palli veiki

Palli er eitthvað slappur þessa dagana og er duglegur við að reyna að láta vorkenna sér. Það varð til þess að ég ákvað að skreppa út eftir pizzu í dag fyrir hann (reyndar ekki fyrr en ég var búinn að láta hann reyna að hringja á undan sér og panta pizzuna - það gekk ekki…). Ég sem sagt kem á staðinn panta pizzuna og er sagt að það séu svona 15-20 min í að hún sé tilbúin. Ég ákveð því að labba aðeins um hverfið og kíkja á stemninguna. Á einum stað mæti ég konu með ekta lítinn-ljótan hund sem er klddur í kápu, húfu og skó. Einni mínútu seinna sé ég svo búðarglugga þar sem kona er að raka feldinn af einu hundkvikindinu. Þó að þetta hafi væntanlega verið einhverskonar primo snyrtistofa fyrir málleysingjana, þá datt mér samt í hug í smá stund að þetta væri svona prepare fyrir lúxusveitingastaðina.

Gaman að vita til þess að eftir að ég update-aði wordpress þá getur maður gert svona tags við hverja færsla og það eru svona examples alltaf “Tags (separate multiple tags with commas: cats, pet food, dogs)”
Er ekki frá því að þessi dæmi eigi vel við núna, þ.e. dogs og pet food…. eða kanski frekar pets as food :)

Tel mig vera búinn að komast fyrir þetta vesen sem kom þegar maður commentaði. Látið mig vita ef það kemur aftur error þegar þig commentið

Leave a comment

Your comment