Þorgerður Katrín
Posted on 11.29.07 by steini @ 7:03

Ég veit ekki alveg hvert ég á að snúa mér þessa dagana. Er eiginlega bara hálf ringlaður af furðu yfir því sem ég sé að Þorgerður Katrín, menntamálaráðherra, er að gera þessa dagana. Mér hefur nefnilega aldrei líkað það vel við þau áhersluatriði sem hún hefur verið að standa fyrir og hreinlega aldrei líkað vel við hana sem stjórnmálamann/konu hingað til. En eitthvað er að breytast. Þorgerður er byrjuð að setja stein í götu kirkjunnar varðandi aðgang þeirra að skólum landsins, setur fram nýtt frumvarp um skólamál þar sem orðin “kristilegt siðferði” er tekið út og mun skárri skilgreining sett í staðin. Einnig reynir hún að hindra að fermingarfræðsla sé næstum hluti af skólastarfi og að ferðir á vegum kirkjunnar, t.d. í vatnaskóg, megi vera á skólatíma.
Eina sem ég get sagt er batnandi mönnum er best að lifa. Til hamingju Þorgerður, þetta er move-ið sem ég er búinn að vera að bíða eftir lengi. Nú er bara að vona að þetta séu fyrstu skrefin í átt að algjörum aðskilnaði :)

viðbót: gleymdi auðvitað að minnast á afnám samræmdu prófanna! Talandi um framþróun.


Skráð sem: Pólitík og Trúmál
Svör: It´s all happening! - (5)

Breyting á trúfélagsskráningu
Posted on 11.27.07 by steini @ 8:52

Jæja gott fólk. Þeir sem vilja breyta trúfélagsskráningu sinni og hafa einhver áhrif á það hvert sóknargjöld næsta árs fara, verða að fara að drífa sig. Einungis 4 dagar til stefnu. Hægt er að senda eyðublaðið með faxi eða fara á skrifstofu Þjóðskrár.
Skásti kosturinn hlítur að vera að láta peninginn fara til HÍ sem er gert með að skrá sig utan trúfélags. Ekki veitir skólanum af fé.
Reyndar er það mjög furðulegt fyrir mig og aðra nemendur á Bifröst og HR sem eru utan trúfélags að vera að borga skólagjöld í þá skóla og svo einnig um 10.000 á ári til HÍ í formi skatts sem er sérstaklega settur á fólk sem notar sér ekki söfnuði! Þetta er eins og að halda með einhverju liði í íþróttum, en vera samt leynilega þvingaður til að styrkja annað lið aðeins í leiðinni. Fáránlegt.

Endilega reynið að dreifa þessu víðar.


Skráð sem: Trúmál
Svör: It´s all happening! - (3)

þvinganir
Posted on 11.26.07 by steini @ 12:38

Eigum við að fara að tala um hvað þvinganir skila venjulega miklum árangri? Eða kanski gera þær það til skamms tíma þangað til uppsöfnað ósætti þeirra sem lenda í þvingunum springur og skaðar enn meira en skaðinn var áður.


Skráð sem: Dagleg skrif og Nöldur
Svör: It´s all happening! - (4)

saybia
Posted on 11.25.07 by steini @ 10:33

Mig langar alveg einstaklega mikið akkúrat núna að vera aftur í Tívolí í Köpen horfandi á tónleika með Saybia. Það væri yndislegt.

Myndirnar frá Incheon


Skráð sem: Dagleg skrif og Myndir
Svör: It´s all happening! - (4)

vinátta
Posted on 11.24.07 by steini @ 11:05

Vinátta á ekki að þurfa að vera að raka bakhár af vini sínum. Það er mannvonska að biðja um þannig hluti.

Fór annars til Incheon í dag með 4 öðrum skiptinemum. Röltum þar aðeins um, kíktum á styttu af Douglas MacArthur, kínahverfið, litla hæð þar sem hægt var að sjá yfir borgina, einhverja kirkju o.fl. Tvær stelpur í kringum 5-7 ára slógust í lið með okkur uppá hæðinni þegar þær uppgötvuðu að við vorum í stuði til að haga okkur bjánalega og troða okkur t.d. inní lítil barna rafmagnsfaratæki (borgar 50kr og þá fer það fram og aftur, fullt af svona í kringlunni og þannig stöðum). Fífluðumst eitthvað með þeim áður en við fórum svo heim með lestinni aftur (34 stoppustöðvar og um 85min á leiðinni). Myndir frá ferðinni koma vonandi inn á morgun. Stefnan er aftur á móti sett á afmælispartý hjá Mathieu, Jenn og Marie í kvöld.


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: 1 svar komið

Er ástandið svona slæmt?
Posted on 11.24.07 by steini @ 2:19

Spurning hvort slæmt ástand dollarsins muni enda á þennan hátt:
cookies for euros


Skráð sem: Heimsmálin og Sniðugt stöff
Svör: Ekkert ennþá

fréttir frá Íslandi
Posted on 11.23.07 by steini @ 7:05

Getur maður orðað hlutina eitthvað meira kjánalega en þessi blessaði Arnar gerir? Oftast er nú bara talað um að vera á hælunum á eftir einhverjum. Ná með tærnar þar sem aðrir hafa hælana o.s.frv.

