|
Posted on 08.30.08 by steini @ 1:33
rickrolling fær alveg nýja vídd með þessari tækni Skráð sem: Dagleg skrif og Netið Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.28.08 by steini @ 22:40
Skráð sem: Dagleg skrif og Netið Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.27.08 by steini @ 12:00
Samkvæmt þessari frétt BBC um allskonar reikninga varðandi medalíufjölda, þá ættum við íslendingar ekki að vera aftarlega í töflunni um medalíur miðað við höfðatölu, eða einhverstaðar í 3-4 sæti. (ath. þetta var tekið saman á föstudaginn, áður en við fengum verðlaunin fyrir handboltann). — Góð hugmynd að tónlistarmyndbandi Örugglega grín, en mjög súrt. Hver á 42 dverga ?? Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.27.08 by steini @ 10:48
Það hefur verið áhugavert að sjá marga samfylkingarmenn kvarta undan því undanfarna daga að sjálfstæðismenn séu að nýta sér sigra handboltaliðsins til að koma sjálfum sér á framfæri. Sérstaklega hefur verið rætt um Þorgerði Katrínu í þessu samhengi s.b. þessa grein. Þessu finnst mér reyndar Hafrún nokkur Kristjáns svara ágætlega á blogginu sínu og bendir þar t.d. á að Þorgerður sé ein fróðasta og mest involveraða kona landsins í handboltamálum. Að auki er hún auðvitað yfirmaður íþróttamála í landinu og því skiljanlegt að hún sé tekin í viðtal. Þessir sömu einstaklingar og hafa verið að kvarta hvað mest ættu kanski að líta sér aðeins nær, því í 24 stundum í morgun kemur fram heilsíðuauglýsing (bls 26-27) þar sem mörg fyrirtæki taka sig saman og óska handboltaliðinu til hamingju og þar dúkkar svo einnig upp nafn Samfylkingarinnar. Merkilegt nokk þá er þessi auglýsing ekki með í netútgáfu blaðsins. Það væri áhugavert að fá að vita hvað þeir sem hafa röflað mest um tengingu sjálstæðisflokksins og handboltans segi um þetta nýjasta útspil samfylkingarinnar. Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 08.27.08 by steini @ 1:10
Í dag benti Matthías Ásgeirsson í Vantrú á að ræða Guðna Ágústssonar á vef Alþingisvefsins, eins og hún kemur fyrir í textaformi, sé aðeins öðruvísi en sú sem hann hélt í ræðustól. Fyrst bjuggust menn við að þetta væri einhver yfirsjón hjá þeim sem slá inn ræðurnar, en Vísir hafði samband við Guðna og þar viðurkenndi hann að hann hafi breytt ræðunni eftir á þar sem hann taldi sig hafa gengið of langt.
Fyrir utan hve rangt mér finnst það að vera að breyta ræðunum eftir á, þá fer Guðni hér vel yfir strikið og breytir hreinlega merkingu orða sinna. Ég tel annars að einhver fjölmiðillinn ætti að senda spurningalista á þingmenn og spurjast fyrir hvort þeir hafi breytt ræðum sínum og ef svo er hvort þeir geri það oft. Ég vil vita hvort þingmenn landsins komi hreint fram eður ei. Þetta hefur reyndar kanski aðeins minna vægi en mörg lygin sem sögð er, en óheiðarleiki er þetta samt og ég tel að ráðamenn þjóðarinnar eigi ekki að standa í þannig leik. Í versta falli ætti (annars góður) alþingisvefurinn að taka það til skoðunar að hafa möguleika á að ræður þingamanna birtist óbreyttar, en þingmenn geti svo gert athugasemdir (eins og comments í word eða alíka) við punkta sem þeir telja sig hafa farið offari í eins og þessu máli — Kaldhæðni dagsins frá Denver Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir og Pólitík Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.25.08 by steini @ 21:30
ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum í allt kvöld. Kanski ekkert rosalega alvarlegt vandamál, en samt ekkert lúxusvandamál heldur atvik sem kemur rosalega við andlegu hliðina í mér. Maður er eitthvað að reyna að einbeita sér að lesa og þá er heilinn á fullu að spila eitthvað svona kjánalegt fjörlag. Ekki að gera sig, sérstaklega ekki þegar maður er að tala við aðra í símann… — Ef fólk vill aftur á móti heyra skemmtilega íslenska tónlist, þá mæli ég með Retro Stefson, en ég sá þá einmitt spila á menningarnótt á Ingólfstorgi og þeir stóðu klárlega uppúr dagskránni, auk heimsóknarinnar í utanríkisráðuneytið (dagurinn var þess fyrir utan ekkert spes - frekar slöpp dagskrá sem höfðaði ekkert of mikið til mín). Skráð sem: Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.22.08 by steini @ 15:24
Vá hvað þetta er klárlega málið fyrir úrslitaleikinn! Segi annars bara til hamingju til íslenska landsliðsins og til hamingju Íslendingar. Vá hvað þetta var mikil geðveiki og hvað þetta var góður leikur og hvað það var mikil stemmning og hvað þeir voru að spila vel. Þessi skrif hjá sænska blaðinu Dagens Nyheter segir rosalega mikið um það hverskonar afrek þetta er hjá liðinu okkar. Vinna Svía til að komast á Ólympíuleikana, tapa svo fyrir Makedóníu uppá hver kemst á heimsmeistaramótið, en vera svo komið í úrslitin!:
Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.20.08 by steini @ 23:51
Geðveikur leikur hjá íslenska liðinu í dag og undanúrslit á ólympíuleikunum veruleiki. Held að framleiðni í íslenskum fyrirtækjum fari í frostmark núna í hádeginu á föstudaginn þegar spilað verður við Spánverja, djöfull verður það öflugur leikur. Annars þarf ekki að fjölyrða um liðið, það hefur verið gert á öllum fréttamiðlum, bloggum og kaffistofum landsins, frábær árangur alveg hreint. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.18.08 by steini @ 3:10
Ég er ennþá að undra mig á því afhverju maður gúdderar að kaupa mygluost fyrir morðfé og telur sig vera að kaupa munaðarvöru, en á meðan hendir maður brauði og öðrum matvælum þar sem minnsta arða af myglu gerir vart um sig. — Skítaleikur áðan, strákarnir þurfa að hysja upp um sig buxurnar, standa vörnina og hitta almennilega á markið ef þeir ætla sér einhverja hluti í næstu umferð. — Ágætis hönnunar blog síða vitnar hér í íslenska hönnuðinn Bobby Breiðholt. Skemmtilegar myndir og sérstaklega finnst mér hverfa merking fyrir rvk vera töff. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 08.14.08 by steini @ 12:48
Gott dæmi um frétt sem vekur upp fleiri spurningar en hún svarar:
Afhverju er fundinum Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
| previous posts » |

