uppgjafar reiði

Veit ekki alveg hvernig maður eigi að fá útrás fyrir reiði sem byggir eiginlega töluvert á eigin klúðri, þó það fléttist samt inní það einnig klúður annara (tölvunnar). Ég sem sagt notaði alla nóttina í að klára að skrifa lokaritgerð í trúarbragaða og stjórnmálakúrsinum sem ég var í. Þegar klukkan var að verða 23:55 (skilatíminn) sá ég alveg að það var ekkert að fara að gerast að ég næði að skila. Þannig að ég opnaði námskjáinn (skólakerfið þar sem maður skilar verkefnum) þar sem ég vissi að ef ég opnaði skilagluggann gæti ég skilað eitthvað fram á nóttina. Svo hélt ég áfram að vinna í þessu þangað til svona 2:30 þegar ég var búinn að skrifa allt nema helvítis abstract og heimildaskrá. Ákvað samt fyrst að fara´i heimildaskránna og klára hana. Þar sem ég var á gamalli lánstölvu frá skólanum sem er yndislega hæg þá tók þetta frekar langan tíma, en auk þess var ég ekki með nein verkefni með heimildaskrá þar sem ég var ekki með neitt annað en þetta verkefni á lánstölvunni. Jæja, fyrir utan hægfara umhverfi og gamalt word, þá var ég greinilega ekki alveg búinn að merkja inn nægjanlega vel hvar ég hafði fundið allt og því tók það mig um 3 klst að merkja ásættanlega 37 fótnótur og gera heimildaskránna. Þegar ég var á síðustu heimildinni og alveg að klára krassar samt Internet explorerinn!!!! (hvað haldið þið að firefox sé á svona lánsrusli). Ég þar með í panici yfir að námskjárinn sé farinn í fuck og að ég geti ekki skilað. En bíddu nú við, það kemur bara upp þessi “debug, send msg to microsoft” gluggi en ekkert lokast. ÉG kemst þá að því að námsskjás glugginn virkar enn. Frábært! En þessi eina heimild sem ég átti eftir var einmitt vefheimild og ég þorði eiginlega ekkert að fikta umfram þörf í browsernum. Sem betur fer var Ægir einnig í sama tímarugli og ég og því vakandi og gat gegnum MSN sagt mér hver væri höfundur og heiti greinarinnar sem var á netinu. Ég kláraði því heimildaskránna og hennti inn abstracti (átti uppkast af því ready), save-aði skjalið og ætlaði að skila. En nei, þegar ég reyni að hengja skjalið við skilagluggann þá frís allt!$”#$”#$”#$ og þannig endaði það með að ég þurfti að restarta IE og komast að því að ég gat ekki skilað lengur. Sendi reyndar póst á kennarann fullur iðrunar og bað hana að taka við skjalinu. Vonum að hún geri það.

En já, get ég verið reiður við tölvuna, svona fyrst ég átti að vera löngu búinn að skila þessu?? Mér finnst það allavega pínu, þetta var allavega mjög svekkjandi.
Já og svo eru finnar dottnir úr HM í hockýinu… keppa núna bara um bronsið, en samt við Svía. Það er allavega ánægjulegt. Held að sunnudagurinn verði öskurdagur við sjónvarpið.

To do listi síðustu daga:

Ritgerð - check
redda tollafgreiðslu - check
tala við öldu sem sér um húsnæðismál - var ekki við
Bankamál - check
kaupa ferðabók um s-þýskaland og austurríki - á morgun
ferðatölva - verður ready á morgun eða mánudag
panta flugfar - check
panta bílaleigubíl - á morgun
Skila bókum - á morgun eða mán
Skrifa á HHS kort - morgun eða sun
Skoða BA ritgerðina aðeins - nei

Comments (1)

IngaMay 17th, 2008 at 20:19

Kenna tölvunni um, ekki spurning!

Leave a comment

Your comment