Myndir og fleira
hummm… hvað er maður að gera þessa dagana. Var að skila inn umsókn um BA ritgerðina (skil í ágúst) í gær. Svo er það bara þetta venjulega, læra og skemmtanir. Var einmitt grímuball á fimmtudaginn og ég ákvað að klæðast upp í Kóreska þjóðbúninginn. Mjög gott kvöld, en vegna mikillar þreytu var farið snemma í háttinn. Erum svo að læra um fjálshyggjuna í stjórnmálaheimspeki þessa dagana. Mjög gaman að fá aðeins víðsýnari sýn á kosti og galla við þessa stefnu.
—
Þetta er ein af ástæðunum afhverju mér finnst RIAA vera algjört rusl og tek lítið sem ekkert mark á þeim.
—
Þessi bók sem hér er gagnrýnd hljómar alveg yndislega í eyrum mínum. Minnir óneitanlega mikð á bókina Ár hérans eftir Arto Paasilinna, sem er auðvitað snilldarverk út í eitt. Þessi bók verður allavega sett á listann yfir bækur sem ég stefni á að lesa.
—
Rosalega þykja mér annars fréttir vera leiðinlegar þessa dagana. Bara eitthvað um slæmt veður og REI málið og innkomu Villa í þau mál. Hendið bara Villa frá borði, klárið þetta mál og farið að tala um eitthvað nýtt. Það er alveg á hreinu að sjallar munu skíttapa fylgi ef þeir fara ekki að hugsa af viti hvað þeir eigi að gera með gamla manninn.
Eina viturlega sem kemur annars fram um þessi REI mál kemur svo frá bæjarstjórn Akranes. Þetta er svona eins og eftirtektasami ferðamaðurinn sem sér gallana í samfélagi þar sem borgararnir hafa orðið svo samdauna ríkjandi ástandi að þeir sjá ekkert skrítið við það.
—
Hér eru svo myndirnar frá Thailandi loksins:
Ferð til Phi Phi eyja
Myndir frá Phuket
Bangkok 1
Bangkok 2
Ferð til Temple of Tigers
Ferð í þjóðgarð, ferð í uxakerru og á fílsbak
Veiðiferð á aðfangadag
