úrslit eftir fyrsta round

Úrslit:
Maggi: 17
Róbert: 16
Þórður: 15
Júlli: 13

Rétt svör voru:
- 1. Suzanne vega - Tom’s diner

- 2. Lhooq - Losing Hand. Kom meira að segja á einhverjum pottþétt disknum ef ég man rétt. Málverkstengingin er frá listaverki eftir Duchamp sem heitir Lhooq þar sem skeggi er bætt á Monu Lisu.

- 3. Egill Sæbjörnsson - Tonk of the lawn. Hér hefði líka verið gefið rétt fyrir laganafnið “I love you so”. Ef ég man rétt þá var það þessi fýr sem tók upp myndband af sjálfum sér að rúnka sér og spilaði það svo á Kjarvalstöðum (leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál)

- 4. Blur - Girls & Boys. Þessi útgáfa er tekin af Country House smáskífunni (B útgáfu).

- 5. The Wiseguys - Ooh La La og auglýsingin er frá Guinness. Var fyrsta auglýsingin sem þeir notuðu þar sem lag var leikið undir. Maggi fær ekki rétt fyrir Hunts auglýsinguna þótt ennþá breyttara beat hafi verið notað í þá auglýsingu hér á landi.

- 6. Skunk Anansie - Selling Jesus. Júlli, “samsuða af Rage og Skunk Anansie” … veldu svar og þá færðu rétt næst.

- 7. The Cure - Wrong Number (acoustic) - CD2 af Greatest Hits. Maggi var einn með að fá fullt hús hér. Þótt lagið Wrong Number komi upphaflega af Galore, þá er þessi útgáfa komin af CD2 á greatest hits. Spurningin hefði hugsanlega mátt vera greinilegri þarna, en svona er þetta bara :)

- 8. Subterranean - It’s Tha Subta. Hálfgerðir frumkvöðlar á sviði raps og hip hops hér á Íslandi. Man sérstaklega eftir því þegar þau mættu í Dagsljós (eða hvað þátturinn hét þá á Rúv) og litla söngkonan (sem ég man ekki hvað heitir í dag) og aðrir sveitarmeðlimir áttu fína innkomu.

- 9. Þetta er Charles Wright & the 103rd street band með lagið Express yourself sem heyrst hefur oft í Dressman auglýsingunni. Langar að benda á aðra mun betri útgáfu af þessu lagi sem hægt er að finna á nýjasta disknum í Late Night seríunni (núna mixaðan saman af Fatboy Slim).

- 10. Breeders - Cannonball og söngkonan er Kim Deal úr Pixies.

Magnús leiðir allavega keppnina núna eftir fyrstu umferð. Vona að fleiri sjái sér fært að taka þátt næst og geri þessa keppni þannig ennþá meira spennandi.

Comments (2)

JúlliMarch 4th, 2008 at 16:14

Það er bréf frá lögfræðingi á leiðinni….stílað á hugarrúnk.

Takk fyrir mig,
Júlíus Arnarson

MagnúsMarch 4th, 2008 at 16:38

Alright…bring it on.

Leave a comment

Your comment