dark knight
Posted on 07.28.08 by steini @ 16:43

Fór í gær á nýju Batman myndina Dark Knight. Mjög góð mynd, en besta mynd allra tíma? Nei. Er basically sammála þessum sem skrifaði þetta comment á imdb (ath. spoilers). Margt gott í myndinni. Ledger er mjög góður sem Jokerinn, Michael Caine, Maggie Gyllenhaal og Morgan Freeman góð í sínum hlutverkum og Gary Oldman einnig með mjög góða framistöðu.
Söguþráðurinn, kvikmyndatakan og allt það er mjög góð, en þar sem þessi mynd er að reyna að taka sig töluvert alvarlega, þá eru alveg slatti af atriðum sem gera hana eiginlega bara kjánalega. T.d. þegar Batman nær flugvélinni, þegar hann fer úr bílnum á mótorhjólið, að hann geti lamið fullt af vopnuðum gaurum eins og ekkert sé, en láti svo hunda taka sig niður o.s.frv. Allt of mikið af svona rugli. Sem spennumynd myndi ég gefa þessari mynd 8 - 8,5/10, en svona overall sem mynd sem er að taka sig töluvert alvarlega þá er þetta langt frá því að vera meistaraverk, atriðin þar sem maður fær algjöran kjánahroll yfir eru of mörg og ég gef henni því 7,5.


Skráð sem: Kúltúra
Svör:

4 Comments »

  1. Ætla ekki að sjá þessa mynd eftir að hafa lesið þennan dóm

    Comment by Júlli — July 28, 2008 @ 22:54

  2. En varstu ekkert hræddur?? Ég var alveg að fara yfir um af spenningi á tímabili !!

    Comment by Bryndís — July 28, 2008 @ 23:45

  3. Nei, ég verð aldrei hræddur.

    Comment by steini — July 29, 2008 @ 1:33

  4. Heyrðu Steini, við erum sammála.

    Finnst Batman Begins vera mun betri mynd. Fannst aðalgallinn við þessa vera of mikið að gerast. Two Face var t.d. efni í heila mynd. Í Begins þá var tæknin heldur ekki svona óraunveruleg eins og bíla/hjólið og þrívíddarsónarinn. Annars góð mynd en verulega hypeuð.

    Batman begins 10
    Dark Knight 8 eftir fyrsta áhorf

    Comment by Róbert — July 29, 2008 @ 9:50

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

E-mail birtast ekki. Html til að gera url og annað minniháttar fúnkerar. Verið annars bara góð og ekki skrifa eitthvað ljótt!

(required)

(required)



Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér