vinátta

Vinátta á ekki að þurfa að vera að raka bakhár af vini sínum. Það er mannvonska að biðja um þannig hluti.

Fór annars til Incheon í dag með 4 öðrum skiptinemum. Röltum þar aðeins um, kíktum á styttu af Douglas MacArthur, kínahverfið, litla hæð þar sem hægt var að sjá yfir borgina, einhverja kirkju o.fl. Tvær stelpur í kringum 5-7 ára slógust í lið með okkur uppá hæðinni þegar þær uppgötvuðu að við vorum í stuði til að haga okkur bjánalega og troða okkur t.d. inní lítil barna rafmagnsfaratæki (borgar 50kr og þá fer það fram og aftur, fullt af svona í kringlunni og þannig stöðum). Fífluðumst eitthvað með þeim áður en við fórum svo heim með lestinni aftur (34 stoppustöðvar og um 85min á leiðinni). Myndir frá ferðinni koma vonandi inn á morgun. Stefnan er aftur á móti sett á afmælispartý hjá Mathieu, Jenn og Marie í kvöld.

Comments (1)

IngaNovember 24th, 2007 at 22:12

Steini minn, þetta er bláttáfram brot á mannréttindum.

Leave a comment

Your comment