sóknargjöld
Posted on 01.29.08 by steini @ 18:36

Þetta skref Kristjáns er vissulega góðs viti, þarna er verið að reyna að minnka mismununa. Aftur á móti hlýtur fólk að sjá að þarna er aðeins verið að laga eina mismununina, meðan önnur heldur áfram að vera til, þ.e. að trúlausir þurfi að borgar sóknargjöld þegar þeir eru ekki í neinum sóknum. Skora á Kristján og aðra alþingismenn að ganga skrefinu lengra og afnema að fólk skráð utan trúfélaga sé látið borga þennan skatt.

edit: Svo ég haldi nú aðeins áfram. Mæli með að sem flestir kíki á þetta skjal. Þetta er sundurliðun á útgjöldum úr ríkissjóð til ríkiskirkjunnar.
4.700.700.000 ISK á ári !!! Með öðrum orðum næstum 5 milljarðar. Það væri ansi mikið hægt að gera við þá peninga.


Skráð sem: Pólitík og Trúmál
Svör: It´s all happening! - (4)

Listamannalaun
Posted on 01.29.08 by steini @ 0:16

uss uss uss… tæpar 300milljónir í þetta project. Tæpar 240.000kr á mánuði, fá svo pening fyrir það sem þau gera og mega vera í hlutastarfi með. Þegar ég fæ vinnu væri ég alveg til í að fá svona auka díl með launaumslaginu mínu.

Þriðja verkefnið í heimspekinni komið í hús. Fyrri tvö voru mjög góð og fínar einkunnir fyrir það. Hef á tilfinningunni að það nái ekki alveg að komast það hátt. Annars er allt að ganga ágætlega fyrir utan opinberu fjármálin. Algjört aulaklikk í fyrsta verkefninu sem skrifast algjörlega á mig og svo greinilega einhver hugmynda ágreiningur hjá mér og kennaranum í öðru verkefninu. Vonandi að ég nái að klóra mig sæmilega fram úr því næsta.

Hlustaði örugglega á svona 100 cure lög í dag meðan ég gerði þetta verkefni. Djöfull er það góð hljómsveit.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Pólitík
Svör: 1 svar komið

morfís brjóst
Posted on 01.27.08 by steini @ 17:49

hef sjaldan verið að skora hátt hjá leitarvélum, en nýlega kom mikill kippur í þá sem rötuðu inná þessa síðu gegnum leitarvélar. Þar var aðallega um að ræða fólk sem leitaði að “morfís brjóst”, “morfís berbrjósta” og “tinna berbrjósta” (er t.d. 4 tengillinn þegar leitað er að morfís brjóst á google…). Þegar ég fór að skoða málið betur er það vegna þessarar skemmtilegu færslu og svo ná leitarbottarnir að tengja það við einhverja morfís tengla á síðunni. Tinnu tengingin var svo fengin útaf tenglinum á síðuna hjá Sigga og Tinnu.
Skemmtilegt hvernig leitarvélarnar tengja við mann :)


Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi
Svör: It´s all happening! - (2)

imbinn
Posted on 01.26.08 by steini @ 22:28

Ákvað í kvöld að gefa spaugstofunni smá séns, enda þvílíkt mikið efni sem þeir höfðu úr að moða og meðal grínistahópur hefði ekki átt að vera í erfiðleikum með að gera sprenghlægilegan þátt. Spaugstofan náði því samt ekki og atriðin með hnífana sem voru gegnum gangandi í þættinum voru bara aldrei fyndin.

Afslöppunin sem ég ætlaði að eiga hér um helgina féll dálítið um sjálfa sig í gær þegar ákveðið var að skella sér í partý og læti. Dagurinn í dag var þeim mun erfiðari fyrir vikið.


Skráð sem: Bifröst og Nöldur
Svör: Ekkert ennþá

þú ert aldrei einn
Posted on 01.25.08 by steini @ 16:40

Vikan búin, róleg helgi uppá Bifröst tekur við, nema hvað maður þarf að klára 1-2 verkefni. Tók nokrar myndir úti áðan til að sýna snjóinn. Þó hann valdi oft þvílíku veseni, kulda og því að maður blotnar, þá er samt eitthvað við snjóinn sem róar mann og kemur með vellíðan.

edit: Gleymdi greinilega að henda inn þessum myndum, en hérna eru þær
Bílastæðin fyrir utan kotin og garðana
Bollakot
Hamragarður
Aðalból

