|
Posted on 08.08.08 by steini @ 13:19
Er að horfa á setningarhátíðina í sjónvarpinu og íþróttamennirnir eru í þessum orðum að ganga inn á völlinn. Það sem fer óstjórnlega í taugarnar á mér við þessa kynningu er það sem íslensku kynnarnir hafa að segja um hverja þjóð. Þeir nefna venjulega upp nafn landsins, íbúarfjölda og svo fara þeir að telja upp einhverjar landfræðilegar staðreyndir. Hvað landið sé stórt, hvaða lönd eigi landamæri að landinu o.s.frv. Auk þess segja þeir nafn fánaberans. Afhverju er maður ekki látinn vita meira um löndin í íþróttalegu samhengi? Segja manni í hverju fánaberinn keppir í, hvað landið sé sterkast í o.s.frv. bætt við: Engu að síður var þetta flott setning og athöfnin þegar kveikt var á eldinum var vel lukkuð. Skráð sem: Dagleg skrif Svör:
|
