steinar
Posted on 12.28.07 by steini @ 14:11

Vil oska brosa til hamingju med daginn. Eyddi annars deginum i mini golf og ad skjota af .45 cal byssu. Tad var skemmtileg reynsla.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (4)

jólin á Thailandi
Posted on 12.25.07 by steini @ 13:21

Jæja, jólin hafa verið fín hér í Thailandi, var reyndar frekar sólbrenndur í gærkvöldi vegna mikillar sólar fyrr um daginn þegar við skuppum í veiðiferð sem endaði með um 20-25 fiskum (túnfisk). Maturinn í gær var annars jólahlaðborð hjá hótelinu sem var nú ekki alveg jafn gott og heima, steikin reyndar bara frekar slöpp, en forréttirnir og eftirrétturinn voru góðir. Í dag var svo borðaður mjög traditional thai matur í hádeginu og það kæmi mér ekkert á óvart að við skellum okkur í svipaðan pakka núna á eftir (kvöldmat).
Fullt að segja en of lítill tími á netinu. Hendi líka inn öllum myndunum þegar ég kem heim. Held að það sé lang best.
Í dag kíktum við á Phi phi eyjar og það var alveg frábært. Snorklaði aðeins í kóralrifi og skoðaði endalaust af regnbogafiskum. Sáum svo staðinn þar sem The Beach var tekin upp, ótrúlega flott allt saman.

Annars er hér lítil jóla og nýárskveðja frá Thailandi

Byð að heilsa og sé svo bara alla einhvern tíman eftir að ég kem heim 2. jan.


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög
Svör: It´s all happening! - (3)

Bangkok - phuket
Posted on 12.20.07 by steini @ 4:44

5 dagar og 3 dagsferdir bunar i Bangkok. 3x jakkafot og vesen med gistinguna a Phuket. Hiti og sviti, filareidtur, klappa tigrisdyrum og thai nudd. Phuket a eftir.


Skráð sem: Ferðalög
Svör: 1 svar komið

jahérnahérna
Posted on 12.14.07 by steini @ 21:38

Síðasta prófið búið, gekk bara helvíti vel, 20 min í að við yfirgefum íbúðina sem er búin að vera heimili okkar síðustu 3,5 mánuðina og stökkvum uppí flugvél til Thailands næstu 11 dagana eða svo.
Búnir að redda miðum frá Singapore til London seint 1. jan þannig að mestar líkur á að komast heim 2 jan.
Enduðum kvöldið í kvöld með að hitta sem flesta skiptinemana og kveðja þá yfir bjór og karaoke, svona ekta kóreu stemmning.
Borðaði svo loksins hund í dag. Það hafði alltaf dregist á langinn, en ég varð að láta verða af því svona seinasta daginn. Sorry hlé ef þú lest þetta :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea
Svör: It´s all happening! - (5)

DMZ og næstu vikur
Posted on 12.10.07 by steini @ 15:34

Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi).
Þannig að planið næstu vikurnar er eftirfarandi:
10. des: Prófavikan byrjar með prófi í Theories of national security. Þar á eftir fylgja svo próf í Understanding Korean society, Economic development in Korea og svo síðast í Konfúsíusma. Auk þess þarf að henda inn einni ritgerð í Globalization and development.
14. des: Síðasta prófið
15. des: Fljúgum til Thailands með millilendingu í Hong Kong. Brottför kl 10:15 um morguninn þannig að það verður ekki beint tími fyrir neitt lokadjamm kvöldið áður.
15. des - 20. des: skoða bangkok, kíkja á markaði, vonandi í eitthvað safari, nudd o.s.frv.
21. des - 26. des: Afslappelsi á Phuket. Jól á ströndinni
26. des: Flug til Singapore. Áramót þar.
1 eða 2. jan: flug heim, væntanlega millilent í London. Eiginlega það eina sem þarf að redda og það þarf víst að gerast sem fyrst þar sem allt er að verða fullt :(

Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :))
Við fengum svo að kíkja inn í einn skúr þar sem viðræður landanna fara jafnan fram og þar gátum við labbað yfir landafræðilega línu yfir til norður Kóreu, þótt húsið sé þannig séð á ábyrgð US og Suður Kóreu. Það sem var samt mest sérstakt við þessa ferð var hvað það var rosalega mikil þögn þarna þegar maður kom alveg að landamærunum og maður fann alveg spennuna sem var þarna.
Myndir frá ferðinni eru loksins komnar hingað
Til að fólk skilji þetta betur ætla ég að útskýra nokkrar myndir.
Lest sem tók okkur niður í göng sem Norður Kóreumenn reyndu að gera yfir til Suður Kóreu fyrir sirca 20 árum eða svo. Gangnamuninn hefði ekki verið nema um 50km frá höfuðborginni seoul og hægt hefði verið að flytja 10-20þús manna hersveitir á klst þarna í gegn. Fleiri göng hafa fundist, en engin svona nálægt Seoul
Líkan af JSA svæðinu. Hvíta línan er milli suðurs og norðurs
Reynt að taka mynd af norður Kóreu í fjarska, en mjög erfitt vegna myndavélabanns á ákveðnum svæðum. Einnig var mikil þoka og því erfitt að ná einhverjum myndum
Lest að koma um einu járnbrautina milli landanna. Það eru víst einhver viðskipti í gangi með einhverjar landbúnaðarvörur (plús hjálpina sem suður sendir norður)
Ef það verður opnað fyrir ferðalög milli landanna verður þetta brúin sem labbað verður yfir. Hér í kring var það sem löngu sundraðar fjölskyldur fengu að hittast kringum 2002 þegar samningar voru gerðir milli landanna. Eins og er er girðing þarna og búið að hengja fullt af minningar og friðar dúkum á það.
Ekki taka myndir. Slatti af svipuðum skiltum allsstaðar.
Inní samningaviðræðu húsinu.
Og þarna eru landamærin sjálf
Séð yfir samningshúsin og aðalbyggingu Norður kóreu þarna hinu megin. Hornið sem sést í vinstra megin er aðalbygging suður kóreu á svæðinu.
Fyrsta/síðasta lestarstöðin í suður Kóreu. Var byggð fyrir nokkrum árum síðan en er ekkert notuð. Eitt af þeim atriðum sem hefur verið gert til að reyna að ýta undir samskipti ríkjanna.

En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um.

Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar.
Það er þó frábært hvað þessi umræða hefur fengið að haldast í þjóðfélaginu síðustu daga, ef marka má fréttavefi, umræðuþætti og blog umræður á netinu. Mjög sáttur með það og vonandi að einhverjir foreldrar sjái hvernig kirkjan er að troða sér inní skólana, sem eiga jú samt að vera þannig úr garð gerðir að þar sé ekki mismunað börnum t.d. á grundvelli trúar.
Furðulegast þykir mér þó að sjá framferði biskups og kirkjunnar gegn Siðmennt (og Vantrú) þar sem Siðmennt er hreinlega gert upp skoðanir og reynt að troða þeim að í öllum fréttatímum til að fá fólk til að halda að félagið sé t.d. á móti og vilji breyta þjóðfánanum og þjóðsöngnum (sem væri nú alveg rétt að breyta reyndar og þá aðallega vegna erfiðleika við að syngja hann) auk þess að vilja alla trúarbragðafræðslu úr skólum og að hætta með litlu jólin og páskaföndur. Þetta er auðvitað algjör rugl og hefur aldrei verið á stefnuskránni, en það hindrar samt ekki kirkjunar menn að koma fram með svona sleggjudóma sem aðrir éta svo ógagnrýnislaust upp.

Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll.
Einnit langar mig að benda á hljómsveitirnar Moldy Peaches og Beirut. Moldy peaches alveg yndislega hrátt rokk og Beirut í góðum indie swing.

Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel :( Fraus aðeins á fyrstu spurningunni og þar við sat og ég var hálf ónýtur í hausnum það sem eftir lifði prófsins. Vonum samt að þetta náist. Á morgun er svo próf í understanding korean society, frekar bjartsýnn á það.

Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Kórea og Myndir og Pólitík og Trúmál og Tónlist
Svör: It´s all happening! - (10)

finnski þjóðhátíðardagurinn
Posted on 12.06.07 by steini @ 19:14

í dag er finnski þjóðhátíðardagurinn og í því tilefni óska ég mömmu og öllum öðrum finnum sem lesa þetta blog (þar á meðal mér) til hamingju með daginn.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér