DMZ og næstu vikur

Það er allt að smella saman varðandi ferðalag komandi vikna. Búinn að bóka flug til Thailands 15 des og hótel í Bangkok og svo redduðu stelpurnar og Palli villu á phuket (var allt fullt og of dýrt á phi phi).
Þannig að planið næstu vikurnar er eftirfarandi:
10. des: Prófavikan byrjar með prófi í Theories of national security. Þar á eftir fylgja svo próf í Understanding Korean society, Economic development in Korea og svo síðast í Konfúsíusma. Auk þess þarf að henda inn einni ritgerð í Globalization and development.
14. des: Síðasta prófið
15. des: Fljúgum til Thailands með millilendingu í Hong Kong. Brottför kl 10:15 um morguninn þannig að það verður ekki beint tími fyrir neitt lokadjamm kvöldið áður.
15. des - 20. des: skoða bangkok, kíkja á markaði, vonandi í eitthvað safari, nudd o.s.frv.
21. des - 26. des: Afslappelsi á Phuket. Jól á ströndinni
26. des: Flug til Singapore. Áramót þar.
1 eða 2. jan: flug heim, væntanlega millilent í London. Eiginlega það eina sem þarf að redda og það þarf víst að gerast sem fyrst þar sem allt er að verða fullt :(

Um daginn kíktum við á DMZ zone-ið hér í Kóreu. Kíktum þar á t.d. JSA sem er “hliðið” milli norður og suður Kóreu, mest hernaðarvaktaða svæði á jörðinni væntanlega (þ.e. milli tveggja landa, tek ekki area 51 eða pentagon með :))
Við fengum svo að kíkja inn í einn skúr þar sem viðræður landanna fara jafnan fram og þar gátum við labbað yfir landafræðilega línu yfir til norður Kóreu, þótt húsið sé þannig séð á ábyrgð US og Suður Kóreu. Það sem var samt mest sérstakt við þessa ferð var hvað það var rosalega mikil þögn þarna þegar maður kom alveg að landamærunum og maður fann alveg spennuna sem var þarna.
Myndir frá ferðinni eru loksins komnar hingað
Til að fólk skilji þetta betur ætla ég að útskýra nokkrar myndir.
Lest sem tók okkur niður í göng sem Norður Kóreumenn reyndu að gera yfir til Suður Kóreu fyrir sirca 20 árum eða svo. Gangnamuninn hefði ekki verið nema um 50km frá höfuðborginni seoul og hægt hefði verið að flytja 10-20þús manna hersveitir á klst þarna í gegn. Fleiri göng hafa fundist, en engin svona nálægt Seoul
Líkan af JSA svæðinu. Hvíta línan er milli suðurs og norðurs
Reynt að taka mynd af norður Kóreu í fjarska, en mjög erfitt vegna myndavélabanns á ákveðnum svæðum. Einnig var mikil þoka og því erfitt að ná einhverjum myndum
Lest að koma um einu járnbrautina milli landanna. Það eru víst einhver viðskipti í gangi með einhverjar landbúnaðarvörur (plús hjálpina sem suður sendir norður)
Ef það verður opnað fyrir ferðalög milli landanna verður þetta brúin sem labbað verður yfir. Hér í kring var það sem löngu sundraðar fjölskyldur fengu að hittast kringum 2002 þegar samningar voru gerðir milli landanna. Eins og er er girðing þarna og búið að hengja fullt af minningar og friðar dúkum á það.
Ekki taka myndir. Slatti af svipuðum skiltum allsstaðar.
Inní samningaviðræðu húsinu.
Og þarna eru landamærin sjálf
Séð yfir samningshúsin og aðalbyggingu Norður kóreu þarna hinu megin. Hornið sem sést í vinstra megin er aðalbygging suður kóreu á svæðinu.
Fyrsta/síðasta lestarstöðin í suður Kóreu. Var byggð fyrir nokkrum árum síðan en er ekkert notuð. Eitt af þeim atriðum sem hefur verið gert til að reyna að ýta undir samskipti ríkjanna.

En já, myndirnar eru allar hálf lélegar, enda var okkur ekki gefinn mikill tími til að taka myndir eða að stoppa og skoða okkur vel um.

Ætla svo að draga þetta hrós mitt á hana Þorgerði frá því síðast aðeins til baka (samt ekki alveg). Frá mínu sjónarhorni virðist hún einungis hafa gert þessa breytingu til að fara að lögum en ekki vegna eigin sannfæringar.
Það er þó frábært hvað þessi umræða hefur fengið að haldast í þjóðfélaginu síðustu daga, ef marka má fréttavefi, umræðuþætti og blog umræður á netinu. Mjög sáttur með það og vonandi að einhverjir foreldrar sjái hvernig kirkjan er að troða sér inní skólana, sem eiga jú samt að vera þannig úr garð gerðir að þar sé ekki mismunað börnum t.d. á grundvelli trúar.
Furðulegast þykir mér þó að sjá framferði biskups og kirkjunnar gegn Siðmennt (og Vantrú) þar sem Siðmennt er hreinlega gert upp skoðanir og reynt að troða þeim að í öllum fréttatímum til að fá fólk til að halda að félagið sé t.d. á móti og vilji breyta þjóðfánanum og þjóðsöngnum (sem væri nú alveg rétt að breyta reyndar og þá aðallega vegna erfiðleika við að syngja hann) auk þess að vilja alla trúarbragðafræðslu úr skólum og að hætta með litlu jólin og páskaföndur. Þetta er auðvitað algjör rugl og hefur aldrei verið á stefnuskránni, en það hindrar samt ekki kirkjunar menn að koma fram með svona sleggjudóma sem aðrir éta svo ógagnrýnislaust upp.

Ætla svo að mæla alveg hiklaust með myndinni shoot em up með honum Clive owen í aðalhlutverki. Action í gegn og mjög skemmtilegur stíll.
Einnit langar mig að benda á hljómsveitirnar Moldy Peaches og Beirut. Moldy peaches alveg yndislega hrátt rokk og Beirut í góðum indie swing.

Prófið í morgun gekk svo ekkert of vel :( Fraus aðeins á fyrstu spurningunni og þar við sat og ég var hálf ónýtur í hausnum það sem eftir lifði prófsins. Vonum samt að þetta náist. Á morgun er svo próf í understanding korean society, frekar bjartsýnn á það.

Reyni svo að láta styttri tíma líða á milli skrifa næst :)

Comments (10)

DiljáDecember 10th, 2007 at 19:07

ú drungalegar myndir ! Heppni grís að vera fara til Phuket um jólin, þetta er staðurinn sem kom til greina í útskriftarferðinni í versló ;)

MaggiDecember 10th, 2007 at 19:26

Helvítis Margrét, það verður ekki annað sagt.

steiniDecember 11th, 2007 at 11:31

ég tek undir það, Helvítis margrét.

anyways þá hljómar nafnið á þessu hóteli eins og bucket, eða fuckit. Skemmtilegt nafn.

vinkona mín benti mér á beirut heimasíðuna, get ekki skoðað hana, en hún benti mér líka á flight of the conchords, nýsjálenska snillinga.

http://www.youtube.com/watch?v=WGOohBytKTU
http://www.youtube.com/watch?v=ZbbxA8a_M_s
http://www.youtube.com/watch?v=X-jVAHAuiS4
http://www.youtube.com/watch?v=WGoi1MSGu64

tékkaðu á þessu ef þú hefur ekki séð þetta, er alveg 100% að þú fílar þetta í tætlur

MartaDecember 12th, 2007 at 12:50

SJÁUMST Í SINGAPORE 26 DES :D:D:D:D:D:D:D:D:D:D

steiniDecember 13th, 2007 at 2:01

2 dagar í thailand, 13 dagar í singó ! :D

JúlliDecember 13th, 2007 at 13:11

Sæll,

Þessir kofar á landamærunum minna mig á smíðanámeskeiðið í grunnskóla!!!

En gaman að það sé gaman.

steiniDecember 13th, 2007 at 15:43

gaman að vita til þess að Júlli var á aðeins þróaðra smíðanámskeiði en flest okkar :)

steinar UBERDecember 13th, 2007 at 18:52

Ég kommentaði hérna um daginn.

Það hefur ekki komist í gegn greinilega.

Nenni ekki að skrifa það niður aftur.
Tékkaðu á flight of the conchords, veit að þú átt eftir að digga þá:

http://youtube.com/watch?v=WGOohBytKTU - Business Time
http://youtube.com/watch?v=WGoi1MSGu64&feature=related - The humans are dead
http://youtube.com/watch?v=ZbbxA8a_M_s&feature=related - Hiphopopotamus vs. Rhymenoceros
http://youtube.com/watch?v=X-jVAHAuiS4&feature=related - Albi (racist dragon)

Take care dude!

MartaDecember 14th, 2007 at 12:32

11 dagar í brottför hjá mér :) hehe

free download of blackjeck card gameNovember 10th, 2008 at 15:57

free download of blackjeck card game…

perfected gilding?persevering Fontainebleau inimical:…

Leave a comment

Your comment