|
Posted on 03.31.08 by steini @ 18:50
Hlöðver eilífðar Bifrestingur og íhaldsmaður með meiru uppgötvaði hljóðvarpið um daginn og lét þau orð falla að það þetta væri mesta snilld sem uppgötvuð hefði verið síðan ritmálið var fundið upp. Spurning hvort Hlölli hafi fyrst núna verið að sjá kosti útvarpsins, eða þá að hann hafi verið að ruglast á hljóðvarpi og hlaðvarpi (podcast) — 1 próf búið og 4 eftir. Loksins fer að sjá fyrir endann á þessari lestrartörn. — Ég vil svo meina að visir.is eigi að fá fréttaverðlaun fyrir þessa fyrirsögn. Algjör snilld þarna Skráð sem: Bifröst Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 03.30.08 by steini @ 3:05
Afhverju setur fréttamaður á mbl.is gæsalappir utan um orðið trú í fréttinni sem ber yfirskriftina Doherty tekur “trú”? Skráð sem: Fréttir og Trúmál Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.28.08 by steini @ 15:38
Þegar ég sá þessa frétt á mbl hugsaði ég bara um það hvað hægt væri að sjá staðlímynir út úr öllu og þetta væri bara plebbaskapur í sjálfskipuðum siðapostulum (þetta er btw algjör tísku orðatvenna). Svo fletti ég upp forsíðunni og bara baby jesus! Er hægt að gera hallærislegri mynd og að reyna að láta manneskju líkjast king kong meira? Það má svo deila um það hvort hægt sé að sjá ákveðnar staðalímyndir úr myndinni, en það er greinilegt að blaðið hefur viljað stuða fólk og vekja upp umfjöllun um forsíðuna. Þetta er allavega í besta falli ótrúlega hallærisleg mynd. Sérstakt með þessa Rás2 tónleika sem kallast Rokka hringinn. Þarna er verið að tala um að nú þurfi sko að vera með tónleika fyrir landsbyggðina og hvað er gert? Jú, það verða tónleikar á Selfossi, Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri, Höfn, Vestmannaeyjum og Eskifirði. Okey, það verða sem sagt tæplega helmingur tónleikanna í kringum Reykjavík (reykjavík, reykjanesbær og selfoss) meðan annar helmingur verður á landsbyggðinni. Einnig er athugavert að engir tónleikar verða frá Akureyri til Reykjavíkur. Ekkert í Skagafirði, Húnavatnssýslu, Vestfjörðum, Snæfellsnesi eða Borgarbyggð. Að lokum langar mig bara að segja eitt. Hálfvitar! Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 03.26.08 by steini @ 0:57
ef fólk vill finna eitthvað öðruvísi, en engu að síður áhugavert og skemmtilegt til að hlusta á, þá mæli ég með þessu hlaðvarpi (podkasti) frá ríkisútvarpinu. Á rúv vefnum er þættinum, sem heitir Orð skulu standa, líst á eftirfarandi veg:
Sem sagt mjög sérhæfður spurningaþáttur á léttu nótunum, alls ekkert að taka sig of alvarlega og maður fær eiginlega áhuga á íslensku máli, málfræði, málþróun og hvað þetta nú allt heitir. Tékk it. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 03.25.08 by steini @ 20:06
Ég vil færa íslensk orðatiltæki nær samtímanum og láta þau fljóta með klámvæðingunni sem hefur víst nú þegar tröllriðið íslensku samfélagi. Legg hér með til að “hefndin er sæt” verði “hefndin er sexy”. Bið aðra um að koma með fleiri uppástundur. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 03.24.08 by steini @ 13:14
