langþráð færsla
Vá, það er orðið langt síðan maður lét heyra í sér. Það var þó ekki meiningin, helduru hefur bara verið mjög mikið að gera hjá manni síðustu 2-3 vikurnar.
Fyrsta vikan hérna uppfrá byrjaði reyndar frekar rólega ef frá er dregið fínasta fyllerí sem maður skellti sér á á fimmtudaginn. Ákvað reyndar að skrá mig í fimmta kúrsinn og er því að taka 18 einingar samtals yfir önnina. Það verður eitthvað gaman. Verkefni, tímapróf eða eitthvað álíka fyrir hvern kúrs einu sinni í viku (nema auðvitað að það sé stórt verkefni sem taki nokkrar vikur… en það kemur niður á sama stað). Ákvað að slaka á uppá röstinni þá helgi og ná aðeins áttum. Vikuna eftir byrjaði svo að snjóa mjög mikið og enn í dag snjóar (rétt kom smá rigning í gær, en annars er fannfergi). Vikan var samt eins og vikan á undan, mikill lærdómur og lítið merkilegt að segja, nema auðvitað að em byrjaði (sem er búið núna fyrir okkur). Bifrestingar ákváðu reyndar að skreppa til Akureyrar í bretta og djamm ferð þá helgi. Ég krassaði hjá Lindu og Ernu uppí Giljahverfinu. Hitti svo Völu og Gulla (var í sveit hjá foreldrum þeirra forðum) þar og var helgin eiginlega bara eitt stórt djamm + handboltagláp. Náði að týna myndavélinni hennar Ernu en hún fannst svo daginn eftir af stelpu sem reyndi að hrækja á mig kvöldið áður. Ástæðuna fyrir því má væntanlega skrifa á mikla almenna ölvun og þá sérstaklega þessarar ungu snótar. Erna var reyndar ekkert of sátt með mig eftir þessa helgi. Í fyrsta lagi auðvitað útaf þessari myndavél og svo vegna þess að ég sýndi fram á að vera lang versti kúrufélagi ever fyrri nóttina þegar ég togaði öll teppi eða sængur af henni og krafðist þess svo að glugginn yrði opnaður í skítkaldri stofu. Ég fékk allavega Lindu rúm kvöldið eftir og Linda svaf í Ernu rúmi
Stefni svo að vera hér uppfrá aftur þessa helgi og læra og slaka á. Fer reyndar að vera 1 mánuður síðan maður hitti móður og föður eininguna, en þau hafa nú lifað það verra.
—
Um daginn smakkaði ég kóreska hrísgrjónavínið sem ég kom með frá DMZ svæðinu í Kóreu. Það smakkast eins og Tequila og viský blandað saman, algjör óþverri. Greinilegt að Kóreubúar eru ekki bestu bruggarar í heimi, þó þeir geir Soju sem smakkast hræðilega fyrst en verður svo eiginlega ávanabindandi.
—
Hvað er eiginlega að gerast í pólitíkinni á Íslandi samt? Allt að verða crazy, nýr meirihluti, Bingi hættur og ég veit ekki hvað og hvað. Verð þó að segja að mér finnst þessi nýja meirihlutamyndun frekar léleg eitthvað. Ólafur ekkert að láta sína meðframbjóðendur vita og svo er allt í einu stokkið fram og tilkynnt um niðurstöðuna. Líka skrítið að Vilhjálmur láti fá sig út í þetta. Held að löglegt en siðlaust eigi ágætlega við um þetta. Sjallar hefðu betur átt að koma sterkir inn í andstöðunni, vinna sig inn hjá fólki og rústa næstu kosningum.
—
Hlutlægt, huglægt, er eitthvað hlutlægt yfir höfuð? Er stærðfræði bæði hlutlæg og huglæg? Verður einhverntíman hægt að gera huglægan mælikvarða og fá eitthvað hlutlægt? Er eitthvað alveg víst nema þessi setning Descartes “Ég hugsa, þessvegna er ég”?
