Sigur Rós

Er nýja Sigur-Rósar myndbandið saklaus nekt, klám, siðleysi eða falleg sýn á manneskjuna? Er þetta hinn siðferðispóllinn á móti ofbeldinu sem þarf að ritskoða eða er nekt mun betri en ofbeldi? Hvort á að ritskoða, eða á að leyfa bæði, eða jafnvel ritskoða bæði?
Persónulega finnst mér þetta myndband einungis vera saklaus nekt og mjög falleg sýn á manneskjuna og sýnir vel það sakleysi sem getur búið í okkur. Sem sagt, mjög hippavæn, en góð og falleg sýn.
Ef ég ætti svo að taka afstöðu með eða móti ofbeldi, klámi og nekt í sjónvarpi og tölvuleikjum, þá finndist mér nekt eins og þessi langsamlegast minnst skaðlegust. Reyndar myndi ég telja hana algjöra andstæðu við skaðlegt. Klám og ofbeldi kæmi svo einhverstaðar á skaðlega ásinn, þó það sé auðvitað mjög misjafnt eftir því hvers konar ofbeldi eða klám það er.

Myndbandið og lagið eru aftur á móti frábær. Algjör sumarfílingur og mun léttara en Sigur Rós hefur verið að gera hingað til (ekki að hitt stöffið hafi verið lélegt samt). Þetta mun því án efa hljóma í spilaranum í sumar og ég hlakka rosalega til að fá nýja diskinn í hendur þegar þar að kemur.
Sumarið lofar annars góðu, Benni Hemm Hemm með gott lag í spilun, nýi diskurinn hennar Dísu (sem er diskur vikunnar á Rás2) hljómar vel og svo nýtt efni frá Sigurrós og Barða og fleirum. Þar fyrir utan er svo allt erlenda dótið eftir.

Leave a comment

Your comment