|
Posted on 05.29.08 by steini @ 12:28
Er nýja Sigur-Rósar myndbandið saklaus nekt, klám, siðleysi eða falleg sýn á manneskjuna? Er þetta hinn siðferðispóllinn á móti ofbeldinu sem þarf að ritskoða eða er nekt mun betri en ofbeldi? Hvort á að ritskoða, eða á að leyfa bæði, eða jafnvel ritskoða bæði? Myndbandið og lagið eru aftur á móti frábær. Algjör sumarfílingur og mun léttara en Sigur Rós hefur verið að gera hingað til (ekki að hitt stöffið hafi verið lélegt samt). Þetta mun því án efa hljóma í spilaranum í sumar og ég hlakka rosalega til að fá nýja diskinn í hendur þegar þar að kemur. Skráð sem: Dagleg skrif og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.28.08 by steini @ 21:54
ég missti af Bob Dylan um daginn þar sem ég var í útlöndum. Aftur á móti upplifði ég fínustu tónleika á leiðinni uppá Bifröst núna áðan þegar ég keyrði hingað. Skellti tónleikadisknum Familiar to Million með Oasis í græjurnar hækkaði vel og þvílík stemmning. Byrjar með látum á Fuckin’ in the Bushes og eftir það kemur hvert gæða lagið á fætur öðru. Diskurinn er tvöfalldur og um miðjan seinni disk taka þeir svo Hey Hey my my eftir Neil Young og er það eina lagið á disknum sem ég er ekki alveg sáttur með, en það er einungis vegna þess að upprunalega lagið er betra plús að ég á aðra útgáfu af laginu flutta af Oasis bræðrum sem er mun betra. Engu að síður okey lag. Champagne Supernova, Rock ‘n’ Roll Star koma svo áður en lokalagið Helter Skelter eftir Bítlana er tekið, en Bítlarnir eru víst meðal uppáhalds sveita og miklir áhrifavaldar á bræðurna. En þetta var allavega mjög öflugt og langt síðan ég hef verið í jafn miklum fíling í bílnum. Kæmi mér ekki á óvart að margir bílstjórar sem sáu mig hafi rekið upp stór augu ef þeir sáu mig þar sem ég var að missa mig í söngnum, svo ekki sé minnst á gangandi vegfarendur í Mosfellsbæ og Reykjavík sem gætu hafa séð mig á einhverjum ljósum Ferðasaga auk smá bjórrýni úr ferðinni kemur svo inn innan skamms. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Ferðalög og Tónlist Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 05.25.08 by steini @ 19:07
Thyskaland, Sviss, Lichtenstein, Austurriki, Tyskaland, Austurriki og nuna i Salzburg. Forum tadan a morgun og stefnan er aftur sett a Tyskaland og ad eyda einum degi tar adur en vid hoppum uppi flugvelina heim a leid fra Frankfurt. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.17.08 by steini @ 6:25
Veit ekki alveg hvernig maður eigi að fá útrás fyrir reiði sem byggir eiginlega töluvert á eigin klúðri, þó það fléttist samt inní það einnig klúður annara (tölvunnar). Ég sem sagt notaði alla nóttina í að klára að skrifa lokaritgerð í trúarbragaða og stjórnmálakúrsinum sem ég var í. Þegar klukkan var að verða 23:55 (skilatíminn) sá ég alveg að það var ekkert að fara að gerast að ég næði að skila. Þannig að ég opnaði námskjáinn (skólakerfið þar sem maður skilar verkefnum) þar sem ég vissi að ef ég opnaði skilagluggann gæti ég skilað eitthvað fram á nóttina. Svo hélt ég áfram að vinna í þessu þangað til svona 2:30 þegar ég var búinn að skrifa allt nema helvítis abstract og heimildaskrá. Ákvað samt fyrst að fara´i heimildaskránna og klára hana. Þar sem ég var á gamalli lánstölvu frá skólanum sem er yndislega hæg þá tók þetta frekar langan tíma, en auk þess var ég ekki með nein verkefni með heimildaskrá þar sem ég var ekki með neitt annað en þetta verkefni á lánstölvunni. Jæja, fyrir utan hægfara umhverfi og gamalt word, þá var ég greinilega ekki alveg búinn að merkja inn nægjanlega vel hvar ég hafði fundið allt og því tók það mig um 3 klst að merkja ásættanlega 37 fótnótur og gera heimildaskránna. Þegar ég var á síðustu heimildinni og alveg að klára krassar samt Internet explorerinn!!!! (hvað haldið þið að firefox sé á svona lánsrusli). Ég þar með í panici yfir að námskjárinn sé farinn í fuck og að ég geti ekki skilað. En bíddu nú við, það kemur bara upp þessi “debug, send msg to microsoft” gluggi en ekkert lokast. ÉG kemst þá að því að námsskjás glugginn virkar enn. Frábært! En þessi eina heimild sem ég átti eftir var einmitt vefheimild og ég þorði eiginlega ekkert að fikta umfram þörf í browsernum. Sem betur fer var Ægir einnig í sama tímarugli og ég og því vakandi og gat gegnum MSN sagt mér hver væri höfundur og heiti greinarinnar sem var á netinu. Ég kláraði því heimildaskránna og hennti inn abstracti (átti uppkast af því ready), save-aði skjalið og ætlaði að skila. En nei, þegar ég reyni að hengja skjalið við skilagluggann þá frís allt!$”#$”#$”#$ og þannig endaði það með að ég þurfti að restarta IE og komast að því að ég gat ekki skilað lengur. Sendi reyndar póst á kennarann fullur iðrunar og bað hana að taka við skjalinu. Vonum að hún geri það. En já, get ég verið reiður við tölvuna, svona fyrst ég átti að vera löngu búinn að skila þessu?? Mér finnst það allavega pínu, þetta var allavega mjög svekkjandi. — To do listi síðustu daga: Ritgerð - check Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.15.08 by steini @ 17:56
var að ganga frá því að panta flug til Friedrichshafen í S-Þýskalandi (20 mai) og svo heim frá Frankfurt (27 mai) rétt í þessu. Munum fara saman bræðurnir í þessa ferð. Hugmyndin er að taka bílaleigubíl á flugvellinum í Friedrichshafen og keyra svo um sviss, lichtenstein, austurríki og að endingu aðeins í Þýskalandi áður en brunað er um autobahn-in til Frankfurt. Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.15.08 by steini @ 1:45
YESSSSSS “!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Vúhúháfjklsajfa “%#$$&smdglksljfasdfjsdgslæjgælsdkgs sd Finnland vann Bandaríkin í 8-liða úrslitum nú rétt í þessu í HM í íshokký sem fram fer í Kanada. Eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en finnar skoruðu mark í viðbótartíma og eru komnir áfram í undanúrslitin þar sem þeir mæta rússum. Djöfull væri það geðveikt að vinna svo rússana og komast í úrslit móti annaðhvort Kanada eða Svíum. Það væri auðvitað alveg toppurinn að vinna svo Svía í úrslitaleik, en það væri heldur ekkert slæmt að taka heimamenn. Sigurinn yrði mjög sætur Skráð sem: Dagleg skrif Svör: It´s all happening! - (4) |
|
Posted on 05.15.08 by steini @ 1:06
Jæja hér eru svörin við getrauninni: #1 Hljómsveitin er Chumbawamba með lagið Amnesia og sveitin kom fram á Reykjavík Music festival sem var haldin í Laugardalnum hérna fyrir nokkrum árum #2 Söngkonan er Regina Spector með lagið On the Radio. Stefnan sem hún er venjulega kennd við er Anti-folk og með vinsældum myndarinnar Juno og soundtrackinu úr þeirri mynd fékk sú stefna töluverða umfjöllun. #3 Hér eru það Flaming Lips sem taka Seven Nation Army eftir White stripes og covera það. (hægt að finna það á Late night tales: Flaming lips disknum. #4 Everyday is like Sunday með meistara Morrissey #5 Hollenska sveitin Shocking Blue með lagið Venus #6 Led Zeppelin og lagið Thank you, en það lag hefur einmitt verið coverað af Flaming lips #7 Hér er U2 á tónleikum að spila Paint it Black eftir Rolling Stones og það var hann Bono sem átti afmæli á dögunum. #8 Van McCoy er hér með lagið The Hustle #9 Þetta er hljómsveitin Cornershop með lagið Norwegian Wood (sem er einmitt Beatles cover). Þau tengjast Brighton auðvitað gegnum hinn frábæra son Brighton, FatBoy Slim, en hann remixaði lagið Brimful of Asha og gerði að miklum slagara. Persónulega finnst mér það lag þó ekki vera nærri besta lagið með Cornershop. Morrissey tengist svo sveitinni með því að hljómsveitarmeðlimir Cornershop brenndu myndir af honum fyrir utan EMI höfuðstöðvarnar þegar hann neitaði því ekki að vera rasisti. #10 Hér var spurt um lagið Can I Kick It? með A Tribe Called Quest, en samplið er tekið úr laginu Take a walk on the wild side með Lou Reed. #11 Spilverk þjóðanna með Sirkus Geira smart. #12 Primal Scream og lagið Come together #13 Súrefni og You are moving too fast. Greinilegt að maður spyr ekki aftur um súrefni í þessari keppni vegna tengsla Magnúsar við umrædda sveit Úrslit þessara keppni fóru á þennan veg: Samanlagður stigafjöldi eftir keppnina er þá eftirfarandi og Maggi því kominn með forystu! Magnús 75 stig. Vona að þetta hafi reynt aðeins á fólk. Skráð sem: quiz Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.13.08 by steini @ 17:23
Fjórða getraunin loksins komin inn. Mikið var. Allavega, í dag er þriðjudagur og ég ætla bara að hafa stuttan svaratíma fyrir getraunina í þetta skiptið. Á morgun á miðnætti (00:00 milli miðvikudags og fimmtudags) er lokafrestur til að senda inn svör. Í þetta skiptið eru spurningarnar töluvert margar, 13 talsins og stigin samtals 31. Hér getur því score-ið breyst milli keppna ef fólk er að standa sig ágætlega. Ekkert theme í þessu, en það er samt slatti af one hit wonder lögum og svo eitthvað af coverum. Spurning #1: Spurning #2: Spurning #3: Spurning #4: Spurning #5: Spurning #6: Spurning #7: Spurning #8: Spurning #9: Spurning #10: Spurning #11: Spurning #12: Spurning #13: Skráð sem: quiz Svör: It´s all happening! - (15) |
|
Posted on 05.12.08 by steini @ 22:51
Jæja, ég mun loksins á morgun henda inn fimmtu tónlistargetrauninni. Fylgist með. Skráð sem: quiz Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.08.08 by steini @ 14:00
HHS grill í kvöld hér í bollakotinu. Mæting um 7 leitið í Bollakot 3 og fólk kemur sjálft með á grillið. Ef þú ert HHS-ingur sem ekki hefur enn fengið skilaboðin þá ertu velkominn í kvöld. Skráð sem: Bifröst Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |
