paradísarlaut

Í gær fórum við Árný og Stjáni í Jafnaðarstaðaskóg þar sem ég og Árný ákváðum að stökkva hjá fossinum. Stjáni beilaði þá, en sagðist ætla að stökkva í dag í Paradísarlaut. Þannig að í dag fórum við þangað og í lokin voru þetta 2 stökk hjá Stjána og eitt hjá Árnýju. Afraksturinn má sjá hér í þessu video

Comments (8)

AnneJuly 24th, 2008 at 19:54

Vil sjá sönnun á að þú stökkst hjá fossinum um daginn!!!

Halldór BergJuly 24th, 2008 at 21:39

Hetjur. Þessu á ég seint eftir að þora:P

steiniJuly 25th, 2008 at 0:22

skal stökkva þarna á næstu dögum (jafnvel á báðum stöðum) og skal láta taka það þá upp.

JúlliJuly 25th, 2008 at 10:29

Glæsilegt hjá þeim, fyrir utan vandræðalegt hik hjá Stjána

steiniJuly 25th, 2008 at 13:18

Vá, Júlli er klárlega að biðja um að það verði filmað þegar hann stekkur. Spurning um að athuga með vandræðaleg hik þá :)

steinarmarJuly 25th, 2008 at 14:19

þetta er svona svipað stökk og maður getur tekið í jökulsá austari, sem ég einmitt fór í í sumar. Málið með þann stökkpall er samt að það er bölvað klifur og þegar maður er kominn upp á topp þá er maður enganveginn að fara gugna á þessu. Ég skil ekki ennþá hvernig mér datt í hug að það væri sniðugt að hoppa þar.

Töff video, en tengd video eru bara súr…

steinarmarJuly 25th, 2008 at 14:20

þetta átti að koma með

http://www.youtube.com/watch?v=bZBHZT3a-FA&NR=1

hvernig youtube sér tenginguna á þínu og þessu videoi skil ég ekki, en þetta er mjög í anda þín þorsteinn

steiniJuly 25th, 2008 at 15:21

Þú verður að útskýra nánar hvernig tengingin var við þetta video, það sést ekki lengur. En hin video-in af Stjána eru líka horfin sem related video, spurning afhverju youtube hagar sér svona

Leave a comment

Your comment