Fólk er fíbbbbl!
Eftir að hafa gert stutta rannsókn á atferli nokkura einstaklinga varðandi klósettpappírsnotkun þeirra (sjá hér) verð ég að segja að þið eruð öll asnar! Auðvitað snýr maður rúllunni þannig að pappírinn fari undir!!! Hvað annað spyr ég nú bara. Fólkið sem svaraði þessari spurningu hlýtur því bara að vera eitt af eftirtöldu; vitskert, rosalega áhrifagjarnt og þar af leiðandi fylgir það fyrsta svarinu í blindni, ekki með neitt verkfræðivit, órökhugsandi eða þá að gáfaða fólkið svaraði ekki einhverra hluta vegna. En já, ég sný klósettrúllunni þannig að pappírinn fari undir og hananú! Til að sýna fram á fáfræði ykkar og vitleysu mun ég fara í róttæka teiknivinnu á næstu dögum og sýna fram á hversu miklu vitrænna og rökréttara það er en að láta pappírinn fara undir. Á meðan bið ég fólk bara um að slaka á og lifa í sínu óspennandi einfeldningslífi með klósettpappírinn yfir.

átt þú ekki að vera að skrifa ritgerð ?
Ég helt lika að þú áttir að nota tíman í ritgerðina frekar en klósettpappírsheimspeki. Vegna marga ára reynslu mundi ég segja að þú ert bara neutral í þessu máli. Ef rúlla klárast hjá þér, alla vega hér heima, þá situr sú nýja upp á rönd á baðkerskantinn frekar en að þú nennir að setja hana í rúlluhaldaran. Svo hjá þér fer pappírinn í eiginlega til hliðar.
kominn með images í hausinn af steina vera á dollunni og silast eftir nýrri rúllu. ekki gaman
haha Steini þú ert ágætur!
ég býð spenntur eftir að sjá niðurstöðurnar úr þessari róttæku tæknivinnu
jesús Þorsteinn og Jósep og allir hans vinir !
Þú hlítur að vera að grínast. Þegar rúllan snýr svona er erfiðara að rífa á réttum stað, þú getur ýmist lent í því að fá of lítið af pappír eða of mikið, hin aðferðin er miklu hagnýtari þegar maður vill ekki láta slembilukku ráða hversu mikinn pappír maður fær til verksins. Annars lýst mér mjög vel á að þú ætlir að teikna þetta upp, ég hef margt mikilvægara að gera en að skrifa BS eða það hlítur að vera miðað við hvað ég eyði tímanum í þessa dagana !