vonbrigði ársins hingað til
Nýi diskurinn með Dandy Warhols, Earth to the Dandy Warhols verður að teljast til einhverra mestu vonbrigða þessa árs. Mér hefur hingað til líkað vel við sveitina og þá tónlist sem þeir hafa verið að gefa út, en hér keyrir allt um þverbak. Hreint út sagt hræðilegur diskur frá sveit sem á að vera svo miklu miklu betri. Einu lögin sem ég beið ekki eftir að myndu klárast voru Love Song og Mis Amigos, en engu að síður er Love song ekki lag sem ég held að ég muni geta hlustað á oft og mörgu sinnum, bara þægileg melódía, en annað við það ekkert að gera sig. Mis Amigos er eina lagið sem ég fann svona einhvern smá Dandy fíling í við að hlusta á. Þetta verður að teljast frekar slappur árangur miðað við 13 laga disk. En allavega, 1/5 gef ég þessum grip og er það ríflega útlátið og einungis vegna fyrrgreindra laga.
Mun hugsanlega gefa disknum annað tækifæri og athuga hvort hann hefur eitthvað batnað, en það verður allavega ekki strax. Nýi Primal Scream diskurinn virkar aftur á móti betur, þó það sé engin Screamadelica.
Önnur tónlist sem maður hefur svo verið að hlusta á undanfarið er t.d: Vampire Weekend, en þeir hafa fengið að vera í spilaranum mikið í sumar; Someone Still Loves You Boris Yeltsin, en breti sem leigði með Hildi og Sibbu í Singapore benti mér á þessa sveit - kemur skemmtilega á óvart; Nýi Sigur rós diskurinn sem er algjört gull, sérstaklega hressu byrjunarlögin; Lykke Li; MGMT og svo Manchester sveitin James. Shit hvað það er GEÐVEIK Hljómsveit !!!

Tjahh…..já ég hef reyndar aldrei þolað þá og því fannst mér þessi nýjasti diskur ekkert lélegri en hitt draslið. Hins vegar er hin hljómsveitin úr myndinni “Dig!” að heilla mig. The Brian Jonestown Massacre. Það er miklu betra stöff. Ef þú hefur ekki séð Dig! ennþá þá skaltu taka þér smá pásu frá skrifum og kíkja á hana.
Vampire Weekend er líka algjört drasl….hvað eru þessir menn að rembast endalaust. Hvað ætli það séu margar indí-rokk-hressar hljómsveitir í gangi núna…..dísús kræst. Er til nóg af ruslapokum í heiminum fyrir þetta ameríska sprautufíkla hyski?
tékkaðu á nýja disknum með beck
hann ætti að falla í kramið
ditto á sprautufíkla indie hyskið!
free rolls listing…
establish foundered reconstructing …
supplimenting your income playing online casino21…
Augusta menace venturings miracle?…