vandræðalegt
Posted on 02.29.08 by steini @ 0:49

smá vandræðaleg og óheppileg mynd :)

viðbót: Önnur mjög óheppileg en fyndin mynd þegar leitað er að fíkniefni + bifröst á google. Vonum að Bryndís deildastjóri hafi húmor fyrir því hvernig leitarvélin google virkar :)


Skráð sem: Bifröst
Svör: It´s all happening! - (5)

Kóala-quizið #1
Posted on 02.28.08 by steini @ 16:57

Þá er komið að næstu spurningakeppni. Hef núna ákveðið að gera þetta að smá meiri keppni og gera eina stóra keppni (Kóala-quizið) úr fimm minni, þ.e. ég mun láta inn nýja getraun hvern fimmtudag næstu fimm vikurnar og eftir hverja keppni, sem endar á mánudögum kl 15:00, er tilkynntur vinningshafi. Eftir að allar fimm keppnirnar eru búnar verður sá einstaklingur sem áunnið hefur sér flest stig samanlagt krýndur hinn eini sanni vinningshafi, Handhafi Kóala myndarinnar*. Vinningshafinn mun þá hafa rétt til að prenta myndina út, hengja hana uppá vegg eða nota hana á annan hátt til að auka við mannorð sitt. Nafnbótin og leyfi fyrir notkun myndarinnar eru þó einungis tímabundin og missir vinningshafinn þau þegar næsti vinningshafi verður krýndur (5 vikum seinna). Fyrir utan heiðurstitlana verða einnig einhver veraldleg verðlaun sem gefin verða af umsjónarmanni getraunarinnar. Þau verða ákveðin síðar.

Getraun þessarar vikur verður eins of fyrri getraunin alfarið tengd tónlist, en það má búast við að í næstu getraunum geti komið fram myndaspurningar, orðaspurningar o.s.frv.
Svörun verður opin fram yfir helgi og fram til 15:00 á mánudaginn. Heildarstig í keppninni eru 22.

Spurning #1:
Jæja fyrsta spurningin í þessari keppni er einföld. Hér verður einungis spurt um nafn söngkonunnar og heiti lagsins.(2 stig)

Spurning #2:
Lag þetta kom fyrir sjónir almennings 1998 og varð nokkuð vinsælt á Íslandi. Nafn hljómsveitarinnar kemur frá málverki sem var stælingu á frægu listaverki. Spurt er um nafn á hljómsveit og lagi.(2 stig)

Spurning #3:
Næsti tónlistarmaður kom með disk snemma á þessari öld og varð eitt lagið, það sem hér er um rætt, lang vinsælast á disknum hans. Þessi hljómlistamaður er þó lang þekktastur fyrir allskonar aðra listaviðburði, svo sem myndlist, gjörninga og videouppkomu. Hver er listamaðurinn og hvað er lagið?(2 stig)

Spurning #4:
Hér kemur mjög þekkt lag í aðeins öðruvísi búning, enda tekið upp af tónleikum. Ætti að vera auðvelt fyrir alla sem hlustuðu á tónlist á 10 áratug síðustu aldar. Spurt um lag og höfund. (2 stig)

Spurning #5:
Þetta lag er ekkert rosalega þekkt, enda er ætlunin ekki að spurja um lagið sjálft heldur annað lag sem byggir að nokkru leiti á þessu lagi. Lagið sem spurt er um hafði sem sagt yfir að búa sample (bút) úr því lagi sem heyrist hér. Það lag varð mjög vinsælt seint á 10. áratugnum og var t.a.m. notað í fræga auglýsingu. Nefnið höfund nýja lagsins, heiti þess og hvað var verið að auglýsa. (3 stig)

Spurning #6:
Kanski ekki þekktasta lagið með hljómsveitinni, en ætti engu að síður að vera nokkuð augljóst. Spurt um lag og höfund.(2 stig)

Spurning #7:
Hér er komið annað lag sem er í aðeins öðruvísi búning en maður heyrir það vanalega í, hljómar dálítið eins og það sé tekið úr Theme Hospital leiknum :) En engu að síður. Hér er spurt um hvaða lag þetta sé, hvaða hljómsveit spilar lagið og af hvaða official útgefna disk hljómsveitarinnar þetta lag er tekið. (3 stig)

Spurning #8:
Sveit sem kom fram á Íslandi 1997. Í forsvari fyrir sveitina var söngkona sem skar sig dálítið út úr öðrum einstaklingum sem höfðu og hafa síðan þá verið framarlega í þessari tónlistarstefnu hérlendis. Spurt er um nafn hljómsveitar og lags. (2 stig)

Spurning #9:
Þetta stef kannast margir við og er hér einungis spurt um hvaðan þetta kunnuglega stef kemur. (1 stig)

Spurning #10:
Lag þetta er eini alvöru hittari sveitarinnar, þótt sveitin hafi gefið út 3 stúdíóplötur á næstum 18 ára ferli sínum (ein plata er á leiðinni á þessu ári). Eini meðlimur sveitarinnar sem hefur verið frá upphafi og er kjarni hennar hefur verið í annari mjög þekktri hljómsveit sem meðal annars kom til Íslands og spilaði tvisvar. Hver er hljómsveitin, lagið og hin þekkta hljómsveitin sem aðaleinstaklingur þessar sveitar hefur spilað í? (3 stig)

*Kóalabirnir eru merki um æðri tilveru, fjarskynjun og veðurstjórnun.


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (4)

kvikmyndir sem hafa haft mikil áhrif á mig
Posted on 02.26.08 by steini @ 20:34

Í gær horfði ég á mynd sem náði rosalega til mín, skildi mikið eftir og fékk mig til að hugsa töluvert. Myndin er Into the wild og er í leikstjórn Sean Penn með Emile Hirsch í aðalhlutverki. Myndin gengur út á að karakter Emile’s er að klára college með fínar einkunnir en í stað þess að fara í áframhaldandi nám ákveður hann að gefa spariféð sitt til góðgerðamála og halda á vit ævintýranna, fjarri heiminum þar sem allt snýst um peninga og starfsferil. Hann heldur því í vestur frá vestur Virginíu og ferðast svo með vesturströnd Bandaríkjana áður en hann ákveður að halda einn síns liðs til Alaska þar sem hann ætlar að búa og ferðast um óbyggðirnar.
Á ferðalagi sínu hittir aðalpersónan fullt af öðru skemmtilegu fólki sem hefur áhrif á hann auk þess sem hann hefur áhrif á aðra. Ég mæli allavega mjög með þessari mynd, en þess ber að geta að hún er enganvegin einhver poppkornsmynd. framvindan er á rólegu tempói og það er mikið um pælingar og þróun karaktersins. Ef þannig myndir höfða til ykkar, kíkið á hana.

Í framhaldi af því að hafa séð þessa mynd sem mun örugglega hafa mun meiri áhrif á mig til langs tíma en ég er að gera mér í hugarlund núna, þá fór ég að rifja upp aðrar myndir sem hafa náð til mín og haft mikil áhrif á það hvernig ég er og haga mér í dag. Meðal þessara mynda má nefna (ekki í neinni sérstakri röð): The Man from Earth, Amelie, The Virgin Suicides, Lawrence of Arabia, Fight Club, Crash, City of God og Almost Famous.
Þetta eru allavega þær myndir sem mér dettur í hug í fljótu bragði, þær eru örugglega töluvert fleiri.


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar og Kúltúra
Svör: It´s all happening! - (6)

nettengingar
Posted on 02.26.08 by steini @ 18:17

Internet aðgangur Íslendinga við umheiminn eru algjört djók. Í þessari frétt er t.d. komið inná að Björgólfur Thor sé að fara að fjárfesta í netþjónabúi og sé búinn að gera samning við Farice uppá 80 gbit samband gegnum Farice-1 og 80 gbit aðgang gegnum Danice (sem er væntanlegur í framtíðinni). Nú þegar er Farice-1 strengurinn með getu að flytja 720gbit á sek, en er aðeins að nota 4gbit. Þetta er sérstaklega vegna þess hversu gífurlega hátt gjald er á notkun um strenginn. Það hlýtur samt að segja sig að stærsti hlutinn við kostnað stengsins er fastur kostnaður, en ekki breytilegur kostnaður og því ætti fyrirtækið að sjá sér hag í að fá fleiri á strenginn og reyna að fullnýta flutningsgetuna. En nei, það vill Farice fyrirtækið ekki gera.
Þessi nýi danice strengur verður í eigu sama fyrirtækis, en við endurfjármögnun mun Farice fyrirtækið komast í eigu ríkisins. Spurning hvort ríkið muni sjá hvurslags rugl er í gangi þarna og lækka verðið á gagnaflutningnum svo fleiri vilji kaupa bandvídd en í dag. Það gæti svo einnig bara alveg verið að sömu einstaklingar fái að sitja í stjórn fyrirtækisins og muni ennþá halda verðinu uppi og gagnaflutningum niðri í krafti einokunaraðstöðu sinnar. Þegar Danice strengurinn verður tilbúinn verðum við með um 5720 gbit samband (danice um 5000 og farice 720gbit) og notkunin verður 4 gbit á alla íslendinga og 160 gbit á fyrirtækið hans Björgólfs. Finnst engum öðrum en mér skrítið að við séum að búa til svona gífurlega bandvídd sem enginn fær svo að nota? Tæplega 3% notkun af því sem gæti verið!!!!
Ég er mjög sáttur með þetta framlag Björgólfs, en hvernig tengingarmálum við útlönd er háttað er bara brandari þar sem neytendur eru dregnir á asnaeyrunum. Skil heldur ekki alveg afhverju þetta er svona. Bæði Síminn og Vodafone eru stórir eigendur í farice og það hlýtur að vera að þau sjái sér hag í því að halda internet hraða við útlönd niðri. Hvaða monkey business er það eiginlega?

Stefni á að henda nýrri getraun inn á morgun. Hægt verður að svara henni fram yfir helgi en niðurstöður verða kynntar milli 12 og 15 á mánudaginn.


Skráð sem: Fréttir og Hugleyðingar og Nöldur og tölvur og nördismi
Svör: Ekkert ennþá

#/%&/#$%&#!
Posted on 02.24.08 by steini @ 19:51

helvítis kirkjuklukkur. Þó það sé sunnudagur og það sé einhver voða heilagur dagur í augum kristinna (sést það ekki vel í íslensku samfélagi í dag?) þá er algjör óþarfi að vera með 10 min kirkjuklukkusóló 3-6x yfir daginn. Ef ég má ekki vera með partý og læti á nóttinni, þá á helvítis kirkjan ekki að mega vera með kirkjuklukkusóló sem heyrist í órafjarlægð þegar henni hentar.
Váááááááááá….. ætlar þetta ekki að hætta. Hvenær varð það virkilega þarft að hringja inn og út úr kirkju í svona gífurlega langan tíma? Myndi kanski sætta mig við 1-2 kling, en í meira en 10 min í hvert skipti. Holy crap!
edit: Þetta er aftur byrjað!!! Hvað er eiginlega að fólki!

Fyndin grein í New york magazine um fólk sem velur sér bara föt í sama litnum. Blár, hvítur, brúnn, grænn og grár. Frekar súrt, en skemmtilegt


Skráð sem: Nöldur og Trúmál
Svör: It´s all happening! - (4)

Hraunormur
Posted on 02.22.08 by steini @ 13:51

Skólablað nemendafélagsins á Bifröst var að koma út núna í vikunni. Ég á eina grein í blaðinu um ferðalög og svo erum við Palli með umræður um hundaát á öðrum stað. Hér er greinin um ferðalögin og hér er hundaáts umræðan.
Skólablaðið sjálft er svo hægt að nálgast hér. Mjög skemmtileg lesning. Mæli sérstaklega með myndrænum lýsingum Helga Hard :) Einnig slatti af góðum myndum.


Skráð sem: Bifröst
Svör: 1 svar komið

úrslit, uppgjör vikunnar og helgin
Posted on 02.22.08 by steini @ 12:17

Jæja þá eru úrslit ljós úr fyrstu tónlistargetrauninni. Þátttaka var ekkert rosaleg, en margir kvörtuðu víst yfir því að þetta væri of erfitt. Það verður fólk bara að eiga við sig og bíða bara eftir næstu getraun og sjá hvort þær spurningar hennti þeim betur.
Allavega, svör við spurningunum voru:

sp1: Devil went down to Georgia með Charlie Daniels Band og það er Johnny Cash sem er sögumaðurinn á einum stað í laginu.
sp2: Depeche Mode með lagið People are people.
sp3: Verve - Sonnet
sp4: Harvey Danger með Flagpole Sitta (gef líka rétt fyrir að segja I’m not sick but i’m not ill)
sp5: Datarock með lagið FaFaFa
sp6: Hér er byrjunin á Gus Gus laginu Why? og er það Emiliana Torrini sem syngur.
sp7: Starland Vocal Band og lagið Afternoon Delight

Stig:
Róbert - 14 stig
Steinar - 14 stig
Þórður - 11 stig
Ísak - 5 stig

Geri svo ráð fyrir að henda inn nýrri getraun í næstu viku og byrja þá einhverskonar keppni þar sem stig frá nokkrum keppnum verða lögð saman og krýndur verður getrauna meistari.

Ræðukeppnin búin, við töpuðum naumlega fyrir frumgreinadeildinni og lítið meira um það að segja. Við stóðum okkur mun verr heldur en á síðasta ári, fruman var mjög góð og það var ekki dæmt eins og við bjuggumst við. Rökin okkar fóru greinilega ekki í dómarana plús að okkur fannst þeir gefa andstæðingunum aðeins of hátt fyrir viss atriði. Þetta er samt bara búið og gert og lítið hægt að gera í þessu. Ég óska því bara frumunni til hamingju og vona að þau standi sig í næstu keppni.

Þrátt fyrir mikla törn í þessum ræðumálum hafa samt verkefnin gengið vonum framar jafnvel þótt maður hafi verið að gera þau á frekar litlum tíma og ekki búist við neinum rosalegum árangri. Það er þó jákvætt við þessa viku :)

Verð í bænum um helgina og ætla að nýta kvöldið í kvöld með fjölskyldunni. Ætlum að fara saman út að borða og það verður væntanlega bara frábært. Svo er Bifrovision á morgun (árshátíð skólafélagsins) og þá verður slett úr klaufunum á hótel loftleiðum.

Þetta er svo ræða sem ég mæli með að fólk kíki á. Þvílík ræða, þvílíkur sannfæringarkraftur og bara þvílíkur maður. Ég fékk allavega gæsahúð og það oftar en einu sinni.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og quiz
Svör: Ekkert ennþá

tónlistar quiz
Posted on 02.19.08 by steini @ 12:47

Ætla hér að koma af stað smá tónlistar-quizzi þar sem tóndæmi verða sett inn og tilgangurinn er að giska á flytjanda og nafn lags (2 stig, eitt fyrir flytjanda og eitt fyrir lag), nema annað sé tekið fram. Hægt er svara póstinum, en commentin munu ekki birtast fyrr en svörnin verða gefin upp, sem verður á föstudaginn kl 12.
Enn sem komið er verða engin verðlaun veitt, önnur en heiðurinn. Aftur á móti má skoða þann möguleika í framhaldi af þessari keppni hvort grundvöllur sé fyrir fleiri slíkar og þá hugsanlega með einhverjum verðlaunum.

Spurning #1:
Hér erum við með rosalegt sóló í lok lagsins sem spurt er um. Lagið sem slíkt er saga um mann í átökum sínum við yfirnáttúrulega veru. Lagið kom upprunalega út 1979 en dæmið sem við heyrum er frá 1993 þegar búið var að bæta við framhaldi við lagið. Í þeirri útgáfu er mjög þekktur einstaklingur sem kemur fram sem sögumaður. Nú er spurt hvert sé lagið, hver sé flytjandinn og hver sé sögumaðurinn. (3 stig)

Spurning #2:
Hér er lag sem kom út á níunda áratugnum og spurningin er einfaldlega hver sé flytjandi og hvað heitir lagið. (2 stig)

Spurning #3:
Hljómsveitin sem á þetta lag var áberandi á tíunda áratugnum og fékk mikið lof gagnrýnenda. Hún hefur gefið út þrjár stúdíó plötur og komst ein af þeim upp í fyrsta sætið á breska listanum. Sveitin hætti áður en áratugurinn var liðinn en hefur eftir það verið með come-back. Hvert er lagið og hver er sveitin? (2 stig)

Spurning #4:
Hér erum við með gott dæmi um one hit wonder hljómsveit (það er reyndar hægt að þræta um það) sem gaf út þetta víðheyrða lag 1998. Lagið hefur meðal annars verið notað í unglingakvikmynd og þekkt you tube myndband þar sem hópur fólks “söng” textann. Háskólarokk frá US. Hvert er lagið og hver er flytjandinn? (2 stig)

Spurning #5:
Eina vísbendingin með þessu lagi er að þetta er sveitin sem spilar er frá norðurlöndunum. Þeir sem geta aftur á móti uppá hljómsveitinni eru stimplaðir snillingar og fá auka stig fyrir að vera með bæði nafn sveitarinnar og lagsins á hreinu. (3 stig samtals)

Spurning #6:
Þetta er svo kunnulegt lag, en vita allir hvað þetta er? Auk þess að spurja um flytanda og lag, þá vil ég fá nafnið á söngkonunni sem syngur. Ath. Lagið er mjög lágt, þannig að ekki er verra að hækka aðeins. (3 stig)

Spurning #7:
Hér heyrum við byrjunin á mjög hugljúfu lagi frá áttunda áratugnum. Lagið kveikir kanski minningar hjá sumum frá því þegar Will Ferrel tók að sér að syngja lagið hér um árið. Lagið er nefnt eftir rétti á “special menu” hjá veitingastað sem hljómsveitarmeðlimirnir fóru stundum á.


Skráð sem: quiz
Svör: It´s all happening! - (5)

talningavélar
Posted on 02.17.08 by steini @ 14:33

Hvað á oft að þurfa að gagnrýna og finna veikleika við kosninga/talninga vélarnar í US til að það verði komið á betra kerfi? Hér er eitt dæmið enn um það hvað þessar vélar virðist oft vera annaðhvort illa forritaðar eða þá að þær séu forritaðar með slæmum vilja. Svona á ekki að geta komið upp í vél sem einungis fær skipun um að segja já við valmöguleika 1 eða valmöguleika 2 (eða kanski 5 valmöguleika).
Verst var þetta auðvitað í forsetakosningunum þegar vélin prentaði ekki einu sinni út miða svo hægt væri að staðfesta talninguna.


Skráð sem: Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

Hræsni og ræðukeppni
Posted on 02.15.08 by steini @ 0:11

Vá hvað ég er sammála þessu commenti . Það má sem borga sig inná allskonar spila og íþróttamót sem síðan hafa vinningsupphæðir, en það má ekki borga sig inná pókermót þar sem spilað er með spilapeninga og sá sem endar með flesta/alla spilapeningana fær vinningsupphæðina. Þvílík hræsni og mismunun á áhugamálum.

Þetta greiningarforrit frá ibm lookar mjög vel. Hér hefur til dæmis einn íslendingur hennt inn Egilssögu með orðið Egill sem upphafsorð. Röð og stærð orðana sem á eftir koma fer svo eftir þeim fjölda sem það kemur fyrir í textanum. Áhugavert að prufa sig áfram í þessu.

Búið er að semja um umræðuefni í ræðukeppnina sem fram fer næsta fimmtudag milli HHS og Frumunnar. Það er Þjóðernishyggja og munum við mæla á móti. Þetta verður sem sagt hardcore vika með miklu álagi og vökunóttum :) Það er samt alltaf þess virði í lokin.

Sá á þessari síðu að nýr diskur með Goldfrapp er væntanlegur í mars og svo verður Supergrass með nýja afurð í Apríl. Það eru ánægjulegar fréttir.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og tölvur og nördismi
Svör: It´s all happening! - (3)

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér