Kóala-quiz #4 - svör

Jæja hér eru svörin við getrauninni:

#1 Hljómsveitin er Chumbawamba með lagið Amnesia og sveitin kom fram á Reykjavík Music festival sem var haldin í Laugardalnum hérna fyrir nokkrum árum

#2 Söngkonan er Regina Spector með lagið On the Radio. Stefnan sem hún er venjulega kennd við er Anti-folk og með vinsældum myndarinnar Juno og soundtrackinu úr þeirri mynd fékk sú stefna töluverða umfjöllun.

#3 Hér eru það Flaming Lips sem taka Seven Nation Army eftir White stripes og covera það. (hægt að finna það á Late night tales: Flaming lips disknum.

#4 Everyday is like Sunday með meistara Morrissey

#5 Hollenska sveitin Shocking Blue með lagið Venus

#6 Led Zeppelin og lagið Thank you, en það lag hefur einmitt verið coverað af Flaming lips

#7 Hér er U2 á tónleikum að spila Paint it Black eftir Rolling Stones og það var hann Bono sem átti afmæli á dögunum.

#8 Van McCoy er hér með lagið The Hustle

#9 Þetta er hljómsveitin Cornershop með lagið Norwegian Wood (sem er einmitt Beatles cover). Þau tengjast Brighton auðvitað gegnum hinn frábæra son Brighton, FatBoy Slim, en hann remixaði lagið Brimful of Asha og gerði að miklum slagara. Persónulega finnst mér það lag þó ekki vera nærri besta lagið með Cornershop. Morrissey tengist svo sveitinni með því að hljómsveitarmeðlimir Cornershop brenndu myndir af honum fyrir utan EMI höfuðstöðvarnar þegar hann neitaði því ekki að vera rasisti.

#10 Hér var spurt um lagið Can I Kick It? með A Tribe Called Quest, en samplið er tekið úr laginu Take a walk on the wild side með Lou Reed.

#11 Spilverk þjóðanna með Sirkus Geira smart.

#12 Primal Scream og lagið Come together

#13 Súrefni og You are moving too fast. Greinilegt að maður spyr ekki aftur um súrefni í þessari keppni vegna tengsla Magnúsar við umrædda sveit :)

Úrslit þessara keppni fóru á þennan veg:
Júlli 24 stig.
Magnús 22 stig.
Þórður 18 stig.
Róbert 11 stig.
Hjalti 7 stig.
Himmi 6 stig.
Stjáni 1 stig.

Samanlagður stigafjöldi eftir keppnina er þá eftirfarandi og Maggi því kominn með forystu!

Magnús 75 stig.
Þórður 74 stig.
Júlíus 67 stig.
Róbert 29 stig
Ebbi 16 stig.
Ísak 15 stig.
Hjalti 7 stig.
Himmi 6 stig.
Stjáni 1 stig.

Vona að þetta hafi reynt aðeins á fólk.

Leave a comment

Your comment