|
Posted on 08.27.08 by steini @ 10:48
Það hefur verið áhugavert að sjá marga samfylkingarmenn kvarta undan því undanfarna daga að sjálfstæðismenn séu að nýta sér sigra handboltaliðsins til að koma sjálfum sér á framfæri. Sérstaklega hefur verið rætt um Þorgerði Katrínu í þessu samhengi s.b. þessa grein. Þessu finnst mér reyndar Hafrún nokkur Kristjáns svara ágætlega á blogginu sínu og bendir þar t.d. á að Þorgerður sé ein fróðasta og mest involveraða kona landsins í handboltamálum. Að auki er hún auðvitað yfirmaður íþróttamála í landinu og því skiljanlegt að hún sé tekin í viðtal. Þessir sömu einstaklingar og hafa verið að kvarta hvað mest ættu kanski að líta sér aðeins nær, því í 24 stundum í morgun kemur fram heilsíðuauglýsing (bls 26-27) þar sem mörg fyrirtæki taka sig saman og óska handboltaliðinu til hamingju og þar dúkkar svo einnig upp nafn Samfylkingarinnar. Merkilegt nokk þá er þessi auglýsing ekki með í netútgáfu blaðsins. Það væri áhugavert að fá að vita hvað þeir sem hafa röflað mest um tengingu sjálstæðisflokksins og handboltans segi um þetta nýjasta útspil samfylkingarinnar. Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík Svör:
|

Get nú ekki alveg verið sammála þér í þessari túlkun.
Annars vegar er um að ræða (meint) fjölmiðlastríð milli Þorgerðar Katrínar og Dorrittar og hins vegar að RÚV sýndi í fréttum sínum frá viðbrögðum (eftir sigurinn á Spáni) allra ráðherra Sjálfstæðisflokksins utan Guðlaugs Þórs en enginn ráðherra Samfylkingar komst að í fréttum.
Mér finnst ekki um að ræða sama málið. Held að allir geti tekið undir það að viðtal við Þorgerði Katrínu sé eðlilegt enda íþróttamálaráðherra og fyrrverandi landsliðskona í handbolta.
Aftur á móti má spyrja sig af því hvers vegna það voru fengin viðbrögð frá Árna Matt, Einari K og sérstaklega Birni Bjarnasyni. Viðtal við Geir H. getur þó talist eðlilegt.
Hafrún fer að blanda íþróttadeild Rúv inn í málið en sú deild kemur þessu ekkert við, enda viðtölin við ráðherrana tekin af fréttastofu Rúv.
Niðurstaða min er því þessi: Umræða um meint fjölmiðlastríð er undarleg. Það getur vel verið að um eitthvað persónulegt stríð milli þeirra sé að ræða en öll umfjöllun um Þorgerði Katrínu og Dorritt var eðlileg.
Það má hins vegar setja spurningarmerki við það hvers vegna svo mikil áhersla var lögð á að ná viðtölum við ráðherra Sjálfstæðisflokksins um viðbrögð þeirra við Spánarleiknum.
Comment by Magnús — August 27, 2008 @ 12:50
Já og auglýsingin sem Samfylkingin tók þátt í, var hluti af röð auglýsinga sem 24 stundir birtu eftir hvern leik íslenska landsliðsins þar sem blaðið hafði safnað nokkrum aðilum til að borga heilsíðu (eða eftir atvikum opnuð) auglýsingar.
Eins og sjá má í blaðinu eru mörg og ólík fyrirtæki sem taka þátt í þessari auglýsingu.
Comment by Magnús — August 27, 2008 @ 12:52