Kóala-quizið #4

Fjórða getraunin loksins komin inn. Mikið var. Allavega, í dag er þriðjudagur og ég ætla bara að hafa stuttan svaratíma fyrir getraunina í þetta skiptið. Á morgun á miðnætti (00:00 milli miðvikudags og fimmtudags) er lokafrestur til að senda inn svör. Í þetta skiptið eru spurningarnar töluvert margar, 13 talsins og stigin samtals 31. Hér getur því score-ið breyst milli keppna ef fólk er að standa sig ágætlega. Ekkert theme í þessu, en það er samt slatti af one hit wonder lögum og svo eitthvað af coverum.
Minni á að það á að svara í commentakerfið, en ég mun hafa það þannig að ég þurfi að samþykkja öll comment svo fólk sér ekki önnur komment en sín eigin fyrr en keppninni er lokið.
Góða skemmtun!

Spurning #1:
Þessi hljómsveit myndi venjulega flokkast undir one-hit-wonder sveit, en engu að síður hafa þau gefið út allavega 4 lög sem hafa fengið töluverða spilun. Lagið sem spurt er um er einmitt eitt af þessum þremur lögum, en samt ekki hið lang þekktasta lag. Mætti segja að hljómsveitinni svipi til Nada Surf að því leiti til að þótt þau hafi bara átt 1 lag sem náði alþjóða hylli, þá hafa þau starfað saman í langan tíma og eru enn starfandi í dag (þessi sveit hefur samt verið starfandi um 10 árum lengur en Nada Surf). Hljómsveitin kom og hélt tónleika hérlendis fyrir nokkrum árum á tónlistarhátíð og stóð sig bara hreint ágætlega. Spurt er um nafn sveitarinnar, nafn lags og nafn hátíðarinnar sem hljómsveitin spilaði á hérlendis. (3 stig)

Spurning #2:
Tónlistarkonan sem á þetta lag hefur verið að vinna sig inn síðustu árin og er orðin miðlungs stórt nafn úti í henni Ameríku. Hefur verið talin sem ein af stóru nöfnunum í tónlistarstefnu sem hefur verið nokkuð vinsæl síðustu árin og fékk einmitt töluvert boost á síðasta ári. Tónlistarkonan hefur t.d. gefið það upp að öll lögin hennar séu frábrugðin hvert öðru og því sé erfitt fyrir hana að flokka sig í einhvern flokk tónlistarlega séð. Hver er tónlistarkonan, hvert er lagið og hvað varð til þess að auka hróður þessarar tónlistarstefnu á síðasta ári? (3 stig)

Spurning #3:
Þetta er lag sem allir ættu að þekkja, en hér er það coverað af annari hljómsveit sem hefur lengi verið í bransanum. Hvert er lagið og hver er að covera það hér? (2 stig)

Spurning #4:
Hvaða meistari á þetta lag og hvert er lagið? (2 stig)

Spurning #5:
Hollensk tónlist er ekki alltaf í sviðsljósinu, en þessi sveit kom með nokkra slagara í lok 7-unda áratugarins og byrjun þess 8-unda. Þetta lag var samt by far vinsælasta lagið þeirra. Hver er sveitin og hvert er nafnið á laginu? (2 stig)

Spurning #6:
Þessa tóna ættu flestir að kannast við. Hvert er lagið og hver er sveitin? Því má bæta við að önnur sveit sem spurt er um hér að framan hefur einnig coverað þetta lag. (2 stig)

Spurning #7:
Þetta er mjög svo þekkt lag, þannig að ekki er spurt um það. Ég vil aftur á móti fá að vita hvaða sveit það er sem er að leika lagið á þessari upptöku. Söngvari sveitarinnar hefur einnig verið smá í fréttum síðustu vikuna og því er einnig leitað að ástæðum þess. (2 stig)

Spurning #8:
Lítið hægt að segja um þennan tónlistarmann. Annað dæmið um one-hit-wonder. Hann má þó eiga það að hann var meira en bara tónlistarmaður. Hann hljóðblandaði og tók upp fyrir mörg af stóru nöfnunum á þessum tíma, en verður þó væntanlega alltaf þekktastur fyrir þennan slagara. Hver er höfundurinn og hvert er lagið. (2 stig)