Merkilegt með svona pælingar, að þótt þær séu mjög súrar eitthvað, þá finnst mér mjög gaman að þeim ![]()
Það er kanski ein af ástæðum þess að mig hlakkar einstaklega mikið til fyrir næsta verkefni í stjórnmálaheimspeki, “málsvörn fyrir nytjastefnuna”. En nytjastefnuna er einmitt hægt að gagnrýna á svo ótal vegu. Þetta verður challenge og þetta verður gaman.
—
Júlíus nokkur Arnarsson kom undir lok síðasta árs með skemmtilegan árslista af því tónlistar efni sem hann hafði haldið mest uppá á síðasta ári. Hafði þó áður heyrt í Radiohead og Beirut, en hitt var alveg nýtt fyrir mér. Og þvílík uppgötvun. Allir diskarnir, fyrir utan Arcade fire sem ég hef ekki enn hlustað á, eru gargandi snilld. Frábært frábært frábært. Verð þó að segja að Robert Plant & Alison Kauss diskurinn skarar fram úr. Hrein unun að hlusta á þann disk.
Öll þessi tónlist passar svo vel við hvað sem er. Síðustu tvær vikurnar hef ég t.d. lært, sofnað og slakað á við hana, alla dagana. Sést vel á þessum lista hvað þetta kom sterkt inn hjá mér í síðustu viku. Verður samt væntnalega mun stærra þegar þessi vika verður gerð upp á sunnudaginn.
Plús á Júlla fyrir þetta, jafnvel þótt ég hafi séð að margt af þessu er einnig á öðrum topplistum víðsvegar um heim.
—
Hér eru svo nokkrir áhugaverðir linkar:
Hillllaríus myndband af virkilega vitgrannri ljósku í spurningaþætti sem vissi ekki að Evrópa væri heimsálfa… Kjánahrollur
Er þessi mynd svo sæt eða sorgleg?
Svo er hér ein sæt jólamynd sem lætur okkur hugsa smá.
Þetta er svo skemmtileg lesning um p2p, hackers, útgáfufyrirtæki og hræsnara sem missa allt niður um sig. Er ekki frá því að maður hafi hugsað smá “victory is near” þegar maður las þetta.
Enda svo á skemmtilegum lista yfir bíómyndir sem er ekkert of líklegt að maður hafi séð á síðasta ári, en eru engu að síður mjög góðar. Mæli með þessum lista, hef séð svona 8-10 myndir þarna og þær voru allar mjög góðar (nema sunshine, hún var hryllingur).
—
Svo eru það stóru spurningarnar… hvað á ég að skrifa BA ritgerðina um, en ég þarf að skila inn hugmynd að ritgerð og beiðni um tútor fyrir 7 feb. Hef satt best að segja ekki hugmynd um hvað ég á að gera. Svo er það hvað maður á að gera í missó. Þetta helvítis skrímsli sem tekur alla orku manns í allavega 3 vikur, en maður lærir mjög vel á, færist nær og nær og maður er eins og venjulega í einhverju móki og veit ekkert hvernig hópaskiptingin verður eða hvað maður á að skrifa um. Loka spurningin er svo hvort maður eigi að taka sér eitt ár í frí og borga upp skuldir eða reyna að komast í skóla úti. Og ef maður fer í master úti, hvað á ég nákvæmlega að fara í? Hagfræði (sem mig langar mest í, en ég þarf væntanlega aðeins meiri stæ fyrir það), alþjóða samskipti, eða bara eitthvað allt annað. Úfff… erfitt að velja.
—
Ég er alltaf að lofa myndum. ég ætla bara að halda áfram að lofa þeim, þær koma einhverntíman
—
Ef einhver á svo lagið Hótel Jörð (helst í flutningi Pálma Gunnarssonar), þá má sá hin sami hafa samband við mig sem fyrst

Þú lætur vita þegar þú verður svangur, erum boðin og búin til að fæða fátæka námsmenn sem við höfum ekki séð alltof lengi:)
Hei, ég blogga kanski oft, en þú bloggar laaaanngt! Kominn tími til maðr.