Rambaði inn á eina útlenda blogsíðu í dag, sem var kanski ekkert svo merkilegt (hún var reyndar tilnefnd í einhverri heimasíðukeppni), en það var tvennt sem greip augun strax. Í fyrsta lagi helvíti töff header mynd og svo tagline-ið “If you’re one in a million, there are six thousand people exactly like you”.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

borgin
Posted on 01.24.08 by steini @ 23:50

Hér finnst mér Atli Harða komast ágætlega að máli um það sem hefur gerst í Reykjavík síðustu mánuði (þó ég þekki ekki REI málið nægjanlega vel). Það voru allir sekir en allir reyndu að halda fram sakleysi sínu :)


Skráð sem: Pólitík
Svör: 1 svar komið

langþráð færsla
Posted on 01.24.08 by steini @ 18:34

Vá, það er orðið langt síðan maður lét heyra í sér. Það var þó ekki meiningin, helduru hefur bara verið mjög mikið að gera hjá manni síðustu 2-3 vikurnar.
Fyrsta vikan hérna uppfrá byrjaði reyndar frekar rólega ef frá er dregið fínasta fyllerí sem maður skellti sér á á fimmtudaginn. Ákvað reyndar að skrá mig í fimmta kúrsinn og er því að taka 18 einingar samtals yfir önnina. Það verður eitthvað gaman. Verkefni, tímapróf eða eitthvað álíka fyrir hvern kúrs einu sinni í viku (nema auðvitað að það sé stórt verkefni sem taki nokkrar vikur… en það kemur niður á sama stað). Ákvað að slaka á uppá röstinni þá helgi og ná aðeins áttum. Vikuna eftir byrjaði svo að snjóa mjög mikið og enn í dag snjóar (rétt kom smá rigning í gær, en annars er fannfergi). Vikan var samt eins og vikan á undan, mikill lærdómur og lítið merkilegt að segja, nema auðvitað að em byrjaði (sem er búið núna fyrir okkur). Bifrestingar ákváðu reyndar að skreppa til Akureyrar í bretta og djamm ferð þá helgi. Ég krassaði hjá Lindu og Ernu uppí Giljahverfinu. Hitti svo Völu og Gulla (var í sveit hjá foreldrum þeirra forðum) þar og var helgin eiginlega bara eitt stórt djamm + handboltagláp. Náði að týna myndavélinni hennar Ernu en hún fannst svo daginn eftir af stelpu sem reyndi að hrækja á mig kvöldið áður. Ástæðuna fyrir því má væntanlega skrifa á mikla almenna ölvun og þá sérstaklega þessarar ungu snótar. Erna var reyndar ekkert of sátt með mig eftir þessa helgi. Í fyrsta lagi auðvitað útaf þessari myndavél og svo vegna þess að ég sýndi fram á að vera lang versti kúrufélagi ever fyrri nóttina þegar ég togaði öll teppi eða sængur af henni og krafðist þess svo að glugginn yrði opnaður í skítkaldri stofu. Ég fékk allavega Lindu rúm kvöldið eftir og Linda svaf í Ernu rúmi :) Stefni svo að vera hér uppfrá aftur þessa helgi og læra og slaka á. Fer reyndar að vera 1 mánuður síðan maður hitti móður og föður eininguna, en þau hafa nú lifað það verra.

Um daginn smakkaði ég kóreska hrísgrjónavínið sem ég kom með frá DMZ svæðinu í Kóreu. Það smakkast eins og Tequila og viský blandað saman, algjör óþverri. Greinilegt að Kóreubúar eru ekki bestu bruggarar í heimi, þó þeir geir Soju sem smakkast hræðilega fyrst en verður svo eiginlega ávanabindandi.

Hvað er eiginlega að gerast í pólitíkinni á Íslandi samt? Allt að verða crazy, nýr meirihluti, Bingi hættur og ég veit ekki hvað og hvað. Verð þó að segja að mér finnst þessi nýja meirihlutamyndun frekar léleg eitthvað. Ólafur ekkert að láta sína meðframbjóðendur vita og svo er allt í einu stokkið fram og tilkynnt um niðurstöðuna. Líka skrítið að Vilhjálmur láti fá sig út í þetta. Held að löglegt en siðlaust eigi ágætlega við um þetta. Sjallar hefðu betur átt að koma sterkir inn í andstöðunni, vinna sig inn hjá fólki og rústa næstu kosningum.

Hlutlægt, huglægt, er eitthvað hlutlægt yfir höfuð? Er stærðfræði bæði hlutlæg og huglæg? Verður einhverntíman hægt að gera huglægan mælikvarða og fá eitthvað hlutlægt? Er eitthvað alveg víst nema þessi setning Descartes “Ég hugsa, þessvegna er ég”?
Merkilegt með svona pælingar, að þótt þær séu mjög súrar eitthvað, þá finnst mér mjög gaman að þeim :)
Það er kanski ein af ástæðum þess að mig hlakkar einstaklega mikið til fyrir næsta verkefni í stjórnmálaheimspeki, “málsvörn fyrir nytjastefnuna”. En nytjastefnuna er einmitt hægt að gagnrýna á svo ótal vegu. Þetta verður challenge og þetta verður gaman.

Júlíus nokkur Arnarsson kom undir lok síðasta árs með skemmtilegan árslista af því tónlistar efni sem hann hafði haldið mest uppá á síðasta ári. Hafði þó áður heyrt í Radiohead og Beirut, en hitt var alveg nýtt fyrir mér. Og þvílík uppgötvun. Allir diskarnir, fyrir utan Arcade fire sem ég hef ekki enn hlustað á, eru gargandi snilld. Frábært frábært frábært. Verð þó að segja að Robert Plant & Alison Kauss diskurinn skarar fram úr. Hrein unun að hlusta á þann disk.
Öll þessi tónlist passar svo vel við hvað sem er. Síðustu tvær vikurnar hef ég t.d. lært, sofnað og slakað á við hana, alla dagana. Sést vel á þessum lista hvað þetta kom sterkt inn hjá mér í síðustu viku. Verður samt væntnalega mun stærra þegar þessi vika verður gerð upp á sunnudaginn.
Plús á Júlla fyrir þetta, jafnvel þótt ég hafi séð að margt af þessu er einnig á öðrum topplistum víðsvegar um heim.

Hér eru svo nokkrir áhugaverðir linkar:
Hillllaríus myndband af virkilega vitgrannri ljósku í spurningaþætti sem vissi ekki að Evrópa væri heimsálfa… Kjánahrollur
Er þessi mynd svo sæt eða sorgleg?
Svo er hér ein sæt jólamynd sem lætur okkur hugsa smá.
Þetta er svo skemmtileg lesning um p2p, hackers, útgáfufyrirtæki og hræsnara sem missa allt niður um sig. Er ekki frá því að maður hafi hugsað smá “victory is near” þegar maður las þetta.
Enda svo á skemmtilegum lista yfir bíómyndir sem er ekkert of líklegt að maður hafi séð á síðasta ári, en eru engu að síður mjög góðar. Mæli með þessum lista, hef séð svona 8-10 myndir þarna og þær voru allar mjög góðar (nema sunshine, hún var hryllingur).

Svo eru það stóru spurningarnar… hvað á ég að skrifa BA ritgerðina um, en ég þarf að skila inn hugmynd að ritgerð og beiðni um tútor fyrir 7 feb. Hef satt best að segja ekki hugmynd um hvað ég á að gera. Svo er það hvað maður á að gera í missó. Þetta helvítis skrímsli sem tekur alla orku manns í allavega 3 vikur, en maður lærir mjög vel á, færist nær og nær og maður er eins og venjulega í einhverju móki og veit ekkert hvernig hópaskiptingin verður eða hvað maður á að skrifa um. Loka spurningin er svo hvort maður eigi að taka sér eitt ár í frí og borga upp skuldir eða reyna að komast í skóla úti. Og ef maður fer í master úti, hvað á ég nákvæmlega að fara í? Hagfræði (sem mig langar mest í, en ég þarf væntanlega aðeins meiri stæ fyrir það), alþjóða samskipti, eða bara eitthvað allt annað. Úfff… erfitt að velja.

Ég er alltaf að lofa myndum. ég ætla bara að halda áfram að lofa þeim, þær koma einhverntíman :)

Ef einhver á svo lagið Hótel Jörð (helst í flutningi Pálma Gunnarssonar), þá má sá hin sami hafa samband við mig sem fyrst :D


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Hugleyðingar og Pólitík og Tónlist og Vesen
Svör: It´s all happening! - (2)

pæling…
Posted on 01.08.08 by steini @ 1:21

…hvort þetta sé næst á dagskrá


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: Ekkert ennþá

kominn heim
Posted on 01.03.08 by steini @ 18:50

Kom heim í gær eftir 5 mánuði úti. Viðurkenni það alveg að það var þægileg tilfinning að renna í hlaðið á Garðaflötinni, fara í íslenska sturtu og sofa í rúminu sínu.

Þessi póstur kom á bifrastar mailið áðan:

“Sæl öll

Ekki vill svo vel til að einhver ykkar eigi blásturshljóðfæri til að lána fram yfir helgi? Hvað sem er kemur til greina.”

Vá hvað einhver ætlar að vera leiðinlegur við nágrannana þessa helgina :) Kanski ágætt að maður sé ekki að flytja uppeftir fyrr en á sunnudaginn :)


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (4)

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér