|
Posted on 08.14.08 by steini @ 7:53
Jæja, tapaður leikur gegn Kóreu. Ekki mikið við því svo sem að segja. Vantaði smá neista í sókninni og færin voru ekki að detta með okkur. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árina eins og maður hefur verið að sjá hjá öðrum og um það sem lýsandanum fannst, að dómararnir hafi verið hroðalegir. Auðvitað áttu þeir sín mistök og allt það, en þeir voru alls enginn auka leikmaður fyrir Kóreu eða algjör úrslitavaldur í leiknum. — Annars er síðasti dagurinn minn á Bifröst að renna upp núna. Merkilegt að vera að fara héðan núna eftir 2 góð ár. En allt tekur víst enda og nú er komið að næsta kafla. Hver hann svo verður kemur bara í ljós. Helgin er svo frekar full bókuð, en hún inniheldur matarboð, partý, landsleik, grillun í gæsaveislu o.fl. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Netið Svör:
|

Bráðum áttu vonandi eftir á sjónvarpi vinur.
P.S.
Tittlingurinn rann létt í gegnum kerfið!
Comment by Júlli — August 17, 2008 @ 0:36