bifröst
Þessir síðustu dagar og vikur hafa verið frábær hér á Bifröst. Vikan sem er að líða innihélt t.d. hátíðarkvöldverð HHS, þríþrautakeppnina Hroka og ball sama kvöld, risa vatnsstríð á fimmtudaginn þar sem yfir 30 manns tóku þátt og skemmtu sér konunglega, lautarferð í paradís, frekar sérstaka en áhugaverða tíma í kostnaðar og nytjagreiningu og svo fullt af EM leikjum. Já og gleymdi ég því að það er búið að vera frábært veður alla vikuna, sól og hiti.
Um helgina er það svo víst útskriftargleði. Þórir og Kalli að útskrifast. Reyndar er bara Þórir búinn að bjóða mér í sína veislu. Kalli hlýtur samt að fara að gera eitthvað í þessu
Næsta vika verður svo (fyrir utan venjulegan skóladag og verkefni) notaður í sápuboltamót og annað skemmtilegt.
Annars er ég orðinn svo rauður af allri sólinni að ég held ég sé eiginlega brunninn. Reyndar er mér hætt að svíða í brunasár vegna þess hversu vanur ég er því, þannig að ég vil reyna að meina að ég ´se ekki brunninn
Gaman að þessu.

Hehe þið Eyþór mynduð sem sagt taka ykkur vel út saman “brúnir” og sætir hehehe