn Back to Black með Amy Winehouse. Ég hefði auðvitað fyrir löngu átt að vera búinn að uppgötva kjellu, en sögur um 23 ára stelpu sem hagar sér eins og blanda af Lindsey Lohan og Brittney Spears hefur haldið mig í órafjarlægð frá því að langa að hlusta á hana. Ekki bætir svo að ég er hálf útvarpsheftur og er sjaldan að reyna að koma mér inní mainstream hlustun. En boy oh boy, djöfull er þetta mikil snilldar tónlist. Þessi rödd er fuckin bjútífúl og þessi blanda við 50′-60′ frank sinatra og co/jazz/soul er algjörlega að gera sig. Allur diskurinn er í heild frábær, þótt lagið You Know I’m No Good standi uppúr. Þetta er klárlega diskur sem ég mun fjárfesta í næst þegar ég kem við í geisladiskabúð, ekki spurning. Og var ég búinn að segja hvað hún er með töff rödd??? djöfullsins snilld.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Kúltúra og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (5)

fastir
Posted on 10.18.07 by steini @ 6:32

Núna erum við Palli staddir í íbúðinni okkar og orðnir of seinir í tíma. Þannig vill til að einhverra hluta vegna virkar læsingin á útidyrahurðinni okkar ekki. Hún bara opnast ekki. Og þetta er ekki fyrsta skiptið sem þessi læsing er með bögg. Hefur 3 orðið batterýslaus (þetta er svona rafmagnslæsing með talnalás) og 2 farið að pípa á fullu. En núna er þetta komið úti fyrir öll mörk. Að við læsumst inni útaf þessari helvítis læsingu er bara rugl! Hvað myndi gerast ef það kviknaði í? Æjjj æjj, gaurarnir á 7. hæð eru fastir inni, ansans hurðin.
Og ekki bara nóg með það, því þá er Palli líka kominn með vott af innilokunarkennd.

Jimmy frá alþjóðskrifstofunni er búinn að koma og gat ekki reddað neinu, en hringdi á viðgerðarmann sem ætlar að reyna að laga þetta… Þannig að við missum örugglega af tímanum

Annars kíktum við Palli á fyrirlestur í skólanum um daginn þar sem hagfræði nóbelsverðlaunahafinn Edmund Phelps hélt fyrirlestur um áhrif efnahagslegra breytinga á einum stað í heiminum á restina - talaði sérstaklega um áhrif sem gætu orsakast af niðursveiflu í US. Áhugaverður fyrirlestur þótt maður hafi ekki náð öllu sem hann var að tala um.

Er enn að bíða eftir þessum myndum þegar ég var í þjóðbúningnum. þær koma strax og ég finn þær á netinu.
Hér má svo sjá hunda í þessum sama búning :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea og Vesen
Svör: It´s all happening! - (5)

þjóðbúningar
Posted on 10.12.07 by steini @ 9:56

Þessa vikuna er búið að vera festival hér í skólanum þar sem t.d. hafa verið haldnir tónleikar, kvikmyndasýningar, chill/partý á lóð skólans á kvöldin o.s.frv. Hátíðin klárast svo á morgun með einhverjum svaka tónleikum, en búist er við um 15.000 manns. Ég er búinn að kíkja á eitt svona tónleikakvöld og líkaði bara mjög vel, þrátt fyrir að þemað það kvöldið hafi verið metall. Maður svona aðeins kynntist kóreubúum betur og borðaði framandi mat (þurkað squid (er það kolkrabbi?) og fleira).
Í kvöld ætlum við Palli svo í partý í trommuskólanum sem palli er að æfa í. Það verður án efa skrautlegt, en tópas flaska verður tekin með :)
Í dag var svo einn hluti af hátíðinni sem skiptinemarnir voru beðnir að taka þátt í. Ég skráði mig í það og mætti svo galvaskur í morgun á alþjóðaskrifstofuana og átti að dressa mig upp í kóreska þjóðbúninginn. Svo var ég látinn fara, ásamt fríðu föruneyti annara skiptinema (sem voru líka í allskonar þjóðbúningum) uppá grasflötinn fyrir framan viðskiptabygginguna þar sem fullt af myndum voru teknar, sjónvarpið mætti á staðinn og fleira. Var ekki með mína myndavél, en fæ vonandi myndir frá öðrum skiptinemum. Hendi þeim inn við tækifæri.

Þegar þetta allt var yfirstaðið og maður kominn á netið fréttir maður svo bara að það sé allt í upplausn í reykjavík. Pólitíkusar hlaupi um stræti og torg og lemji mann og annan, þó að mesta löngunin sé samt að lúskra meira á honum Binga. Get nú ekki sagt að ég hafi náð að afla mér nægra upplýsinga til að gagnrýna eitthvað í þessu, en það sem mér fannst kostulegast í að lesa MBL var að sjá hvaða stöðu Bingi/framsókn fengi í nýrri borgarstjórn:

Samfylkingin mun leiða starf nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í mennta- og velferðarmálum auk málefna Orkuveitu Reykjavíkur. Vinstri græn munu leiða starf í jafnréttis- og mannréttindamálum, Framsóknarflokkurinn leiðir starf meirihlutans í málefnum Eignasjóðs og F-listi mun meiða störf heilbrigðisnefndar.

