tveir snillingar
Ég er byrjaður að fíla ljóð… eða allavega kúltúrinn í kringum ljóð. Palli er nefnilega upprennandi ljóðaskáld sem skrifar einhverskonar haiku, sem hann sjálfur segir að sé vinsælasta ljóðaform í heimi. Þessi ástríða hans hefur leitt hann inná vefsíðu sem sérhæfir sig í tengja saman hæfileikarík ljóðskáld sem geta svo commentað á verk hvers annars. Á vafri um þessa síðu rakst ég á alveg yndislegan prófíl stelpu sem er 21 árs frá Columbia í US. Í info um sjálfa sig lét hún þetta:
I like to write and sing but I’m not organized. One of my favorite little things in life is when you can lick your finger and pick something up with it.
Afhverju getum við ekki öll verið svona nægjusöm? Þessi stelpa hefur fundið upp lykilinn að lífshamingjunni og ekkert minna en það.
Hinn snillingurinn er svo Mathieu frá frakklandi. Fyrir utan að vera hvað mest aktívur í að gera allskonar skrítna hluti, eins og að vera sakaður af herbergisfélaga sínum að hafa ætlað að skíta í rúmið hans þegar Mathieu var fullur, þá fór hann til Kína með slatta af fólki í fríinu og gerði það að markmiði að hlaupa að eins mörgum lögreglum og hann gat og láta taka myndir af sér með þeim.
Hér er ein af þeim:

—
Á efri hæðinni er einhver að æfa samblöndu af spretthlaupi og þrístökki án atrenu, eða þá að hann er að mastera fíladansinn.

Er búin að komast að því hvaðan þú hefur danshæfileikana drengur, Snilldar djamm með pabba þínum um helgina:)Bið að heilsa
Veistu ég held að squid sé smokkfiskur…..sem er svo aftur á móti ein tegund af kolkröbbum, hlakka til að sjá myndir og hafðu það gott í Kóreu