Þegar ég vaknaði í morgun fór ég í sturtu eins og flest alla morgna. Fínasta sturta og allt það, heit og notaleg, nema þegar ég er að skrúfa fyrir heita vatnið finn ég fyrir einhverju hári sem er að fara í augun á mér og ákveð því að beina sturtu bununni að augunum. Nema hvað á þeim tímapunkti var ég víst búinn að skrúfa fyrir heita vatnið og fæ bara ískalt vatn yfir mig allan. Mér auðvitað brá rosalega og fyrstu viðbrögðin voru að beina bununni annað, slökkva á sturtunni, hoppa út og þurkka mér. Engu að síður var kominn þvílíkur hrollur í mig og mér orðið hálf kalt. Eftir á að hyggja hefði verið mun betra að kveikja aftur á heita vatninu og líða vel þegar maður kom úr sturtunni. Geri það næst, eða reyndar, passa mig bara á að fara ekki aftur í svona kalda sturtu. — Hverjum dettur svo í hug að framleiða tannbursta sem eru ekki Soft??? Keypti óvart eitt stykki Mild bursta um daginn og notaði hann í fyrsta skiptið í gær. Halló halló! Gæti alveg eins verið að nota stálbursta við að hreinsa til þarna. Vil ekki einu sinni hugsa um það hvernig bursta sem eru merktir Hard eru. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 03.24.08 by steini @ 1:29
Þetta orð finnst mér yndislegt. Hreint og beint yndislegt og þegar ég sá þetta fyrst hló ég upphátt. Prufið bara að segja þetta upphátt. Tjáningarklám! Prufið svo að segja þetta á aðeins lágstemmdari og pervertískari hátt. Þá verður þetta hálf listrænt “tjáningarklám…”. Ég sé fyrir mér fullkominn stað fyrir notkun á þessu orði. Bóhem ljóðastaður í film noir stíl (ekki ólíkt staðnum Blue Casket í tölvuleiknum Grim Fandango) þar sem listamenn með mikla og ríka réttlætiskennd* stíga á stokk og segja fá, en um leið djúp og merkingarþrungin orð sem fólkið í salnum reynir svo að melta og koma fyrir í nýjustu samfélagskenningum sínum. Á milli atriða pískrar fólkið svo saman og laumar miðum sín á milli með áróðri eða hugmyndum um skipulag fyrir næstu uppreisn. Mikilmetnasti einstaklingurinn í þessum hópi stendur svo upp undir lok kvöldsins, íbygginn á svip, labbar að micnum og segir “tjáningaklám” á hugsandi en um leið dimman og dularfullan hátt. Endurtekur þetta svo aftur lágt og lætur orðið fade-a hægt út “tjáningaklám”. Þetta er skrifað undir miklum nostalgíuáhrifum frá þeim dögum sem maður spilaði Grim Fandango og inní það fléttast brenglað hugmyndaflug vegna mikils lesturs á réttlætissiðfræði núna í upplestrfríinu. Annars er þetta orð tekið úr stórskemmtilegri grein eftir konu sem kallar sig Habba Kriss og ég verð eiginlega að vera sammála í þessu sambandi. *hér skal tekið fram að réttlætiskennd getur auðvitað verið af mismuandi toga og þetta á auðvitað við um hugmyndir þessara einstaklinga um réttlæti — Þessi Tómas er svo auðvitað frábær. Ein af þeim fréttum þar sem fleiri spurningar vakna en er svarað. Skráð sem: Hugleyðingar og Sniðugt stöff Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 03.22.08 by steini @ 15:20
Þegar hefðbundnum fyrirlestrum og verkefnatímum/vinnu er lokið er gaman að kíkja aðeins á smá tölfræði í þessu samhengi. Þetta voru sem sagt 10 vikur, 50 fyrirlestrar (3x 40min) = 100 klst, 39 verkefni = 0,78 verkefni á hvern virkan dag eða 3,9 verkefni í viku. En af þessum 39 verkefnum voru 2 þeirra aðeins stærri en önnur, ritgerð í alþjóðastjórnmálum og skýrslugerð og kynning í skoðanakönnunum. Búinn að fá einkunn úr öllu nema þessum tveimur verkefnum og er bara nokk sáttur. Geri ekki ráð