myndir frá international day
Jæja, þá geta mamma og Linda loksins tekið gleði sína á ný, því ég hef komið höndum yfir nokkrar af myndunum frá því á international deginum. Á þeim degi sem sagt klæddu skiptinemarnir sig upp í alskonar þjóð búininga frá hinum ýmsu löndum og svo lentum við í einhverri myndatöku og eitthvað meira fyrir einhvern sjónvarpsþátt ef ég skildi þetta allt saman rétt.
Búningurinn sem ég er í heitir Hanbok og er þjóðbúningur Kóreu. Klárt mál að þetta verður það sem tekur við af náttbuxnaáráttunni hjá mér eftir að ég kem aftur á bifröst ![]()
Myndirnar

Þú tekur þig vel út í þessum litum
Er ekki frá því að sjálfur Daffyd Thomas myndi láta sjá sig í þessu. Kannski aðeins of víð föt samt fyrir hann.
Það getur nú líka vel verið að þú náir hrynda af stað tískubylgju á Birföst og allir mæta í svona göllum á föstudögum!!!
Hahahahaha, þetta er alveg víðáttuljótur búningur!!
Samt ekki á þér náttúrulega =)
Ertu ekki að grínast? Þetta er auðvitað einhver flottasti búningur sem gerður hefur verið, svona fyrir utan að hann er einhver sá þægilegasti sem ég hef einnig verið í.
Hvað er svo meira töff en að vera með vasa í ermunum? Já þessi búningur er það töff !