brjálaða lið
Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið.
Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni.
Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið
Það væri töff.
—
Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld.
Jamendo er snilld. Afhverju var enginn búinn að segja mér frá þessu áður??

geturu ekki bara redirectað símtölunum frá þessu númeri til mín?
Það væri upplífgandi hérna í sveitinni að fá símtal frá kvennkyns kóreubúa, sérstaklega ef henni er heitt í hamsi
Snilldin ein samt hjá henni að gefast ekki upp!