síðustu vikur
Var að taka myndir af símanum mínum í fyrsta skiptið um daginn, auk þess sem myndavélin var tæmd inná vélina. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum og mánuðum. Hægt er að stækka myndirnar með að smella á þær.
Sápuboltinn að byrja. Júlli, Helgi og félagar að teygja á og gera sig tilbúna.
Hér er svo sigurlið ársins 2007, en í þetta skiptið fóru dómararnir illa með okkur og við fengum ekki að halda áfram eftir 2 sigurleiki í röð!
Ég, Raggi Lú, Goggi, Stulli og Tryggvi.
Komnir inní Kollubúð á föstudagskvöldið og tilbúnir í smá sull fyrir veiðiskapinn sem átti að hefjast á laugardaginn.
Kalli, Robbi og Óli
Aflinn á sunnudaginn. Á myndinni má sjá crewið - háseta, skiptstjóra og stýrimenn.
Ég, Þórir, Rúrik og Óli
Hópurinn fyrir utan Kollubúð
Óli, Grímsi, Robbi, Kalli, Þórir og Rúrik
Grillið góða með blómunum. Sagan um þau kemur hér inn fljótlega. Doddinn kominn með framhaldslíf, eftir að hafa verið mest notaða grill síðasta sumars á Bifröst.
Hér á eftir eru myndirnar úr símanum, auðvitað í mjög lélegum gæðum.
Hér má sjá mynd frá því að Fúsi var steggjaður í fyrra
Hér er vel yfirlýst mynd af Chuck cup liðinu á mýrarboltamótinu á Selfossi 2008
Og svo mynd frá Paul Simon tónleikunum í Höllinni (btw, takk kærlega strákar). Eins og sjá má er meistarinn baðaður í ljósi og glampa, svo svipar til sjálfs Jesú Krists!
Og svo myndir frá göngunni á Baulu, en þær eru teknar af Sigrúnu Hermannsdóttir.



Er grillið hjá ykkur enn svona fínt?? Þið stóðuð ykkur vel þarna um kvöldið við að gróðursetja
Nei, grillið er ekki lengur svona. Alda vildi fá blómin aftur svo ég fór og keypti blóm sem voru ekki við það að deyja og nú eigum við 7 falleg blóm í grillinu