Það er bara kanski ég, en mér finnst það ekki nógu traustvekjandi að framsókn hafi aðgang að einhverju sem heitir sjóður :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (5)

tveir snillingar
Posted on 10.08.07 by steini @ 14:44

Ég er byrjaður að fíla ljóð… eða allavega kúltúrinn í kringum ljóð. Palli er nefnilega upprennandi ljóðaskáld sem skrifar einhverskonar haiku, sem hann sjálfur segir að sé vinsælasta ljóðaform í heimi. Þessi ástríða hans hefur leitt hann inná vefsíðu sem sérhæfir sig í tengja saman hæfileikarík ljóðskáld sem geta svo commentað á verk hvers annars. Á vafri um þessa síðu rakst ég á alveg yndislegan prófíl stelpu sem er 21 árs frá Columbia í US. Í info um sjálfa sig lét hún þetta:

I like to write and sing but I’m not organized. One of my favorite little things in life is when you can lick your finger and pick something up with it.

Afhverju getum við ekki öll verið svona nægjusöm? Þessi stelpa hefur fundið upp lykilinn að lífshamingjunni og ekkert minna en það.

Hinn snillingurinn er svo Mathieu frá frakklandi. Fyrir utan að vera hvað mest aktívur í að gera allskonar skrítna hluti, eins og að vera sakaður af herbergisfélaga sínum að hafa ætlað að skíta í rúmið hans þegar Mathieu var fullur, þá fór hann til Kína með slatta af fólki í fríinu og gerði það að markmiði að hlaupa að eins mörgum lögreglum og hann gat og láta taka myndir af sér með þeim.
Hér er ein af þeim:

mathieu

Á efri hæðinni er einhver að æfa samblöndu af spretthlaupi og þrístökki án atrenu, eða þá að hann er að mastera fíladansinn.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (2)

bílaleiga og megas
Posted on 10.08.07 by steini @ 5:18

Lítið að segja þessa dagana. Er að vinna verkefni fyrir kúrsinn Understanding korean society, auk þess að browsa um netið og athuga hvað kosti að leigja bílaleigubíl eina helgi. Hjá Hertz (sem er væntanlega í dýrari kantinum) er það ekki nema um 10.000 ISK fyrir fínan 4/5 dyra bíl. Maður athugar hvort maður finni ekki eitthvað aðeins ódýrara og skelli sér í smá ferðalag eina helgina.

Ég og Palli stefnum á partý hérna í íbúðinni næsta miðvikudag (við og margir aðrir sem mætum ekki í tíma fyrr en kl 15 á fimmtudaginn). Í leiðinni er gert ráð fyrir því að tópasinn klárist í eitt skipti fyrir öll og á sama tíma vonandi kornvínið hans Uwes.
Við ætlum reyndar ekki bara að halda partý, heldur verður eldað í liðið í leiðinni. Eftir mikla leit fann ég loksins tortilla bökur og því varð það fyrir valinu. Kjúklingabringur á 300ISK/kg eyðileggur ekki heldur fyrir :)

Djöfull held ég að þessi nýja kápumynd hjá Megasi sé að fara að skapa heitar umræður, nekt og Jónas Hallgrímsson :)

megas

Rétt í þessu var gaurinn sem sér um heimavistina og húsnæði skiptinemanna að koma við hérna heima vegna vesens með læsinguna hjá okkur og stíflu í einum vaskinum. Hann kom og gaf mér 10 flöskur af einhverjum vítamín drykk! Er ekki alveg að fatta þetta. Vaskurinn og læsingin hafa verið að stríða okkur í töluverðan tíma og ég hef haft orð á þessu nokkrum sinnum. Spurning hvort hann sé eitthvað að afsaka töfina á viðgerðunum með þessu… veit ekki :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (5)

dauðarefsingar
Posted on 10.05.07 by steini @ 9:21

Af Wikipedia umdauðarefsingar í US

From 1976 to September 24, 2007, out of 1,098 executions: 928 have been by lethal injection, 154 by electrocution, 11 by gas chamber, 3 by hanging, and 2 by firing squad.

Þótt ég sé mikill andstæðingur dauðarefsinga, þá voru þessar tölur ekkert að slá mig, maður vissi svo sem alveg af þessu. En síðustu 4 atriðin…. ???? WHAT rafmagsstóll, gasklefi, hengingar og aftökusveit. Bíddu er ég að missa af einhverju hérna, en er virkilega US að nota aftökusveitir í sínum dauðarefsingum (þótt þetta séu bara 2 tilfelli).

Ég hélt að ég skrifaði hvað verst í heiminum. Svo kynntist ég Palla.

Umræður í tíma í dag fengu mig aðeins til að pæla í lauk. Hvenær hættir laukur að vera laukur? Hvað þarftu að flysja mörg lög af honum svo hann verði eitthvað annað en laukur? Eða er það bara þegar þú hefur skafað allt af honum sem hann hættir að vera það?


