|
Posted on 04.30.08 by steini @ 12:03
Í gær var sólskin, vindasamt, 3-5°c og snjókoma… um kvöldið og í nótt snjóaði svo þannig að það festi. Verður það eitthvað íslenskara en það ? — Þetta er svo án efa eitt fyndnasta myndband sem ég hef séð lengi á netinu. Rocky is back !!! Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.29.08 by steini @ 15:02
merkilegt hvað maður lætur suma hluti bíða lengi. Var áðan að kaupa mér loksins peru á baðherbergið svo ég þurfi ekki að kúka lengur í myrkrinu. Ætli það hafi ekki tekið mig svona eina og hálfa eða tvær vikur að láta verða af þessari fjárfestingu. Þetta leiddi samt líka til þess að ég tók eftir hvað baðherbergið er orðið skítugt :S Greinilegt að maður fer í að taka til í dag. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.29.08 by steini @ 11:03
Kannski er ég bara svona narrow minded á allt sem tengist nýöld og allskonar kukl fræðum, en mér finnst það mjög kaldhæðnislegt þegar “detox drottningar” (sjá fréttablaðið í dag bls 22) tala um að kasta steinum úr glerhúsi. Að vera að halda einhverju fram sem hefur ekkert staðfast á bakvið sig og vilja svo meina að aðrir sem geri það sama séu að kasta steinum úr glerhús… Fyrir mér er þetta svipað og þegar trúaðir einstaklingar upphefja sinn guð, en á sama tímapunkti útiloka þeir að aðrir gætu verið til. — Var með smá hitting fyrir garðabæjar og verslóliðið á föstudaginn. Held að það hafi bara heppnast ágætlega. Allavega var fólk fram eftir nóttu og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Langt síðan maður hefur hitt flest af þessu fólki. Þakka allavega gestunum fyrir komuna. — Kúrsinn Trúarbrögð og stjórnmál er byrjaður. Þetta er 3 vikna kúrs með lokaritgerð uppá 15 bls. Áhugavert efni, en ég get ekki sagt að ég sé orðinn ready til að pæla í ritgerðinni enn, eða að maður sé mjög áhugasamur að fara að lesa á fullu. Það hlýtur samt að koma. — Það byrjaði svo að snjóa smá í dag hér uppfrá. Þ.e. það komu nokkur snjókorn, þó ekkert þeirra hafi enn náð að festa sig á jörðina. Vonum að það gerist ekki. — — Finnst dálítið fyndið að heyra og lesa um alla vera að tala um hvað hitt og þetta geti verið ógn við stöðugleikann (í efnahagsmálum). Hvernig væri nú að fólk færi að tala um þetta á réttan hátt. Það er ekkert stöðugleiki og allar breytur sem einhverju skipta í því samhengi hafa áhrif á óstöðugleikann, en ekki stöðugleikann. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.21.08 by steini @ 19:50
Jæja, bara jákvæðar fréttir núna. Einkunnir fyrir vorönn (fyrir utan missó) voru að koma í hús og ég held að ég geti bara verið mjög sáttur. Allavega náði ég öllu og einkunnir úr prófunum eru jafn góðar eða betri en ég bjóst við. — Kolluvatn 27-29 júní!
Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Veiði Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.21.08 by steini @ 6:34
6:33, prentun, plöstun og gormun að klárast. Búið að skila skýrslu. Loksins! Mikil ánægja og gleði. Fundur um sumarönnina á morgun kl 12, fæ að sofa í rúmlega 4 klst og svo eftir fundinn verður málsvörnin undirbúin. Málsvörn á þriðjudaginn kl 15:30 og viðvera á miðvikudaginn kl 8:30. Þá búið !!! ég búinn… Skráð sem: Bifröst Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 04.19.08 by steini @ 17:14
Orðið ágætlega langt síðan maður hefur hitt allt fólkið sem maður þekkir í bænum og hef því ákveðið að halda partý fyrir vini og kunningja úr Verzló og Garðabæjarliðið næskomandi föstudag. Mæting einhverntíman uppúr 21 og vonandi bara skemmtilegur hittingur og djamm fram eftir kvöldi. Verður haldið heima á Garðaflötinni. Engar veigar í boði þannig að fólk verður sjálft að mæta með áfengi. — Missó í þetta skiptið er að ljúka og málsvarnir bíða handan við hornið á komandi viku. Á fimmtudaginn verður svo opinn dagur hér uppfrá og verð ég að leiða komandi Bifrestinga um svæðið og sýna þeim hvað þetta er allt flott og frábært. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 04.13.08 by steini @ 22:53
Þessi tilraun er ótrúlega töff hugmynd. Er ekki frá því að ég prufi eitthvað svipað seinna við tækifæri. — Fyrsta grill ársins hjá manni á Bifröst varð svo að veruleika í dag. Aðeins seinna á ferðinni en í fyrra þegar maður var byrjaður í mars. Engu að síður var þetta vel lukkað og kartöflugratín ala Steini var ekki af verri endanum. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.10.08 by steini @ 0:24
foreldra sjö ára stráksins sem hrósaði mér fyrir flotta Happy Tree Friends bolinn sem ég var í í dag og sagði mér hvað þetta væru skemmtilegir og fyndnir þættir. Happy tree friends eru ekki barnaþættir þó þetta séu teiknimyndir. Þetta eru splatter teiknimyndir og því ættuð þið að halda þessu frá krakkagríslingunum. Annars mæli ég alveg með þessum þáttum fyrir þá sem hafa aldur — Missó er annars byrjað og maður nennir svo nákvæmlega ekki neitt að gera þetta núna. Held að maður sé eiginlega kominn með nóg af skóla í bili. Þetta reddast þó vonandi eins og allt annað. Maður hlýtur að komast gegnum þetta. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.09.08 by steini @ 1:37
God is dead Nietzsche is dead Skráð sem: grín Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 04.06.08 by steini @ 18:29
Mjög áhugaverð ráðstefna næstkomandi föstudag kl 14-16 í Iðnó á vegum félagsvísindadeildarinnar á Bifröst. Eitthvað sem maður væri alveg til í að kíkja á ef maður er ekki busy í missó.
Skráð sem: Bifröst Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |





