Kóala-quizið #1
Þá er komið að næstu spurningakeppni. Hef núna ákveðið að gera þetta að smá meiri keppni og gera eina stóra keppni (Kóala-quizið) úr fimm minni, þ.e. ég mun láta inn nýja getraun hvern fimmtudag næstu fimm vikurnar og eftir hverja keppni, sem endar á mánudögum kl 15:00, er tilkynntur vinningshafi. Eftir að allar fimm keppnirnar eru búnar verður sá einstaklingur sem áunnið hefur sér flest stig samanlagt krýndur hinn eini sanni vinningshafi, Handhafi Kóala myndarinnar*. Vinningshafinn mun þá hafa rétt til að prenta myndina út, hengja hana uppá vegg eða nota hana á annan hátt til að auka við mannorð sitt. Nafnbótin og leyfi fyrir notkun myndarinnar eru þó einungis tímabundin og missir vinningshafinn þau þegar næsti vinningshafi verður krýndur (5 vikum seinna). Fyrir utan heiðurstitlana verða einnig einhver veraldleg verðlaun sem gefin verða af umsjónarmanni getraunarinnar. Þau verða ákveðin síðar.
Getraun þessarar vikur verður eins of fyrri getraunin alfarið tengd tónlist, en það má búast við að í næstu getraunum geti komið fram myndaspurningar, orðaspurningar o.s.frv.
Svörun verður opin fram yfir helgi og fram til 15:00 á mánudaginn. Heildarstig í keppninni eru 22.
Spurning #1:
Jæja fyrsta spurningin í þessari keppni er einföld. Hér verður einungis spurt um nafn söngkonunnar og heiti lagsins.(2 stig)
Spurning #2:
Lag þetta kom fyrir sjónir almennings 1998 og varð nokkuð vinsælt á Íslandi. Nafn hljómsveitarinnar kemur frá málverki sem var stælingu á frægu listaverki. Spurt er um nafn á hljómsveit og lagi.(2 stig)
Spurning #3:
Næsti tónlistarmaður kom með disk snemma á þessari öld og varð eitt lagið, það sem hér er um rætt, lang vinsælast á disknum hans. Þessi hljómlistamaður er þó lang þekktastur fyrir allskonar aðra listaviðburði, svo sem myndlist, gjörninga og videouppkomu. Hver er listamaðurinn og hvað er lagið?(2 stig)
Spurning #4:
Hér kemur mjög þekkt lag í aðeins öðruvísi búning, enda tekið upp af tónleikum. Ætti að vera auðvelt fyrir alla sem hlustuðu á tónlist á 10 áratug síðustu aldar. Spurt um lag og höfund. (2 stig)
Spurning #5:
Þetta lag er ekkert rosalega þekkt, enda er ætlunin ekki að spurja um lagið sjálft heldur annað lag sem byggir að nokkru leiti á þessu lagi. Lagið sem spurt er um hafði sem sagt yfir að búa sample (bút) úr því lagi sem heyrist hér. Það lag varð mjög vinsælt seint á 10. áratugnum og var t.a.m. notað í fræga auglýsingu. Nefnið höfund nýja lagsins, heiti þess og hvað var verið að auglýsa. (3 stig)
Spurning #6:
Kanski ekki þekktasta lagið með hljómsveitinni, en ætti engu að síður að vera nokkuð augljóst. Spurt um lag og höfund.(2 stig)
Spurning #7:
Hér er komið annað lag sem er í aðeins öðruvísi búning en maður heyrir það vanalega í, hljómar dálítið eins og það sé tekið úr Theme Hospital leiknum
En engu að síður. Hér er spurt um hvaða lag þetta sé, hvaða hljómsveit spilar lagið og af hvaða official útgefna disk hljómsveitarinnar þetta lag er tekið. (3 stig)
Spurning #8:
Sveit sem kom fram á Íslandi 1997. Í forsvari fyrir sveitina var söngkona sem skar sig dálítið út úr öðrum einstaklingum sem höfðu og hafa síðan þá verið framarlega í þessari tónlistarstefnu hérlendis. Spurt er um nafn hljómsveitar og lags. (2 stig)
Spurning #9:
Þetta stef kannast margir við og er hér einungis spurt um hvaðan þetta kunnuglega stef kemur. (1 stig)
Spurning #10:
Lag þetta er eini alvöru hittari sveitarinnar, þótt sveitin hafi gefið út 3 stúdíóplötur á næstum 18 ára ferli sínum (ein plata er á leiðinni á þessu ári). Eini meðlimur sveitarinnar sem hefur verið frá upphafi og er kjarni hennar hefur verið í annari mjög þekktri hljómsveit sem meðal annars kom til Íslands og spilaði tvisvar. Hver er hljómsveitin, lagið og hin þekkta hljómsveitin sem aðaleinstaklingur þessar sveitar hefur spilað í? (3 stig)
*Kóalabirnir eru merki um æðri tilveru, fjarskynjun og veðurstjórnun.

1# Suzanne vega - tom’s diner
4# Blur - Girls & Boys (Albarn/Coxon/James/Rowntree)
5# The Wiseguys - Ooh La La Guinnes?
6# Skunk Anansie - Selling Jesus (Skin/Len Arran)
7# The Cure - Wrong Number Galore
9# Dressman auglýsing
10# The Breeders - CannonBall, Kim Deal úr Pixies
3. Egill Sæbjörnsson - Tonk of the Lawn (áskil mér rétt til að fara ekki nákvæmlega með stafsetningu).
4. Blur - Boys & Girls
5. Wiseguys - Ooh La-La úr Hunt’s auglýsingu
6. Skunk Anansie - Selling Jesus
7. The Cure - Wrong Number (acoustic) - CD2 af Greatest Hits plötunni.
8. Subterranean - It’s Tha Subta
9. Dressman auglýsing (Charles Wright & the 103rd street band - Express Yourself).
10. Breeders - Cannonball - Pixies.
Nr. 1 Suzanne Vega með Tom’s Diner
Nr. 2 Portishead ?
Nr. 3 Egill Sæbjörnsson með tonk of the lawn
Nr. 4 Blur með Girls and Boys
Nr. 5 Wiseguys Ooh la la
Nr. 6 Skunk Anansie með Selling Jesus
Nr. 7
Nr. 8 Subterrenean með lagið its the subta
Nr. 9 Dressmann
Nr. 10 The Breeders með Lagið cannonball. Kim Deal er frumkvöðull sveitarinnar sem var jafnframt bassaleikari í the Pixies.
- [ ] 1. Susan Vega - Tom’s Dinner
- [ ] 2. Lhooq - Losing Hand
- [ ] 3. Egill Sæbjörnsson - Tonk of the lawn
- [ ] 4. Blur - Girls & Boys af Parklife
- [ ] 5. Æji…..eitthvað rassgat
- [ ] 6. Samsuða af Rage og Skunk Anansie…..hann syngur eins og
stunginn grís…man ekki hvað þetta heitir
- [ ] 7. Wrong number - The Cure - Af Galore og síðan b-hliðasafninu
Join the Dots
- [ ] 8. blee…
- [ ] 9. Þetta kemur frá svörtum Michael Jakkson
- [ ] 10. Þetta er heróín drottningin Kim Deal úr The Pixies. Lagið
heitir Cannonball og hljómsveitin The Breeders