Það vakti nokkra athygli á þessum ólympíuleikum að þátttakendur frá Suður og Norður Kóreu hafi ekki gengið inn á opnunarhátíðina og keppt undir merkjum sameinaðrar Kóreu eins og hefur verið hefðin á Ólympíuleikum frá árinu 2000. Þess í stað keppa þessir þátttakendur núna undir merkjum hvors ríkisins fyrir sig.
Þessi hefð fékk mig aðeins til að stoppa og hugsa, enda heyrir maður alltaf af því að það sé regla á ólympíuleikum að óopinberir fánar megi ekki vera notaðir og í þau skipti sem það hefur verið gert, t.d. þegar Cathy Freeman tók sigurhringinn í Sydney með fána frumbyggja Ástralíu og 1993 þegar Colin Jackson fagnaði með Wales-ska fánann, var mikið umtal um það og nokkuð um gagnrýnisraddir. Einhverra hluta vegna fékk samt Kórea að keppa undir merkjum þessa óopinbera fána og ekkert var sagt við því.