kirkjur
Merkilegt með svona kirkjumenningu. Á Íslandi þegar ég bjó í Garðabænum heyrði ég alltaf í kirkjuklukkunum frá Vídalínskirkju á sunnudagsmorgnum þegar mig langað mest af öllu að heyra akkúrat ekkert í þeim. Í þessu tilfelli var kirkjan í svona 500m+ fjarlægð.
Hérna í Kóreu horfi ég útum gluggann á herberginu mínu á 7. hæð og horfi beint á tvær kirkjur hinu megin við götuna, u.þ.b. 50 og 100 m í burtu. Aldrei hafa þessar kirkjur þurft að hafa einhvern hávaða og læti til að kalla saman fólk í kirkjurnar sínar. Þægilegt líf.
Alveg skuggalega mikið samt af þessum litlu kirkjum hér út um allt, en það gerist víst í svona fjölmennum borgum

Ertu viss um að þetta sé kirkjur? Ég held að Koreumenn væru ekki kristnir. Eða heyrist mér þú vera kominn með smá heimþrá yfir að vera ekki vakinn kl. 10.30 á sunnudögum með fögrum kirkjuklukkutónum? Takk fyrir þjóðbúningamyndirnar, þú ert mjög glæsilegur í bleiku.
Þetta eru kirkjur. Ef ég man rétt eru um 30% þjóðarinnar kristin, 20% búddatrúa og um 50% telja sig trúlaus. Þannig að í 12 milljóna borg þar sem 30% eru kristin þarf kirkjur fyrir 3,6 milljónir manna. Og þar sem kirkjurnar eru mjög litlar hver og ein, þá eru þetta mun fleiri kirkjur á hverja 1000 manns en heima á íslandi. (allavega mín tilfinning)
eru 50% kóreubúa á leið til helvítis!?
eða til himnaríkis hinna trúlausu… ;]
gaman að fylgjast með hérna á þessu bloggi, þú ert frekar duglegur að blogga steini verð ég að segja.
Verðurðu þarna líka á vorönn eða ertu á leiðinni á klakann eftir þessa önn?
já, stefni á heimför eftir þessa önn. og já, 50% kóreubúa eru örugglega á leið til helvítis, svipað og allir sem stunda kynlíf utan hjónabands, samkynhneigðir og þeir sem skilja og gifta sig aftur
guðdómleg fyrirgefning er bara gefin þeim sem trúir
annars er þetta eitt af leyndarmálunum sem ekki má tala um. Td kína, samfélag sem er trúlaust og gengur upp…