|
Posted on 08.12.08 by steini @ 11:38
Þá er komið í ljós að hluti af opnunarhátíðinni í Beijin var tilbúningur og fölsun. Þ.e. litla stelpan sem söng svo fallega var að mæma og var bara á sviðinu afþví að hún þótti svo falleg, meðan “ljóta” stelpan var baksviðs og söng. Einnig var lítill hluti af flugeldasýningunni tölvugerður til að gera áhrifin enn meiri. Þetta með flugeldanan skiptir nú kanski ekki höfuð máli, en þetta með litlu stelpuna finnst mér helvíti ljótt að heyra. Þessi frétt hjá Telegraph lýsir ágætlega hvernig pólitísk áhrif og skipanir að ofan hafa haft áhrif á leikana. Skráð sem: Dagleg skrif Svör:
|