Spurning #9:
Verð alltaf smá pirraður þegar ég heyri lög með þessari sveit vegna þess að ég rétt missti af tónleikum með sveitinni í Brighton fyrir um 7 árum síðan, en þá var þessi sveit í miklu uppáhaldi hjá mér. Stíll sveitarinnar er auðþekkjanlegur og ætti væntanlega að koma upp um hana strax. Sveitin er enn starfandi í dag eftir rúmlega 15 ára spilamennsku og virðist ekki vera á þeim buxunum að hætta. Eitt lag sveitarinnar og diskurinn sem það lag var á hefur næstum fest one hit wonder stimpilinn við hljómsveitina, en ég vil meina að það sé mun meira við þá en einungis að lag. Hér er spurt hvert sé nafn sveitarinnar, nafn lagsins, auk þess sem spurt er um tengingu sveitarinnar við Brighton (annað en gegnum mig og að þeir hafi spilað þar) og hver tenging sveitarinnar við tónlistarmanninn í spurningu nr 4 er. (4 stig)

Spurning #10:
Hver er hljómsveitin sem samdi þetta frábæra lag, hvert er lagið og úr hvaða öðru lagi er samplið (takturinn) tekinn? (3 stig)

Spurning #11:
Þessi kafli er í lok nokkuð þekkts lags. Hvert er lagið og hver er hljómsveitin? (2 stig)

Spurning #12:
Hljómsveitin sem spilar þetta lag hefur farið víða. Indie-pop, acid, alternative rock o.s.frv. Þetta lag er af þeirra þekktasta disk. Allavega af þeim disk sem kom þeim almennilega á kortið og gerði þá hálf mainstream. Síðan þá hefur margt gerst og forsprakki sveitarinnar gerst pólitískari og pólitískari. Hann hefur t.d. látið út úr sér, þegar rætt var um útrýmingu fátæktar, að það ætti að útrýma Ísrael. Hver er sveitin og hvert er lagið? (2 stig)

Spurning #13:
Íslenskt já takk! Árið er 1997, en hver er hljómsveitin og hvert er lagið? (2 stig)

Comments (15)

Stjáni P.May 13th, 2008 at 23:37

ÞORSTEINN!!!

Stjáni P.May 13th, 2008 at 23:38

Samt alveg Übertöff að enda þetta á súrefni, nenirðu að senda mér þetta lag?

steiniMay 14th, 2008 at 2:03

Stjáni fær 1 stig, en hann svaraði þó bara einni spurningu :) Hann fær þó enn tækifæri til að bæta við þangað til næsta kvöld

Hjalti SigurðarsonMay 14th, 2008 at 17:24

1. reykjavík music festival
2.andskotinn hafi það þetta er lily allen eða norah jones eða eitthvað álíka! :)
3. Seven nation army (white stripes) veit ekkert hver er að
4.Blahh
5.Blahh
6.Blahh
7.U2 með bono í fararbroddi… örugglega eitthvað um að bjarga heiminum!
8.Barry White - can’t get enough of your love babe!
9.Þett er mjög pirrandi því ég á að vita hvaða lag þetta er!! ætlaði svo fyrst að skjóta á primal scream en það er varla 2svar í sömu keppni… :)
10.ohhh sama hér! en þetta er samt sampl frá lou reed- walk on the wild side…
11.Blahh
12.Primal scream - ekki klár á hvaða lag það er samt… moving on up?
13.Súrefni - You are moving too fast

steiniMay 14th, 2008 at 17:42

Hjalti skorar 7 stig og tekur forystu :) Með smá meiri heppni og athugunum hefði hann auðveldlega getað nælt í 3-4 fleiri stig.

RóbertMay 14th, 2008 at 22:19

Nr.1
Nr.2
Nr.3 Seven Nation Army í flutningi Audioslave / Chris Cornell
Nr.4
Nr.5 Bananarama - Venus
Nr.6 Led Zeppelin - Thank You
Nr.7 U2 og Bono sem átti afmæli fyrir stuttu. Eins og Ég
Nr.8 Van McCoy og lagið Do The Hustle
Nr.9
Nr.10 Tekið úr Take a walk on the wild side með Lou Reed
Nr.11 Spilverk Þjóðanna - Sirkús Geira Smart
Nr.12
Nr.13 Gus Gus

steiniMay 14th, 2008 at 22:35

Robbi nælir sér í 11 stig

ÞórðurMay 14th, 2008 at 23:30

1. chumbawamba - amnesia, giska iceland airwaves
2.
3. the flaming lips - seven nation army
4. meistari morrissey - everyday is like sunday
5. shocking blue - venus
6. led zeppelin - thank you
7. U2
8. ??? - the hustle
9. cornershop - norwegian wood
10.
11. spilverk þjóðanna - sirkus geira smart
12. primal scream - come to gether

JúlliMay 14th, 2008 at 23:35

1. Æji…..kem þessu ekki fyrir mig – Hátíðin er Iceland Airwaves
2. Regina Spector – On the Radio – Ég veit nú ekki hvaða tónlistarstefnu þú ert að tala um en ég giska á að þú sért að vísa í vandræði Amy Winehouse og alla umfjöllunina um hana.
3. Seven Nation Army – Flaming Lips
4. Every Day Is Like Sunday - Morrissey
5. Venus – Shocking Blue
6. Led Zeppelin – Thank You
7. U2 – Bono varð 48 ára nýlega og hélt upp á afmælið í Mónakó ásamt góðum gestum eins og Brad Pitt og Edge
8.
9. Cornershop – Norwegian Wood – Cornershop-liðar brenndu myndir af Morrissey fyrir nokkrum árum og sögðu hann vera rasista (en spiluðu síðan með honum á Summer Sonic nokkrum árum síðar…helvítis hræsnarar) – Mig grunar að þú sért að vísa í remixið sem Brightonbúinn Fatboy Slim gerði af laginu Brimful of Asha.
10. Take a walk on the wild side – A tribe called quest – Can I kick it?
11. Spilverk þjóðanna – Sirkus Geira Smart
12. Primal Scream – Come together
13. Súrefni - Disco

steiniMay 14th, 2008 at 23:49

júlli tekur afgerandi forystu með 24 stig

steiniMay 14th, 2008 at 23:54

og Þórður kemur þar stutt á eftir með 18 stig.

MagnúsMay 14th, 2008 at 23:55

01. Hljómar eins og EMF, þó líklega ekki þeir…og giska á að tónlistarhátíðin sé bara Reykjavík Music Festival
02. Duffy? og það væri þá Amy Winehous
03. Seven Nation Army - Flaming Lips
04. Morrissey - Everyday is like Sunday
05. Shocking Blue - Venus
06. Led Zeppelin - Thank You
07. U2 - Bono heldur upp á afmæli sitt í Mónakó, Jolie mætti ekki…
08.
09. Cornershop, veit ekki hvort þú sért að spyrja um fræga lagið þeirra eða það laga sem þú lést í spilarann. Hið síðarnefnda er a.m.k. Nowegian Wood (sem Bítlarnir gerðu). Frægasta lagið þeirra er þó án efa Brimful of Asha (sem Norman Cook remixaði). Ég segi að tengingin við Brighton komi þannig, þ.e. í gegnum Norman Cook og helvítis kunturnar brenndu mynd af Morrissey þegar hann var ásakaður um að vera rasisti og neitaði því ekki.
10. A Tribe Called Quest - Can I Kick It - Walk On the Wild Side
11.
12. Primal Scream - Come Together
13. Súrefni - You are moving to fast (annar hljómsveitarmeðlima er einmitt sonur konu pabba)

steiniMay 15th, 2008 at 0:07

maggi kemur sterkur inn að vanda. 22 stig. Samt ekki nóg til að ná Júlla.

HimmiMay 15th, 2008 at 0:27

Spurning 3
-Seven nation army með white stripes .. þessi útgáfa… nine inch nails?

Spurning 5
- Golden Earring,
Sheeeet lag segiru??? ummm… Where will i be?

Sp. 6
- Badly drown boy ? Led Zeppelin pfff fplehh …

Sp 7
- U2 er að taka þennann Rolling Stones slagara “Paint it black” Hef nú ekki mikið verið að taka eftir Bono í fréttunum uppá síðkastið hefur það ekki verið í kringum e-a verðlaunahátiðina eða charity dæmi

Sp. 9 AAAAAHHHHHHH!!!!! :@ Ég er að raula textann en er ekki að ná þessu!

Sp 10 - lou reed - walk on the wild side

sp 13 - Súrefni - You are moving too fast

steiniMay 15th, 2008 at 0:48

og Himmi tekur inn 6 stig

Leave a comment

Your comment