fyrir lélegri einkunn fyrir skýrsluna, en er ekki alveg viss með ritgerðina, hún gæti fallið báðu megin. — Yndislegt að sjá kirkjunnar menn, sem hafa samþykkt viss atriði sem sannleikann, nú vilja breyta þeim vegna þess að þau passa ekki nútímafólki nægjanlega vel. Er ekki bara næsta skref að segja það hreint og beint út. Biblían og kristni er alls ekki jafn óskeikul og margir vilja halda. — Það er merkilegt hvernig alþjóðavæðingin hefur orðið til þess að opinberir embættismenn geta varla sagt skoðanir sínar lengur á opinberum vettvangi. Utanríkisráðherra Frakka segir um morguninn á miðvikudaginn að Evrópusambandið eigi að skoða þann möguleika að sniðganga opnunarhátíð Olympíuleikanna til að gagnrýna gjörðir Kínverja gagnvart Tíbetum. Nokkrum tímum seinna dregur hann orð sín til baka og segir að mannréttindi verði stundum að víkja fyrir efnahagslegum hagsmunum. Ég hefði alveg búist við að heyra þetta frá bandarískum ráðmönnum, en ég hélt að Frakkar væru nú aðeins meira nýmóðins. Ef hagsmunadreifingin er orðin slík og sumir aðilar alþjóðasamfélagsins orðnir það stórir að þeir geti fælt alla gagnrýni frá sér í krafti stærðar, þá erum við komin út í slæma hluti. Fólk (og opinberir embættismenn) eiga að geta bent á ranglæti þegar þeir sjá það án þess að þurfa að fá bakþanka um hvort réttlætið geti leitt af sér efnahagslegar refsingar. — WTF???”$$%#$% þessi frétt vekur upp svo margar spurningar en svarar engu!! — og já, það verður ekkert quiz þessa helgi. Reyni að henda inn nýju í næstu viku. Skráð sem: Bifröst og Hugleyðingar og Sniðugt stöff og Trúmál Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.19.08 by steini @ 20:22
Síðasta ritgerð þessarar annar (ef missó er ekki talið með) var skilað í nótt. Umfjöllunarefnið var umhverfis(vanda)mál og alþjóðasamskipti/stjórnmál. Var sem sagt að skrifa um þann vanda sem ríkir í samskiptum ríkja þegar um umhverfisvandamál sem ná út fyrir mörk eins ríki er um að ræða, gróðurhúsaáhrifin, súrt regn, ABC ský, mengun sjávar og jafnvel nýtingu á náttúruauðlindum sem eru á mörkum eða báðu megin við landamæri. Áhugavert efni, en held að ég hafi ekki náð að covera það nægjanlega vel. Sjáum samt hvað Jóhann kennari segir við því. Byrjaði svo að læra aðeins í dag fyrir prófin. Það er sko alls ekkert stopp! Náði svo að plata Stjána með mér í að þrífa sameignina, sem við og gerðum af myndarskap. Spurning hvort maður sé ekki orðinn of svona heimilis/fjölskyldulegur þegar maður er byrjaður að nota páskafrí í þrif og lestur bóka. Eina sem klikkar er að maður á bara mjög tímabundið heimili og hefur ekki enn stofnað fjölskyldu. Stefnan er svo sett á fermingu á Sauðárkróki á morgun auk þess að heilsa upp á ömmu. Það verður held ég bara notalegt, enda langt síðan ég kíkti norður til hennar. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 03.17.08 by steini @ 23:36
Jæja, þá loka ég á svörun við þessu quizzi. Þetta reyndist fólki greinilega aðeins erfiðara en síðast og voru sumir jafnvel á því að sleppa að svara vegna getuleysis. Úrslit voru aftur á móti eftirfarandi: Rétt svör voru svo: #1: The Flaming Lips - Race for the Prize Samtals staða er því orðin: Þórður 56 stig. Skráð sem: quiz Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |
