erfitt líf
ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum í allt kvöld. Kanski ekkert rosalega alvarlegt vandamál, en samt ekkert lúxusvandamál heldur atvik sem kemur rosalega við andlegu hliðina í mér. Maður er eitthvað að reyna að einbeita sér að lesa og þá er heilinn á fullu að spila eitthvað svona kjánalegt fjörlag. Ekki að gera sig, sérstaklega ekki þegar maður er að tala við aðra í símann…
—
Ef fólk vill aftur á móti heyra skemmtilega íslenska tónlist, þá mæli ég með Retro Stefson, en ég sá þá einmitt spila á menningarnótt á Ingólfstorgi og þeir stóðu klárlega uppúr dagskránni, auk heimsóknarinnar í utanríkisráðuneytið (dagurinn var þess fyrir utan ekkert spes - frekar slöpp dagskrá sem höfðaði ekkert of mikið til mín).
Retro Stefson - Palo.
