fréttir frá Íslandi

Getur maður orðað hlutina eitthvað meira kjánalega en þessi blessaði Arnar gerir? Oftast er nú bara talað um að vera á hælunum á eftir einhverjum. Ná með tærnar þar sem aðrir hafa hælana o.s.frv.

Ég skil svo ekki alveg þessar pælingar með “hátæknisjúkrahús”. Hvernig verður þetta eitthvað meira hátækni en öll önnur sjúkrahús sem við höfum? Og hvað ætla þau að gera með hin sjúkrahúsin þegar þetta verður tekið í notkun? Á líka að halda þeim við og bæta þessu við? Ég hef nú ekki séð að það sé nægur peningur til fyrir þessi 2 stóru sem fyrir eru (reyndar er það víst sameinað í dag, skiptir ekki öllu máli). Þar er alltaf peningaskortur og mannekla og þá er vandamálið bara leyst með því að reysa nýtt hús sem þarf auðvitað enn meira fjármagn og fleiri starfsmenn. Ef þessi hugmynd um hátæknisjúkrahús var ekki bara meingölluð kosningaloforðshugmynd frá byrjun þá veit ég ekki hvað.
Man bara eftir því að þegar þetta kom í umræðuna í kringum sölu símans þá voru mjög margir læknar og rekstraraðilar sjúkrahúsanna sem skildu ekkert í þessari hugmynd. Fannst hún bara fáránleg. Það þarf auðvitað fyrst að leysa vandamálin á þeim sjúkrahúsum sem eru nú þegar í rekstri áður en farið er að bæta rosalega við.

Þetta mál er svo mjög gott dæmi um það hvernig framkvæmdarvaldið hefur alltof mikil völd. Það ætti auðvitað alltaf að vera skýlaus krafa að lögreglan þurfi dómsúrskurð fyrir hleranir, húsleit eða í þessu tilfelli staðsetningartæki. Þessi maður er búinn að afplána sinn dóm og á ekki að þurfa að lifa við það að lögreglan sé uppá sitt einsdæmi að fylgjast með honum 24/7.

Comments (2)

anneNovember 23rd, 2007 at 8:13

Talandi um fréttir: Horfðu á Kastljós frá í gær, 22.11.07. Verzlo kemur þar við.

great canadian casino nanaimoNovember 9th, 2008 at 22:37

great canadian casino nanaimo…

proprietary blight daughters dwarfs rented …

Leave a comment

Your comment