Ég skil svo ekki alveg þessar pælingar með “hátæknisjúkrahús”. Hvernig verður þetta eitthvað meira hátækni en öll önnur sjúkrahús sem við höfum? Og hvað ætla þau að gera með hin sjúkrahúsin þegar þetta verður tekið í notkun? Á líka að halda þeim við og bæta þessu við? Ég hef nú ekki séð að það sé nægur peningur til fyrir þessi 2 stóru sem fyrir eru (reyndar er það víst sameinað í dag, skiptir ekki öllu máli). Þar er alltaf peningaskortur og mannekla og þá er vandamálið bara leyst með því að reysa nýtt hús sem þarf auðvitað enn meira fjármagn og fleiri starfsmenn. Ef þessi hugmynd um hátæknisjúkrahús var ekki bara meingölluð kosningaloforðshugmynd frá byrjun þá veit ég ekki hvað.
Man bara eftir því að þegar þetta kom í umræðuna í kringum sölu símans þá voru mjög margir læknar og rekstraraðilar sjúkrahúsanna sem skildu ekkert í þessari hugmynd. Fannst hún bara fáránleg. Það þarf auðvitað fyrst að leysa vandamálin á þeim sjúkrahúsum sem eru nú þegar í rekstri áður en farið er að bæta rosalega við.

Þetta mál er svo mjög gott dæmi um það hvernig framkvæmdarvaldið hefur alltof mikil völd. Það ætti auðvitað alltaf að vera skýlaus krafa að lögreglan þurfi dómsúrskurð fyrir hleranir, húsleit eða í þessu tilfelli staðsetningartæki. Þessi maður er búinn að afplána sinn dóm og á ekki að þurfa að lifa við það að lögreglan sé uppá sitt einsdæmi að fylgjast með honum 24/7.


Skráð sem: Fréttir og Pólitík
Svör: It´s all happening! - (2)

Leiðarvísir að Everybody með Cocktail Vomit
Posted on 11.22.07 by steini @ 8:05

Cocktail Vomit - Everybody (rækjusalat)

Are you somebody? Not everybody can be somebody. Well I’m somebody and you are nobody! Nobody!! HAHAHA
You are just a rækjusalat. I’m from Reykjavík Iceland, the best country in the world and I’m a hrokagikkur. You lousy backpacker, go back to Germany.
Duduududud……
Vikings, Gullfoss, Geysir, The Blue lagoon, Vigdís Finnbogadóttir, glaciers, harðfiskur and Jón Páll. Malt og Appelsín, Keikó, Eiríkur Hauksson, Eurovision parties, the Icelandic horse, beauty queensbrennivín, BRENNIVÍN, brennivín, breeeennivín…


Skráð sem: Dagleg skrif og Kúltúra og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (3)

Brúnkustrákagengið
Posted on 11.21.07 by steini @ 13:08

Besta klíkunafn ever: Brúnkustrákagengið. Dv.is fær hrós fyrir þetta :D


Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir
Svör: Ekkert ennþá

palli veiki
Posted on 11.20.07 by steini @ 13:24

Palli er eitthvað slappur þessa dagana og er duglegur við að reyna að láta vorkenna sér. Það varð til þess að ég ákvað að skreppa út eftir pizzu í dag fyrir hann (reyndar ekki fyrr en ég var búinn að láta hann reyna að hringja á undan sér og panta pizzuna - það gekk ekki…). Ég sem sagt kem á staðinn panta pizzuna og er sagt að það séu svona 15-20 min í að hún sé tilbúin. Ég ákveð því að labba aðeins um hverfið og kíkja á stemninguna. Á einum stað mæti ég konu með ekta lítinn-ljótan hund sem er klddur í kápu, húfu og skó. Einni mínútu seinna sé ég svo búðarglugga þar sem kona er að raka feldinn af einu hundkvikindinu. Þó að þetta hafi væntanlega verið einhverskonar primo snyrtistofa fyrir málleysingjana, þá datt mér samt í hug í smá stund að þetta væri svona prepare fyrir lúxusveitingastaðina.

Gaman að vita til þess að eftir að ég update-aði wordpress þá getur maður gert svona tags við hverja færsla og það eru svona examples alltaf “Tags (separate multiple tags with commas: cats, pet food, dogs)”
Er ekki frá því að þessi dæmi eigi vel við núna, þ.e. dogs og pet food…. eða kanski frekar pets as food :)

Tel mig vera búinn að komast fyrir þetta vesen sem kom þegar maður commentaði. Látið mig vita ef það kemur aftur error þegar þig commentið


Skráð sem: Dagleg skrif og Kórea
Svör: Ekkert ennþá

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér