|
Posted on 06.27.08 by steini @ 1:49
Eftir 7 klst byrjar síðasta prófið mitt á Bifröst. Síðasti tíminn var á þriðjudaginn, en þá var líka síðasta verkefnaskilið. Svo er auðvitað BA ritgerðin eftir, en annars er allt að klárast. Flestir flytja af svæðinu eftir lokaprófin á morgun og þá verðum við örugglega frekar fá eftir hér sem verðum í því að skrifa. Maður eiginlega fattar ekki hvað þessi 2 ár hafa verið fljót að líða. Þegar maður sagði bless við fullt af fólki í dag var það eitthvað svo óraunverulegt, því það er eitthvað svo skrítið að vera ekki að fara að hitta alla hér aftur núna næsta haust. Og þá kemur auðvitað enn áhugaverðari spurning. Hvað er ég að fara að gera næsta haust? Hingað til hefur allt einhvernvegin bara reddast hjá mér. Lífið hefur leitt mig áfram á einhvern undraverðan hátt, en núna er ég í einhverri óvissu hvað muni gerast næst og treysti ekki alveg jafn mikið á þessa slembilukku mína um að allt reddist bara. Ég hreinlega er pínu mát, ætlaði að sækja um kúrsa í HÍ, en ruglaðist á lokadagsetningum og endaði uppi með að hafa ekki sótt um neitt. Þannig að hvað á maður að gera? Bara vona hið besta og fara aftur í bæinn og flytja inn til mömmu og pabba í einhvern tíma? Nú hefur maður verið í burtu í næstum 2 ár og það er frekar skrítin tilfinning að fara aftur. Þessi tími hefur nefnilega verið yndislegur og Bifröst hefur verið frábær staður fyrir mig. Ég hef kynnst fullt af góðu og skemmtilegu fólki sem maður vildi helst hafa áfram í svona nálægð við sig, en ekki að þetta verði að fólki sem maður hittir nokkrum sinnum á ári og spjalli við á msn þess á milli. Spilakvöldin í Bollakotunum, kubbur á kvöldin, borðtennis, labb á Grábrók, fimmtudagspartý, hrekkir við aðra íbúa svæðisins, póstar frá Öldu, potturinn og allt annað sem gerir Bifröst að þessum stað sem ég elska. Þetta er örugglega allt á leiðinni að hverfa og svo mun eitthvað nýtt taka við. Ég hef hingað til ekki verið smeykur við breytingar og venjulega verið bara nokkuð sáttur með að skipta um stað í lífinu og prufa eitthvað nýtt. En í þetta skiptið held ég að ég sé ekki alveg tilbúinn í það. Þessi tvö ár voru svo stuttur tími að ég hefði alveg viljað vera hér eitt ár í viðbót. Ég er nefnilega ekki nógu viss um að það nýja sem muni koma geti komið í staðin fyrir það sem hverfur þegar maður fer héðan. Ég hef meira að segja verið duglegur að slaka á hérna uppá Bifröst um helgar og vona í leiðinni að ég nái að eyða nægjanlega miklum tíma hér til að “fá nóg” eða allavega vera tilbúinn að sættast við að hafa eytt nægjum tíma hér og haldið áfram. En sú stund hefur ekki enn komið. Ég hef alltaf bara orðið hrifnari og hrifnari af staðnum. Það eru t.d. nokkrar svipmyndir sem ég held að maður eigi eftir að sakna rosalega héðan. Að horfa frá endanum af Hamragörðum upp meðfram pottunum og á Grábrók, sjá yfir leiksvæðið og Aðalból þegar það er vetur og allt frosið og í snjó, svæðið milli Kotanna og Garðanna- hvort sem það er sumar eða vetur. Eins rosalegt og þetta svæði verður á fimmtudögum kemur alltaf rosaleg ró yfir það flest önnur kvöld þegar kemur yfir miðnætti. Paradís og Hreðavatn eru auðvitað alltaf fallegir staðir líka, en það er eitthvað við ásýndina við þessa fyrrnefndu svæði sem gerir mig pínu dreyminn. Það er eitthvað við Bifröst sem hefur náð til mín. Miklu meira en bara námið, fólkið og djammið. Þetta er eiginlega í fyrsta skiptið sem ég hef virkilega fengið þá löngun að vilja eyða miklum tíma á ákveðnum stað, að ég eigi virkilega heima einhverstaðar (fyrir utan að eiga heima hjá m&p). Bifröst hefur allavega gefið mér svo miklu meira en mig hefði getað grunað nokkurntíman. Hvort sem manni líkar það betur eða verr, þá held ég að hægt sé að segja að ég hafi þroskast töluvert. En já, hvað á maður að gera eftir þetta nám? Jú ég stefni á master, annaðhvort í alþjóðastjórnmálum eða einhverskonar hagfræði, en það má bíða í eitt ár. Í millitíðinni hlýtur eitthvað skemmtilegt að koma upp í hugann. Enskukennsla í Japan? Internship einhverstaðar, vinna í bænum, auka skólanám eða bara eitthvað annað sem vekur áhuga og löngun. Held það verði bara að koma í ljós. Núna er það bara helgin sem skiptir máli. Veiðiferð með strákunum og pabba í Kolluvatn. Allt annað verður að ráðast eftir það. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 06.25.08 by steini @ 22:34
Pínu væmið, en fuckin geðveikt video. Þetta er Matt sem ferðast um heiminn og tekur upp þegar hann dansar hér og þar. Fær svo oft fólk með sér þannig að örugglega >1000 manns taka þátt í þessu hjá honum. Skemmtilegt að þarna bregður Íslandi einmitt fyrir Skráð sem: Dagleg skrif og Ferðalög og Netið Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.25.08 by steini @ 0:31
Allt er þegar þrennt er. Komst loksins áfallalaust uppá fjallið Baulu í kvöld, í þriðju tilraun. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.24.08 by steini @ 1:34
Rökræður verða sjaldan svona nördalegar. — Baula á morgun? Hugsanlega — Mig langar í svona ! — Southpark er stundum svo mikil snilld! Góð biblíusaga Skráð sem: Bifröst og Netið og grín Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.21.08 by steini @ 16:30
Málefni HÍ rata oft í fjölmiðla, enda um stóra stofnun að ræða með marga starfsmenn og nemendur. Nú síðast vegna skrifa Svans Kristjánssonar um skólann og mál Hannesar H. Gissurarsonar. Hvernig sem menn horfa á það málefni (kæruna gegn HHG), má ljóst þykja að orðstýr skólans beið skaða af og áhyggjur og skoðanir Svans því að einhverju leiti réttmætar. Það má svo aftur á móti spyrja sig hvort maður fái rétta mynd af stöðu mála þegar 2 menn sem hafa eldað grátt silfur saman svo lengi eigast við. En HÍ og HHG var ekki það sem ég ætlaði að pæla í hér. Í sambandi við umfjöllun um HÍ síðustu árin hefur mikið verið talað um þennan top 500 lista og að HÍ þurfi að komast á top 100 innan einhverra X ára. Í þeirri umræðu fannst mér aldrei nægjanlega vel tekið fram að Háskólinn væri ekki einu sinni á top 500 listanum. Þessi grein hans Pawel Bartoszek á deiglunni sýnir svo að þetta markmið er frekar langt utan við þann raunveruleika sem við búum við. Hann skrifaði þessa grein fyrir 2 árum, en samkvæmt skýrslunni frá því í fyrra, er HÍ ekki enn kominn á þennan top 500 lista. Spurning hvenær HÍ fer að setja sér raunhæf markmið, en gefur ekki bara frá sér fögur fyrirheit um eitthvað sem verður seint eða aldrei. Nýjustu markmiðin um að vera á top 10 á einhverjum fjórum sviðum gæti alveg breytt þessu eitthvað smá, en er þá ekki allavega krafa um að upplýsa hver þessi fjögur svið eiga að vera og í hvaða verkefni eigi að leggja mikinn kraft og dugnað í? Lítur dálítið út fyrir að hafa verið enn ein upphrópunin um fögur fyrirheit sem ekkert er á bakvið, enda yrðu örugglega þær deildir sem ekki myndu vera hluti af þessu verkefni frekar sárar og þá kæmi örugglega að þeirri fyrirstöðu að skólinn er ríkisrekinn og að ekki mætti upphefja deilir umfram aðrar meira en nú er. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.18.08 by steini @ 19:49
Þegar ég kom uppeftir á Bifröst núna á sunnudagskvöldið beið mín lítið skemmtileg sýn. Júlíus nokkur Arnarson í slagtogi við Ebba Sand voru búnir að skríða inn um gluggann hjá mér, plasta fullt af dóti, læsa hurðinni að innan með sellofan, láta sellofan í kranann og trappa baðtjöldin, gluggatjöldin og fleira auk þess að festa stólinn minn með hjólalás við ofninn. Ofan á þetta voru þeir svo búnir að krota dálítið með blýant á vegginn og loftið og setja kókópuffs í koddann minn. Sem sagt, ekki skemmtilegt að koma heim. Ég gerði mér reyndar fljótt grein fyrir því hverjir hefðu verið að verki og hringdi í Júlla til að biðja hann um að opna hjólalásinn. Hann reyndar svaraði ekki þannig að ég endaði með að rölta heim til hans, sækja mac tölvuna hans (sem honum þykir næstum vænna um en stelpuna sína) og ákvað að semja um að skipta á tölvunni og lyklum. Þeir komu svo með mér í herbergið og við töluðum aðeins um þennan hrekk. Ég ákvað reyndar mjög fljótlega meðan á þessu stóð að ég ætlaði að hefna mín eitthvað. Bjó til hjá mér einhverja hugmynd um að fá einhvern í lögreglunni til að hringja í hann og tala við hann um húsbrot og eitthvað þannig og ákvað því að vera frekar sár út í þá og haga mér eins og ég væri í fílu útí Júlla. Sagði einnig öllum sem vildu heyra að ég ætlaði að fara að hunsa Júlla og ekki tala við hann. Þetta þróaðist svo í aðra átt og í dag fór ég til hennar Öldu sem sér um húsnæðismálin. Ég fékk hana til liðs við mig og hún hringdi í Júlla og vildi fá hann á fund hjá sér vegna kvörtunar sem hann hefði fengið fyrir skemmdir á húsnæði annars nemenda. Hún tók svo fram þegar Júlíus kom að skrifstofunni að hún ætlaði að sækja rektorinn þar sem Júlíus væri verðandi starfsmaður skólans (á alþjóðaskrifstofunni) og þau væru ekki sátt við neitt svona. Júlíus var víst búinn að vera nokkuð viss um að þetta væri djók hjá henni þangað til einmitt hún kom frekar reið útaf skrifstofunni og sagðist ætla að blanda rektor í málið. Þá fóru hann og Ebbi að pæla hvernig þeir ættu að koma sér úr klípunni og pæla hvort þeir ættu að taka að sér að stroka út blýantsteikningarnar. Þetta var því frábær hefnd og allir sem sáu svipinn á mér þegar ég vissi af Júlla inná skrifstofu geta vitnað um hvað mér var skemmt. Allavega var ég búinn að skemmta mér töluvert með að vera „fúll“ við þá og byggja þannig upp stemmningu fyrir mómentið. — Á morgun er sumarhátíð handhafa skemmtanavalds hér á Bifröst og verður sápuboltamót, grill, bjór, ball og Linda í heimsókn. Sigurliðið frá því í fyrra, með mig innanborðs, mun að sjálfsögðu stefna á titilvörn og lúskra öllum andstæðingum. Stefnir því í góðan morgundag. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 06.16.08 by steini @ 17:48
Svona til að setja þessa veiðiferð okkar aðeins í samhengi við fréttir dagsins, þá er hérna mynd úr google earth og smá viðmið. Mælirinn segir 1.76 km, en ég hef sirkað Hraun aðeins ranglega út á kortinu og það er aðeins lengra í burtu í raun (sjá seinni mynd). Þetta eru því örugglega um 2 km samtals.