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (4)

korean disco
Posted on 10.03.07 by steini @ 5:21

Kominn nýr dagur í Kóreu og í dag er meira að segja lýðveldisdagurinn/stofndagur ríkisins (foundation day). Kíktum í því tilefni aftur aðeins út á lífið í gær. Það var mjög gaman og endaði með að ég og palli rötuðum inná bar sem heitir The Doors og spilar venjulega old rock og jazz. Við enduðum í hrókasamræðum við 3 frekar skrítna kóreska gaura sem voru svona 35 ára og allir vel í skál. Það leið svo ekki á löngu þar til ownerinn var búinn að skella á gömlum disco slögurum á plötuspilarann og einn af kóreubúunum fanst ekkert sjálfsagðara en að ég og palli færum að sýna þau disco move sem við kynnum á móti honum. Við yfirgáfum samkvæmið fljótlega eftir það.
Myndir frá kvöldinu

Djöfull eru svona tölur sláandi. Maður vissi alveg að svartir væru stór hluti í bandarískum fangelsum, en vá!

“America has more than 2 million citizens behind bars, the highest absolute and per capita rate of incarceration in the world. Black Americans, a mere 13 percent of the population, constitute half of this country’s prisoners. A tenth of all black men between ages 20 and 35 are in jail or prison; blacks are incarcerated at over eight times the white rate.
The effect on black communities is catastrophic: One in three male African-Americans in their 30s now has a prison record, as do nearly two-thirds of all black male high school dropouts.”

Stundum þarf maður ekki mikið til að komast í gott skap. Virkilega súrir hlutir ná stundum að gera það gagn. Þessi frétt frá Baggalúti fékk mig til að hlægja upphátt. Veit ekki alveg hvað það er, en 75.000 manns á Wembley að horfa á Ólaf Ragnar setja Íslenska þingið er bara aðeins of skrautlegt :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: 1 svar komið

Fleiri myndir og annað gúmmelaði
Posted on 10.02.07 by steini @ 10:44

Við kíktum með hóp af fólki sem er með okkur í áfanganum Understanding Korean Society í Seoul safnið í dag. Þetta er sem sagt safn um sögu Seoul og öðru því tengdu. Til að gera langa sögu stutta var þetta án efa leiðinlegasta safn heimsókn sem ég hef farið í. Það væri hægt að gera sögu Reykjavík á 19. öld mun áhugaverðari en reynslan í dag gaf til kynna að saga Seoul hafi verið. Þess fyrir utan var öll merking á ensku mjög léleg og hlustunardótið sem við fengum var ekkert að gera sig of mikið.
Kíktum svo á kóreskan veitingastað eftir á og fengum mjög góðan kjötrétt, eiginlega kjötsúpu með núðlum og svo eitthvða sem var kallað Manjó og var frekar slappur réttur. Kjötrétturinn er samt klárlega kominn á lista yfir eitthvað sem við munum panta aftur þegar við förum út að borða.

Myndir frá ferðinni í dag má finna hér.

Í gær vorum við Palli á einhverju vappi nálægt skólanum og ákváðum að fara í pool. Hittum svo helling af skiptinemum sem voru á leiðinni á næsta pub. Ákváðum að elta þau þangað og fá okkur eins og einn bjór og spila póker. Þessi eini bjór varð að slatta af bjórum hjá mér + skemmtilegur drykkjuleikur með þeim sem voru hvað lengst. Palli var ekki í þeim hópi þar sem hann ákvað að lúðast aðeins og fara bara á netcafé og bíða þangað til ég færi heim. Svo í dag er hann búinn að vera alveg að missa það vegna þess að það brá fyrir smá þunnelsi á mér í morgun (eitthvað sem hann fær nóg af ef hann snertir fleiri en 2 bjóra). Getur ekki hætt að tala um hvað ég var alveg rosalega þoglumæltur og fullur, en það má til gamans geta að hann er nokkurnvegin eina vitnið ef svo má kalla, að þessum meintu drykkulátum í mér.
Mér finnst samt líklegasta skýringin á þessu öllu bara vera tilraun Palla til að ná sér smá niður á mér, enda er hann sá einstaklingur sem verður hvað ölvaðastur hvað fyrst og með mestu drykkjulætin. Það var því alveg einstaklega skemmtilegt fyrir hann að sjá að ég væri drukknari en hann þegar hann var búinn að húka á internetcafe allt kvöldið :)

Við Palli höfum svo komist að því að það er mikill uppgangur martinista hér í Seoul þessa dagana. Klifurfélagi Palla heitir einmitt Martin, gaur sem ætlar með mér í skvass heitir Martin (ég missti af tímanum í dag þar sem klukkan í tölvunni var stillt á singapore tíma ennþá :( ), svo er annar Martin sem ég veit lítið um og síðastur er kóreski félagi Palla hér í skólanum sem heitir líka Martin. Endalaust af Martinum.

ÉG HATA MOSKÍTÓ !!! ÉG VIL FÁ EINA FROSTNÓTT !!! EINA FROSTNÓTT!!!


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: It´s all happening! - (4)

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér