þvinganir

Eigum við að fara að tala um hvað þvinganir skila venjulega miklum árangri? Eða kanski gera þær það til skamms tíma þangað til uppsöfnað ósætti þeirra sem lenda í þvingunum springur og skaðar enn meira en skaðinn var áður.

Comments (4)

JúlliNovember 26th, 2007 at 22:01

Já það er spurning sko….

Breytingar sem þessar er ekki hægt að breyta á nokkrum mánuðum….þetta tekur því miður tíma. Auðvitað á þetta ekkert að vera svona og ætti að breytast ekki seinna en NÚNA.

En gagnvart launagreiðendum og karlmönnum (þeas ef laun þeirra eiga að lækka á móti) þá er þetta ekki gerlegt nema á nokkrum árum (í víðu samhengi).

steinar marNovember 27th, 2007 at 0:03

hvernig væri nú að fara athuga launamál útfrá vinnuframlagi.

Mér finnst sjálfsagt að karlmaður sem vinnur 12 stunda vinnudag sé með hærri laun en kvennmaður sem vinnur 8 stunda vinnudag og visa verca.

steiniNovember 27th, 2007 at 6:01

Júlli, það sem ég er að meina er að þó að það sé hugsanlegt að hægt sé að ná jafnrétti fyrr með einhverjum svona þvingunum, þá held ég að það muni bara skapa mun meiri vandamál þegar fram líða stundir. Þannig hefur það lang oftast verið með þvinganir ráðamanna allsstaðar í heiminum. Oft sést ágætis árangur í byrjun, en módelið hrynur svo allt saman þegar líða tekur á og eftir verður mun verra ástand.

JúlliNovember 27th, 2007 at 19:46

Algjörlega sammála….og það var það sem ég var að reyna að segja….það er ekki hægt að þvinga niðurstöðu fram með bjánaskap…það er erfitt að neyða vatnið upp á móti.

Leave a comment

Your comment