Skráð sem: Fréttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.16.08 by steini @ 14:54
Skemmtilegar fréttir frá Hrauni á Skaga. Spurning hvort maður taki ekki eins og einn riffil með þegar maður fer að veiða eftir 2 vikur, en eins og kanski einhverjir vita er vatnið sem við veiðum í á landi Hrauns og aðeins um 3-4 km frá staðsetningu þessa björns. Viðbót: Stundum efast ég virkilega um að heilastarfsemi sumra moggabloggara sé einhver. Eftir að þetta seinna ísbjarnarmál kom upp er fólk að keppast við að tala um að ekki megi skjóta bjössa og að það þurfi að svæfa hann og fanga og flytja til Grænlands, já eða þá ennþá betra, leyfa honum bara að chilla þarna út í fjöru svo við getum grætt á ferðamönnum sem koma að skoða hann. Maður hefur verið að sjá hálfvitaleg komment hjá þessum fyrrgreindu moggabloggurum eins og t.d. að Björninn sé meinlaus, hafi ekki gert neinum neitt og sé ekki neinum til ama. Já eða að það megi ekki skjóta hann því það stefni ímynd Íslands á alþjóðavettvangi í hættu, auk þess sem fólki virðist allt í einu vera orðið skítsama um líf annara dýra eins og fugla, bara af því að ísbirnir eru sjaldgæfir hér á landi auk þess sem dýrið er svo tignarlegt. Einn bloggarinn talar svo um að hún muni tryllast verði bjössi drepinn og biður lögregluna um að nota þessa litlu baun sem þeir hafi. — Júlíus og Ebbi eru aftur á móti ekki skemmtilegir. Ísbjörn mætti éta þá. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.15.08 by steini @ 21:01
ísland er ekki á leiðinni á HM í handbolta og Tékkar dottnir út. Dagurinn hefði klárlega getað verið betri. Nú skulum við bara vona að Svíar vinni sinn leik og komist áfram auk þess sem það væri gaman ef Rúmenar myndu vinna Hollendinga og þar með stuðla að því að bæði frakkar og ítalir sætu eftir. Eftir það mættu svo Hollendingar reyndar vinna alla sína leiki sem eftir eru. — Hér eru svo myndir frá vatnsslagnum í síðustu viku. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.13.08 by steini @ 17:20
Þessir síðustu dagar og vikur hafa verið frábær hér á Bifröst. Vikan sem er að líða innihélt t.d. hátíðarkvöldverð HHS, þríþrautakeppnina Hroka og ball sama kvöld, risa vatnsstríð á fimmtudaginn þar sem yfir 30 manns tóku þátt og skemmtu sér konunglega, lautarferð í paradís, frekar sérstaka en áhugaverða tíma í kostnaðar og nytjagreiningu og svo fullt af EM leikjum. Já og gleymdi ég því að það er búið að vera frábært veður alla vikuna, sól og hiti. Næsta vika verður svo (fyrir utan venjulegan skóladag og verkefni) notaður í sápuboltamót og annað skemmtilegt. Annars er ég orðinn svo rauður af allri sólinni að ég held ég sé eiginlega brunninn. Reyndar er mér hætt að svíða í brunasár vegna þess hversu vanur ég er því, þannig að ég vil reyna að meina að ég ´se ekki brunninn Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
| previous posts » |


