náranudd

Maður þarf víst að henda inn einni færslu svo mamma fari ekki að fá áfall og haldi að eitthvað hafi gerst fyrir mann hérna úti :)
Við höfum samt gert mest lítið síðustu vikuna, fyrir utan að kíkja til Sokcho og fara þaðan í Seoraksan þjóðgarðinn þar sem við löbbuðum uppá 3ja hæsta fjall Kóreu (1708m). Þegar ég var að fara í ferðina hélt ég að þetta yrði eitthvað eins og að skokka uppá esjuna, en þetta var heldur betur mun erfiðara, sérstaklega í ljósi þess að við byrjuðum eiginlega við sjávarhæð og fórum 5km alltaf uppí mót til að komast á tindinn. Endalausir stigar og stígar sem stefndu bara í eina átt. Enda var maður hálf ónýtur þegar upp var komið og ennþá ónýtari næstu tvo daga á eftir. Kíktum reyndar í nudd daginn eftir með Olgu frá Kasakstan og þar voru stundaðar pyntingar á okkur í svona 1klst sem endaði með því að konan sem var að nudda mig ákvað að lemja bara helvíti fast í hliðina á lærinu á mér (ég var búinn að emja eins og smástelpa allan tímann þegar hún var að nudda fæturna) og við það stökk ég hreinlega til vegna sársauka. Fyrir utan þetta lokaatvik var nuddið reyndar mjög gott og ég er ekki frá því að það hafi liðkað aðeins vöðvana eftir þetta púl.
Ég var reyndar smá efins á tíma þarna í nuddinu um hvort við hefðum óvart farið á “happy ending” nuddstofu þegar konan fór að nudda á mér nárann. Það reyndist þó ekki vera og hún kláraði nuddið bara venjulega.
Myndir frá ferðinni má svo finna hér

Hvað er málið með þetta? Ætla kirkjusöfnuðir ekki að skilja að það er fáránlega mikil kristinfræðikennsla fyrir í skólum til móts við frekar litla almenna trúarbragðafræðslu. Það mætti svo miklu frekar nota tímann í að kenna krökkum meira í öðrum fögum sem hafa hugsanlega eitthvað raunverulegt gildi fyrir þau varðandi frekara nám eða vinnu. Og að efla kristið siðferði? Ef mig misminnir ekki stendur einnig í námskrá grunnskólanna að allt nám eigi að vera miðað að kristinni siðfræði. Það ætti miklu frekar að afnema eitthvað svona ákvæði og kenna krökkunum almennt siðferði sem er ekki bundið við gamla bók sem er full af andstæðum pólum, ofbeldi, hræðsluáróðri og hatri gagnvart vissum minnihlutum.
Eina sem ég get að einhverju leiti tekið undir er þessi punktur:

Þá vilja félögin að Alþingi og sveitarstjórnir verji auknum hluta af almannafé til forvarna gegn áfengis- og vímuefnaneyslu, ofbeldi, sjálfsmorðum, einelti og klámvæðingu.

Það þarf reyndar að passa vel uppá það hvaða leið er notuð og hvort hún skili virkilega einhverjum árangri, en sé ekki bara sóun á peningum í fyrirfram töpuð verkefni.

Comments (3)

DiljáNovember 8th, 2007 at 16:40

hahah þetta minnti á tyrkneska nuddið sem ég fór út í Tyrklandi, gellan bankaði alltaf í mig ef ég kipptist við af sársauka ;) Djöfull er ég annars sammála þér með kristnifræðikennslu í grunnskólum, ekkert nema þröngsýni. Það á annars löngu verið búið að aðskilja ríki og kirkju í þessu blessaða landi !

AnneNovember 8th, 2007 at 20:34

Takk fyrir hugulsemina gagnvart mömmu, gaman að sjá myndirnar. Var það vikingablóð eða sisu sem kom þig alla leið upp á tindinn ??? Svo þarf auðvitað hetjan úr norðri að vera léttklæddur í T-bol í myndatökunni meðan hinir skjálfa í úlpum, vettlingum og húfum !!!

steiniNovember 9th, 2007 at 5:34

það var klárlega sisu-ið sem kom mér upp :) Víkingablóðið varð aftur á móti til þess að ég var bara á stuttermabol

Leave a comment

Your comment