Lush
Mér finnst mjög gaman að uppgötva nýja tónlist sem mér líkar vel við og leikur vel um eyrun. Reyndar finnst mér eiginlega skemmtilegast þegar þessar uppgötvanir eru um nýja-gamla tónlist, þ.e. tónlist sem er orðin meira en 5-10 ára gömul en fór einhvern vegin fram hjá mér á þeim tíma (eða var gerð áður en ég fæddist eða fór að pæla í tónlist). Um daginn uppgötvaði ég eina hljómsveit sem hefur gert mikið af góðri tónlist en hefur einhvern vegin farið fram hjá mér. Þetta er breska hljómsveitin Lush sem var í fullu fjöri í kringum 1990, eða alveg þangað til trommari sveitarinnar svipti sig lífi 1996 og sveitin leystist upp. Tvö lög hafa sérstaklega fangað athygli mína, en það eru lögin Monochrome og Ladykillers. Það fyrrnefnda var einmitt það lag sem kynnti mig fyrir sveitinni, en það fann ég á safndisknum Late night tales: Flaming Lips (sem er mjög góður diskur btw). Hennti hér inn báðum lögunum svo fólk geti tékkað á sveitinni, en hún spilar draumkennt indí-britpop.
Ladykillers
Monochrome
Ég reyndar tel mig einhvern tíman hafa heyrt Ladykillers lagið áður, en kem engan vegin fyrir mig hvar eða hvenær það var. Allavega, góð tónlist og mæli með að fólk tékki á þessu.
—
Á að skila inn rannsóknaráætlun fyrir Ba-ritgerð á þriðjudaginn…. Gunnar, farðu að svara póstinum. Þarf að vita hvort þetta sé gott ritgerðarefni
—
Ferðatölvan er í fucki! Búinn að fá blue screen of death núna 4x á síðustu 2 dögum og hún er orðin geðveikt hæg og vesen. Held að það sé kominn tími á format. Hef þó engan tíma í að gera eitthvað þannig - nenni ekki! Damn.
—
Tryggvi og Sigga Lóa voru svo að koma með hugmynd um útilegu í sumar fyrir HHS liðið. Það er klárlega eitthvað sem þarf að skoða betur. Alveg kominn tími á að skella sér í útilegu og sofa í tjaldi
—
Ef Josef Fritzl er hataðasti maður í Austurríki eins og er, þá er verjandinn hans örugglega næst hataðasti maðurinn þar akkúrat núna
